Ráðuneyti Ásmundar skilgreinir og ber ábyrgð á „óháðri úttekt“ á vinnubrögðum þess og Braga

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið ann­ast verk­samn­ings­gerð og ber ábyrgð á fram­kvæmd­inni þrátt fyrir að til­kynnt hafi verið um vinn­una á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og fjallað um verkið sem „óháða úttekt“.

Ráðuneyti Ásmundar skilgreinir og ber ábyrgð á „óháðri úttekt“ á vinnubrögðum þess og Braga

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið ann­ast verk­samn­ings­gerð og ber ábyrgð á fram­kvæmd úttektar sem sett var af stað í kjöl­far umfjöll­unar Stund­ar­innar um afskipti Braga Guð­brands­sonar af barna­vernd­ar­máli í Hafn­ar­firði þrátt fyrir að til­kynnt hefði verið um vinn­una á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og fjallað um verkið sem „óháða úttekt“.

Úttektin lýtur meðal ann­ars að máls­með­ferð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á sviði barna­vernd­ar­mála, en vel­ferð­ar­ráðu­neytið semur við úttekt­ar­að­ila, skil­greinir verk­efnið og ber ábyrgð á fram­kvæmd þess.

For­sæt­is­ráðu­neytið til­kynnti þann 2. maí síð­ast­lið­inn að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefði ákveðið að fram færi „óháð úttekt á til­teknum málum á sviði barna­verndar hér á landi, sem verið hafa til umfjöll­unar í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og hjá vel­ferð­ar­nefnd Alþingis“.

Vinnan var sett af stað eftir að í ljós kom að Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra hélt því leyndu fyrir vel­ferð­ar­nefnd Alþingis að Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu og fram­bjóð­andi Norð­ur­land­anna til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, hefði verið snupraður af ráðu­neyt­inu vegna óeðli­legra afskipta af barna­vernd­ar­máli þar sem hann beitti sér, sam­kvæmt þeim sam­skiptum sem skráð voru, fyrir því að faðir fengi að umgang­ast dætur sínar þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um að hann hefði mis­notað þær kyn­ferð­is­lega. 

Mikil og gagn­rýnin umræða fór af stað um fram­göngu Braga Guð­brands­sonar og upp­lýs­inga­leynd ráð­herra eftir að Stundin birti ítar­lega frétt um málið þann 27. apríl síð­ast­lið­inn og tók vel­ferð­ar­nefnd þings­ins málið til umfjöll­unar. Sú umræða þagn­aði eftir að for­sæt­is­ráðu­neytið greindi frá því að ráð­ist yrði í „óháða úttekt“, að frum­kvæði Katrínar Jak­obs­dóttur en að ósk Ásmundar Einars, þar sem farið yrði yfir „fyr­ir­liggj­andi gögn máls­ins og máls­með­ferð við­kom­andi stjórn­valda, þ.e. þeirra barna­vernd­ar­nefnda sem tengj­ast við­kom­andi málum, Barna­vernd­ar­stofu og vel­ferð­ar­ráðu­neytis“. Vinnan er á hendi Kjartans Bjarna Björg­vins­sonar hér­aðs­dóm­ara og Krist­ínar Bene­dikts­dóttur, dós­ents við laga­deild Háskóla Íslands.

Stundin hafði sam­band við for­sæt­is­ráðu­neytið í síð­ustu viku og óskaði eftir því að fá erind­is­bréf þeirra afhent og upp­lýs­ingar um afmörkun og skil­grein­ingu verk­efn­is­ins. Þá var spurt hvort teknar yrðu skýrslur af hlut­að­eig­andi aðilum, hvort Kjartan og Kristín fengju starfs­menn sér til aðstoðar og hve miklum fjár­munum yrði varið til verk­efn­is­ins.

Fram kemur í svari frá skrif­stofu­stjóra í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu að ráð­stöf­un­arfé rík­is­stjórn­ar­innar verði nýtt til að standa undir kostn­aði vegna úttekt­ar­innar. Hins vegar sé fram­kvæmd verk­efn­is­ins „að öðru leyti á ábyrgð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins sem ann­ast verk­samn­ings­gerð við úttekt­ar­að­ila, þar sem gögnin heyra undir mál­efna­svið þeirra skv. for­seta­úr­skurði um skipt­ingu stjórn­ar­mál­efna, og það ráðu­neyti veitir þeim aðgang að gögnum þeirra mála sem til athug­unar eru“. 

Í ljósi þess að vel­ferð­ar­ráðu­neytið ber ábyrgð á verk­efn­inu áframsendi for­sæt­is­ráðu­neytið fyr­ir­spurn Stund­ar­innar þangað. Stundin hefur gengið á eftir svörum og óskað eftir því að fá verk­samn­ing­inn afhentan án árang­urs. 

Kjartan Bjarni og Kristín voru, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, ekki skipuð sér­stak­lega af ráð­herra heldur var ein­ungis gerður verk­samn­ingur. Þannig virð­ist um að ræða eins konar útvistun á starf­semi sem leiðir af stjórn­unar- og eft­ir­lits­heim­ildum ráð­herra sam­kvæmt stjórn­ar­ráðslögum. Sem kunn­ugt er fer Ásmundur Einar Daðason með stjórn­ar­mál­efni í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu er varða barna­vernd­ar­mál og heyrir því verk­efnið undir hann auk þess sem úttekt­ar­skýrsl­unni verður skilað til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Eins og fram kom í frétt Stund­ar­innar þann 14. maí síð­ast­lið­inn bíða utan­rík­is­ráðu­neyti Dan­merkur, Noregs, Sví­þjóðar og Finn­lands eftir nið­ur­stöðu úttekt­ar­innar. „Nýlega var okkur greint frá því að sett hefði verið af stað óháð athugun á verk­lagi barna­vernd­ar­yf­ir­valda á Íslandi. Við fylgj­umst með fram­gangi athug­un­ar­innar í gegnum sendi­ráð okkar í Reykja­vík og bíðum frek­ari upp­lýs­inga,“ sagði upp­lýs­inga­full­trúi hjá sænska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í svari til Stund­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár