ASÍ fordæmir afskipti Kristjáns Loftssonar af stéttafélagsaðild starfsmanna

For­svars­menn Hvals hf. eru sagðir hafa bannað starfs­mönnum að vera í Verka­lýðs­fé­lagi Akraness. ASÍ segir þetta skýrt lög­brot. Hvalur hf. tap­aði nýlega dóms­máli í Hæsta­rétti sem rekið var af Verka­lýðs­fé­lagi Akraness fyrir hönd félags­manns.

ASÍ fordæmir afskipti Kristjáns Loftssonar af stéttafélagsaðild starfsmanna
Kristján Loftsson For­stjóri Hvals er sagður banna starfs­mönnum að vera í Verka­lýðs­fé­lagi Akraness. Mynd: mbl/ÞÖK

Alþýðu­sam­band Íslands for­dæmir afskipti Krist­jáns Lofts­sonar, for­stjóra Hvals hf. af stétt­ar­fé­lags­að­ild starfs­manna sinna og krefst þess að fyr­ir­tækið láti af þeim nú þegar. Þetta kemur fram á vef ASÍ í dag. Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness (VLFA), hefur sagt að Kristján hafi bannað starfs­mönnum sínum að vera í félag­inu eftir að VLFA vann mál fyrir hönd félags­manns gegn Hvali hf. í Hæsta­rétti á dög­unum.

ASÍ segir málið skýrt brot á lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur en  atvinnu­rek­endum er óheim­ilt að hafa áhrif á félags­að­ild og stjórn­mála­skoð­anir starfs­manna sinna. Starfs­menn hafi fullt frelsi til að velja sér stétt­ar­fé­lag og skipta um félag eftir ráðn­ingu. „Þegar haft er í huga að Hvalur hf. tap­aði nýlega dóms­máli fyrir Hæsta­rétti sem Verka­lýðs­fé­lag Akraness rak fyrir félags­mann sinn, blasir við að um grófa og alvar­lega hefnd­ar­ráð­stöfun atvinnu­rek­anda er að ræða gagn­vart til­teknu stétt­ar­fé­lagi og félags­mönnum þess,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ.

Samtök atvinnulífsins beiti sér í málinu

Á Facebook síðu sinni segir Vil­hjálmur að lög­maður VLFA hafi sent fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífsin bréf þar sem þess er kraf­ist að sam­tökin sjái til þess að for­svars­menn Hvals fari að lögum.

„Þegar starfs­menn komu til fundar með for­svars­mönnum Hvals í morgun þá var þeim til­kynnt að eng­inn mætti vera í Verka­lýðs­fé­lagi Akraness heldur yrðu allir að vera í Stétt­ar­fé­lagi Vest­ur­lands þrátt fyrir að starfs­stöð Hvals í Hval­firði sé á félags­svæði Verka­lýðs­fé­lags Akraness,“ skrif­aði Vil­hjálmur á mið­viku­dag. „Nú ætlar Kristján Loftsson að reyna að refsa Verka­lýðs­fé­lagi Akraness með því að meina starfs­mönnum að vera í VLFA vegna þess að Verka­lýðs­fé­lag Akraness upp­fyllti sínar laga­legu skyldur við að tryggja og varð­veita rétt­indi sinna félags­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Verkalýðsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár