Berg­þóra Þor­kels­dóttir verður for­stjóri Vega­gerðarinnar

Nýr vega­mála­stjóri er mennt­aður dýra­læknir með víð­tæka reynslu af stjórnun fyr­ir­tækja. Settur ráð­herra skipar í stöð­una vegna tengsla Sigurðar Inga við umsækj­anda.

Berg­þóra Þor­kels­dóttir verður for­stjóri Vega­gerðarinnar

Lilja Alfreðs­dóttir settur ráð­herra ætlar að skipa Bergþóru Þor­kels­dóttur, mennt­aðan dýra­lækni með víð­tæka stjórn­enda­reynslu úr atvinnu­líf­inu, í emb­ætti for­stjóra Vega­gerð­ar­innar frá og með 1. ágúst næst­kom­andi sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Tilkynnt verður um skip­un­ina á næstu dögum.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, sagði sig frá mál­inu vegna tengsla við umsækj­anda og var veit­ing­ar­valdið fært til Lilju, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og flokks­systur Sigurðar.

Lilja tók ákvörðun um skip­un­ina að und­an­gengnu ráðn­ing­ar­ferli þar sem ráð­gef­andi nefnd mat hæfni umsækj­enda, en á meðal ann­arra sem sóttu um voru verk­fræð­ingar með langa starfs­reynslu frá Vega­gerð­inni. Ferlið gekk ekki áfalla­laust fyrir sig, en í upp­hafi gleymd­ist að aug­lýsa starfið í Lög­birt­ing­ar­blað­inu og var því umsókn­ar­frest­ur­inn fram­lengdur um tvær vikur. Jókst þá fjöldi umsækj­enda úr 15 í 25.

Bergþóra stund­aði nám í mark­aðs­fræðum við Chart­ered Institute of Mar­ket­ing í Bret­landi og nam rekstrar- og við­skipta­fræði við Háskóla Íslands. Áður lauk hún kandídats­prófi í dýra­lækn­ingum, en hún fékk lækn­inga­leyfi árið 1991, tveimur árum á eftir Sigurði Inga Jóhanns­syni ráð­herra sem einnig er dýra­læknir og var við nám í Kaup­manna­höfn á sama tíma og Bergþóra og mað­ur­inn hennar.

Bergþóra hefur starfað sem for­stjóri ÍSAM ehf, fram­kvæmda­stjóri Líflands og Kornax og hjá Fastus. Hún hefur setið í stjórn Samtaka iðn­að­ar­ins og full­trúa­ráði Samtaka atvinnu­lífs­ins og nýlega tók hún sæti í stjórn Við­skipta­ráðs Íslands. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár