Ráðuneytið brást: Ófullnægjandi meðferð á kvörtunum undan Braga

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið leiddi ekki máls­at­vik í ljós og gat því ekki full­yrt að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu hefði farið út fyrir verk­svið sitt.

Ráðuneytið brást: Ófullnægjandi meðferð á kvörtunum undan Braga

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið brást ekki rétt við kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og upp­lýsti ekki um máls­at­vik með full­nægj­andi hætti.

Í þessu fólst meðal ann­ars að ráðu­neytið sýndi ekki fram á að rétt væri að veita Braga Guð­brands­syni for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu til­mæli fyrir að hafa farið út fyrir verk­svið sitt með afskiptum af barna­vernd­ar­máli. 

Þetta kom fram í máli Kjartans Bjarna Björg­vins­sonar hér­aðs­dóm­ara sem kynnti úttekt þeirra Krist­ínar Bene­dikts­dóttur á máls­með­ferð ráðu­neyt­is­ins á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda á blaða­manna­fundi rétt í þessu. Hér má lesa úttekt­ina í heild, en Stundin mun fjalla ítar­lega um málið um helg­ina.

„Samkvæmt nið­ur­stöðum þess­arar úttektar voru þær ávirð­ingar sem settar voru fram og beindust að störfum for­stjórans þess eðlis að ráðuneyt­inu bar að afla frek­ari upplýsinga um þær til þess að það gæti tekið afstöðu til þess hvort til­efni væri að hefja frek­ari athugun á störfum for­stjórans hjá Barna­vernd­ar­stofu og þá eftir atvikum hvort leggja ætti málið í form­legan far­veg sam­kvæmt lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur opin­berra starfs­manna, eða taka ákvörðun um að aðhaf­ast ekki frekar,“ segir meðal ann­ars í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár