FME mat hæfi Hauks hjá Íbúðalánasjóði áður en hann hóf stórfelld íbúðakaup

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur ekki metið Hauks Ingi­bergs­sonar, stjórn­ar­for­manns Íbúða­lána­sjóðs, eftir að félög í hans eigu eign­uð­ust 10 af þeim 13 íbúðum sem félögin hafa keypt á liðnum árum. Hæfi Hauks sem stjórn­ar­manns var síð­ast metið árið 2013.

FME mat hæfi Hauks hjá Íbúðalánasjóði áður en hann hóf stórfelld íbúðakaup
FME getur hvenær sem er end­ur­metið hæfi Í svörum FME kemur fram að stofn­unin getur á hverjum tíma­punkti end­ur­metið hæfi stjórn­ar­manna í Íbúða­lána­sjóði. Unnur Gunn­ars­dóttir er for­stjóri FME.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) gerði síð­ast hæf­is­mat á Hauki Ingi­bergs­son, núver­andi stjórn­ar­for­manni sjóðs­ins árið 2013, áður en hann hóf stór­felld upp­kaup á íbúðum á Akureyri og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gegnum tvö leigu­fé­lög sín. Þetta kemur fram í svörum frá FME við spurn­ingum Stund­ar­innar um hæf­is­mat stofn­un­ar­innar á Hauki. FME sér um að fram­kvæma hæf­is­mat á stjórn­ar­mönnum í Íbúða­lána­sjóði sem og í ýmsum öðrum stofn­unum og fjár­mála­fyr­ir­tækjum. 

Haukur á í dag þrettán íbúðir í tveimur leigu­fé­lögum, Ráð­gjafa­þjón­ust­unni ehf. og Apart­ment ehf. Eygló Harð­ar­dóttir skip­aði Hauk, sem hefur ára­tuga­löng tengsl við Fram­sókn­ar­flokk­inn, í stjórn­ina í lok sept­em­ber árið 2013 og Ásmundur Einar Daðason skip­aði hann stjórn­ar­for­mann sjóðs­ins í jan­úar í ár. Félög Hauks eign­uð­ust þrjár af íbúð­unum þrettán fyrir skipan hans í stjórn­ina árið árið 2013 og eign­uð­ust félögin því tíu íbúðir eftir að Haukur sett­ist í stjórn Íbúða­lána­sjóðs. 

Stundin hefur fjallað um umsvif Hauks á fast­eigna- og leigu­mark­aði síð­ustu daga og sagði fyrst …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Leigumarkaðurinn

Telja mikið eignarhald hagnaðardrifinna leigufélaga skýra skarpar verðhækkanir á Suðurnesjum
FréttirLeigumarkaðurinn

Telja mikið eign­ar­hald hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga skýra skarpar verð­hækk­anir á Suð­ur­nesjum

Leigu­verð heldur áfram að hækka víð­ast hvar á land­inu sam­kvæmt nýjasta mán­að­ar­riti Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar. Athygli vekur að verð fyrir leigu­í­búðir á Suð­ur­nesjum hefur hækkað óvenju hratt á síð­ustu sex mán­uðum. Telja skýrslu­höf­undar að það megi rekja til óvenju hás hlut­falls leigu­í­búða í eigu ein­stak­linga og hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga.
Óheyrilegar verðhækkanir á leigumarkaði: „Þeir eru eins og óðir hanar í mannaskít“
NeytendurLeigumarkaðurinn

Óheyri­legar verð­hækk­anir á leigu­mark­aði: „Þeir eru eins og óðir hanar í manna­skít“

Aug­lýs­ing sem birt­ist á fast­eigna­vefnum Igloo hefur vakið mikla athygli og umræðu. Þar er fjög­urra her­bergja íbúð í Reykja­vík aug­lýst til leigu fyrir 550.000 krónur á mán­uði. Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna, segir stöð­una vera grafal­var­lega. Hann segir mörg heim­ili á leigu­mark­aði búi í dag við grimmi­lega og kerf­is­bundna fjár­kúgun.
Staða fjölskyldna á leigumarkaði hríðversnar milli ára
FréttirLeigumarkaðurinn

Staða fjöl­skyldna á leigu­mark­aði hríð­versnar milli ára

Samkvæmt nið­ur­stöðum leigukönn­unar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar versn­aði samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­sölum umtals­vert milli áranna 2022 og 2023. Könnunin bendir einnig þess að bæði hafi leigu­verð hækkað og fram­boð á hús­næði við hæfi dreg­ist saman milli ára. Þróunin leggst þyngst á fjöl­skyldur sem bjuggu við þrengri kost árið 2023 í sam­an­burði við árið 2022.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár