Birgitta gengin úr Pírötum: Fúl yfir því að þingflokkurinn vilji ekki nýta sér þekkingu hennar

Segist orðin of gömul til að elt­ast við að fá fólk til að líka við sig. „Ég sé bara ekki neinn rosa­legan mun orðið á Pírötum og öðrum flokkum.“

Birgitta gengin úr Pírötum: Fúl yfir því að þingflokkurinn vilji ekki nýta sér þekkingu hennar
Hætt í Pírötum Birgitta Jóns­dóttir segir að hún nenni ekki að troða sér upp á fólk sem vilji ekki vinna með henni. Mynd: Pressphotos

Birgitta Jóns­dóttir, einn af stofn­endum Pírata og fyrrum þing­maður flokks­ins, er gengin úr flokknum. „Það er orðið dálítið síðan, ég er búinn að vera að gefa vís­bend­ingar um þetta og mér finnst eig­in­lega ótrú­legt að eng­inn hafi kveikt á þessu fyrr,“ segir Birgitta í sam­tali við Stundina. Birgitta segir Pírötum ekki hafa tek­ist ætl­un­ar­verk sitt, að breyta kerf­inu, en auk þess hafi henni mark­visst verið haldið utan við starf flokks­ins eftir að hún ákvað að gefa ekki áfram kost á sér á þing. Hún nenni ekki að troða sér upp á fólk sem ekki vilji vinna með sér.

Segir Pírata ekki hafa náð markmiðum sínum

Birgitta lýsti því yfir í sept­em­ber á síð­asta ári að hún hyggð­ist ekki gefa kost á sér til setu á lista Pírata fyrir Alþing­is­kosn­ingar í lok októ­ber það sama ár. Hún hefur nú sagt skilið við flokk­inn. „Ég sat átta ár á Alþingi, tók þátt í að stofna stjórn­mála­afl sem hafði háleit mark­mið um kerf­is­breyt­ingar í kjöl­far hruns­ins. Það verður bara að segj­ast að það hefur ákaf­lega lítið breyst. Við erum enn með sama banka­kerfið, fjöl­miðlar glíma við lög­bönn og svo fram­vegis. Píratar víða um heim hafa ein­hvern veg­inn ekki náð að koma því fram sem þeir voru stofn­aðir til að gera. Þegar við fórum fyrst fram hér heima þá var því til dæmis lofað að ef tvö pró­sent Íslend­inga myndu styðja við ein­hverja hug­mynd á vefnum Betra Ísland, sem við tókum undir okkar væng, þá myndum við fara með það mál inn á þing. Það hefur hins vegar engin alvöru vinna, tími eða pen­ingar farið í að kenna fólki að nota Betra Ísland og því er almenn­ingur enn algjör­lega óvirkur þátt­tak­andi í lýð­ræð­is­legri vinnu.“

„Eftir að ég ákvað að gefa ekki kost á mér áfram var mér mark­visst haldið utan við alla kosn­inga­bar­áttu flokks­ins“

Birgitta segir að henni finn­ist Píratar orðnir samdauna valda­kerf­inu. „Ég er að von­ast til að Píratar taki sig saman í and­lit­inu varð­andi þessi mál því ef við viljum breyta ein­hverju þá verðum við líka að breyta því hvernig við högum okkur innan kerf­is­ins. Að verða ekki bara samdauna því og fest­ast inni í þessum valdastrúktúr. Ég sé bara ekki neinn ros­la­legan mun á Pírötum og öðrum flokkum. Ef við breytum ekki kerf­inu þá er alveg sama hver vinnur innan þess, við­kom­andi mun ekki ráða við stærsta stjórn­mála­afl lands­ins, sem er emb­ætt­is­manna­kerfið.“

Boð um heiðurssæti afturkallað

Frægt varð að mikil átök geysuðu innan þing­flokks Pírata árið 2016, svo miklar raunar að leitað var til vinnu­staða­sál­fræð­ings til að reyna að leysa deil­urnar. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, líkti sam­starf­inu við ofbeld­is­sam­band og ákvað hann að gefa ekki kost á sér fyrir kosn­ing­arnar árið 2016. Hann hafði raunar gagn­rýnt Birgittu fyrir að standa ekki við yfir­lýs­ingu sína sem hún gaf fyrir kosn­ing­arnar 2013, um að næsta kjör­tíma­bil yrði hennar síð­asta. Hún skipti hins vegar um skoðun og gaf áfram kost á sér. Spurð hvort ákvörðun hennar nú, um að ganga úr flokknum, hafi eitt­hvað með per­sónu­legan ágrein­ing hennar við aðra í for­ystu Pírata að gera, svarar Birgitta því til að hún nenni ein­fald­lega ekki að troða sér upp á fólk sem vilji ekk­ert hafa með hana að gera. „Auðvitað er ég hund­fúl yfir því að mér finnst þing­flokk­ur­inn ekki hafa gert neitt til að nýta sér mína þekk­ingu og reynslu. Eftir að ég ákvað að gefa ekki kost á mér áfram var mér mark­visst haldið utan við alla kosn­inga­bar­áttu flokks­ins. Mér var boðið heið­urs­sæti á lista en svo var allt í einu hætt við það því það gæti haft vond áhrif á Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Ég bara nenni þessu ekki. Ég var svona krakki sem hinir krakk­arnir voru að stinga af, skilja út undan, og ég er bara orðin of gömul til að elt­ast við að fá fólk til að vinna með mér eða líka við mig. Þau hafa auð­vitað fullan rétt til þess en ég nenni ekki að vera að troða mér upp á það fólk. Það eru ábyggi­lega fullt af ástæðum fyrir því, ég er bara eins og ég er, hvat­vís og passa ekki inn í venju­leg stjórn­mál. Þetta er ekki af því ég er í fýlu við ein­hvern, ég nenni bara ekki að troða mér upp á fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár