Guðlaugur vill taka hart á „fölskum fréttum“

Þjóðar­ör­ygg­is­ráð hefur rætt um ógn­ina sem Íslandi gæti stafað af fölskum fréttum og þing­maður Mið­flokks­ins vill grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og dóms­mála­ráðu­neytið í málið.

Guðlaugur vill taka hart á „fölskum fréttum“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hefur áhyggjur af „fölskum fréttum“ og segir slík mál hafa komið til umræðu í þjóðar­ör­ygg­is­ráði.

„Við höldum vöku okkar. Þetta er eilífð­ar­bar­átta og nokkuð sem við getum ekki slakað neitt á með,“ sagði ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun þegar Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, átti orða­skipti við hann.

„Að berj­ast gegn fölskum fréttum er þjóðar­ör­ygg­is­mál og mik­il­vægt mál í hags­muna­gæslu ríkja á alþjóða­vett­vangi. Ég vil því spyrja hæstv. utan­rík­is­ráð­herra: Er fylgst með fölskum fréttum og þær skrá­settar er varða Ísland og íslenska hags­muni? Er brugð­ist við fölskum fréttum er varða Ísland og íslenska hags­muni?“ sagði Birgir.

Hann nefndi að falskar fréttir vörð­uðu oft varða við­skipta­hags­muni, kosn­ingar og ímynd ríkis út á við og sagði að til­gangur þeirra væri að „hafa nei­kvæð áhrif á hags­muni, inn­lenda sem erlenda, þess ríkis er þær bein­ast að“.

Þá hvatti hann ráð­herra til að setja á lagg­irnar „ein­hvers konar teymi í sam­starfi við dóms­mála­ráðu­neytið, rík­is­lög­reglu­stjóra og grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra“ til að sporna gegn fölskum fréttum. 

Guð­laugur sagði að fylgj­ast þyrfti enn betur með og leggja enn meiri áherslu á þessi mál en gert hefði verið fram til þessa.

Þá bætti hann við: „Sem við höfum samt svo sann­ar­lega gert, að koma réttum upp­lýs­ingum áleiðis, leið­rétta stað­reynda­villur og hrein­lega falskar fréttir þegar kemur að Íslandi. Þannig að það er ekk­ert nýtt í því.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár