Rammaskipulag tilbúið þar sem „neyðarbraut“ var áður

„Nýi Skerja­fjörður“ verður 1.200 íbúða byggð með nýjum skóla, stúd­enta- og verka­manna­í­búðum og teng­ingu við Kársnes. Upp­bygg­ingin er á svæð­inu þar sem svokölluð „neyð­ar­braut“ flug­vall­ar­ins var áður.

Rammaskipulag tilbúið þar sem „neyðarbraut“ var áður
„Nýi Skerja­fjörður“ Hverfið snýr að hverf­inu í Skerja­firði í vestri, Reykja­vík­ur­flug­velli í norðri og austri, með strönd í suðri.

Borg­ar­ráð sam­þykkti í lok júní ramma­skipu­lag fyrir svæðið sem kallað er „Nýi Skerja­fjörður“. Gert er ráð fyrir 1.200 íbúðum, nýjum skóla, verslun og þjón­ustu á svæð­inu sem áður fór undir svo­kall­aða „neyð­ar­braut“ Reykja­vík­ur­flug­vallar.

Nýja hverfið verður austan megin við núver­andi Skerja­fjörð og liggur það að strönd­inni í átt að Fossvogi. Gert er ráð að teng­ingu yfir til Kársness með bygg­ingu brúar yfir Fossvog fyrir umferð gang­andi, hjólandi og almenn­ings­sam­gangna. Einnig er hugsað um teng­ingu við áfram­hald­andi byggð í Vatns­mýr­inni „þegar flug­völl­ur­inn víkur þaðan,“ sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef Reykja­vík­ur­borgar.

Stúd­entar og Bjarg, bygg­ing­ar­fé­lag verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, hafa fengið vil­yrði fyrir lóðum á svæð­inu. Gert er ráð fyrir að flug­sög­unnar verði minnst með svoköll­uðu „flug­torgi“ og einnig verður byggð upp aðstaða til þess að stunda sigl­ingar. „Ramma­skipu­lagið gerir ráð fyrir fjöl­breyttum húsa­gerðum og ríku­legum, grænum almenn­ings­rýmum sem hönnuð verða út frá sól­ar­áttum og skjóli,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur mótmæltu

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flugvallarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár