Þarf minni vinna að vera bölvun? 

Vinnu­tími fólks ætti að geta styst um 40 pró­sent með áhrifum gervi­greindar á næstu árum.

Þarf minni vinna að vera bölvun? 
Fólk í fríi Vinnu­vikan á Íslandi var síð­ast stytt árið 1971 með lögum. Mynd: Shutterstock

Fram­tíðin eins og hún snýr að okkur þessa dag­ana er oftar en ekki ógn­vekj­andi. Auk lofts­lags­breyt­inga og upp­gangs fas­ista ótt­ast margir að hin svo­nefnda fjórða iðn­bylt­ing muni gera stóran hluta mann­kyns atvinnu­lausan. En þurfa tækni­fram­farir endi­lega að kalla yfir okkur hörm­ungar?

Í fyrra kom út viða­mikil skýrsla um þróun gervi­greindar á vegum ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Accenture. Samkvæmt henni er talið að gervi­greind muni efla afköst í 12 af rík­ustu löndum heims, sem sam­an­lagt standa fyrir rúm­lega helm­ing af hag­kerfi jarð­ar­búa, um allt að 40 pró­sent. Ætti þetta að tvö­falda hag­vöxt þeirra frá um það bil tveim pró­sentum að með­al­tali og upp í fjögur. Þau lönd sem koma best út úr tækni­bylt­ingu þess­ari eru Banda­ríkin og Finnland, en í þessum 12 ríkjum sam­an­lagt er búist við að gervi­greind muni bæta um 14 billjónum (e. trillion) við hag­kerfið. 

Rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Gartner hefur sett fram afar bjart­sýna spá um tækni­bylt­ingu þessa, þar sem þeir telja að vissu­lega muni 1,8 milljón störf hverfa fyrir árið 2020, en að sama skapi muni 2,3 milljón störf bæt­ast við. Störfum mun fjölga mest hjá opin­bera geir­anum, í menntun og í heilsu­gæslu, en helst glat­ast í fram­leiðslu og flutn­ingum.

Aðrir eru síður bjart­sýnir. Kai-Fu Lee, stofn­andi fjár­magns­fyr­ir­tæk­is­ins Sinovation Ventures, telur að vél­menni muni taka yfir allt að helm­ingi allra starfa á næsta ára­tug. Elon Musk hjá Tesla segir að á næstu 20 árum muni sjálf­virkir bílar leysa alla þá af hólmi sem starfa við akstur, sem muni gera um 15 pró­sent allra starfa í heim­inum óþörf. Hag­fræð­ing­ur­inn Benjamin Jones hefur velt því fyrir sér að þegar gervi­greindin kemst á það stig að hún end­ur­bæti sjálfa sig sé hún það eina sem þurfi, auk fjár­magns, til að vinna öll störf. 

Þriggja daga vinnuvika

Hvernig sem á það er litið er ljóst að mörg störf sem við tökum sem gefnum munu brátt hverfa. Atvinnu­leys­is­hlut­fall er um þessar mundir minna en það hefur verið lengi, á evru­svæð­inu er það um níu pró­sent, en helm­ingi hærra meðal þeirra sem eru undir 25 ára aldri. Ekki hafa því allir það svo gott, ekki einu sinni í ríku lönd­unum, og hér fer ansi myrk fram­tíð­ar­sýn að gera vart við sig. Hvernig verður þegar 15 pró­sent, 50 pró­sent, eða jafn­vel allir hafa ekk­ert að starfa við?

FrítímiMeð rýmri frí­tíma minnka lík­urnar á að fólk brenni út í starfi.

Fransk-aust­ur­ríski félags­fræð­ing­ur­inn André Gorz benti á að eftir því sem fram­leiðslu­geta hvers ein­stak­lings eykst með auk­inni tækni, þá ætti vinnu­tími hans að minnka sem því nemur og að bráð­lega þyrfti eng­inn að vinna meira en annan hvorn mánuð. Þetta var árið 1989 og síðan hefur tækn­inni fleygt fram, en ekki er að sjá að vinnu­tími okkar hafi styst. Samkvæmt núver­andi spám ætti vinnu­tími okkar þó að geta minnkað um 40 pró­sent. Við þyrftum því ekki að vinna nema þrjá daga í viku og ættum, eins og Finnar, að geta fagnað litla laug­ar­degi á mið­viku­dags­kvöldi og síðan farið í fjög­urra daga helg­ar­frí. 

En ein­hvern veg­inn finnst manni ólík­legt að þetta muni ger­ast. Flestir vinnu­staðir munu lík­lega hag­ræða og segja fólki upp frekar en að greiða fólki full laun fyrir þrjá daga á viku. Þetta eru ekki aðeins slæmar fréttir fyrir ein­stak­ling­inn heldur fyrir þjóð­fé­lagið allt líka. Því fólk án vinnu eyðir minna, hjól atvinnu­lífs­ins hætta að snú­ast og kreppa brestur á í okkar kap­ít­al­ísku hag­kerfum. Öll þessi aukna fram­leiðslu­geta verður því til lít­ils rétt eins og í krepp­unni miklu þegar fram­leiðslu­tækin stóðu aðgerða­laus því það var eng­inn til að kaupa vör­urnar.  

Tímafrek niðurlæging að vera á bótum

En hvað er þá til ráða? Aftur má líta til Finn­lands. Í upp­hafi árs í fyrra gerðu Finnar til­raun með að greiða atvinnu­lausum laun frekar en að bjóða þeim bætur. Launin eru vissu­lega ekki há, aðeins um 70.000 krónur á mán­uði, sem eru álíka laun og háskóla­nemar fá fyrir að vera í námi þar. Með­al­laun í Finn­landi eru um 420.000 krónur fyrir skatt, og vantar því tals­vert upp á að styrk­ur­inn nái því marki. 

2.000 manns voru valdir til að þiggja launin í tvö ár. Munurinn á launum þessum og núver­andi bóta­kerfi eru þau að þátt­tak­endur þurfa ekki að vera í atvinnu­leit til að fá greitt og jafn­vel þó að þeir fái vinnu á tíma­bil­inu missa þeir ekki styrk­inn. Því miður munum við ekki fá nið­ur­stöður rann­sókna um til­raun þessa fyrr en eftir að henni lýkur, en hún mun standa til árs­loka í ár. Blaðið Guardian tók þó for­skot á sæl­una og tók við­tal við sex barna föð­ur­inn Juha Järvinen, sem var einn þess­ara 2.000 styrk­þega. 

Í vinnu­her­bergi hans mátti sjá hug­myndir um list­rænar útgáfur af Airbnb, kvik­mynda­græjur og sjamanatrommur, sem hann hannar og selur fyrir 900 evrur stykkið. Er það nokkuð meira en styrk­ur­inn sjálfur, sem nemur 560 evrum á mán­uði. Järvinen þessi á sex börn, svo varla tekst honum að lífnæra fjöl­skyld­una á borg­ara­launum, enda seg­ist hann vera blankur eftir sem áður. Hann lítur þó svo á að einmitt þessi upp­hæð geri það að verkum að hann losni við þá tíma­freku nið­ur­læg­ingu sem það er að vera á atvinnu­leys­is­bótum, og geti því ein­beitt sér að öðrum hlutum, svo sem því að búa til sjamanatrommur, þar sem hann þurfi ekki lengur að ótt­ast að vera alger­lega tekju­laus út mán­uð­inn. 

Borgaralaun frá hægri og vinstri

Annað dæmi frá Finn­landi sem hefur ratað í fjöl­miðla er um Christian sem er á atvinnu­leys­is­bótum en býr til gít­ar­neglur úr tré í frí­tíma sínum. Fékk hann fyrir það um 250.000 krónur á ári, en lenti í kasti við yfir­völd sem heldur kusu að hann nýtti tíma sinn í að fylla út umsóknir. Juha Järvinen vill meina að þegar sköp­un­ar­gáfu fólks sé sleppt lausri með aðstoð borg­ara­launa muni það leiða til frum­kvöðla­starf­semi sem svo á end­anum muni borga þau upp með afkomu sprota­fyr­ir­tækja. 

Juha skil­greinir sjálfan sig sem anar­kista, en það vekur athygli að í Finn­landi vilja verka­lýðs­fé­lögin hvetja fólk til vinnu­semi með lágum sköttum en hægripopúlistar á borð við Sanna Finna vilja skoða borg­ara­launa­fyr­ir­komu­lagið. Verka­lýðs­sam­tök vara við þessum hug­myndum, þar sem þau telja þær hvetja suma til þess að vinna minna en myndi jafn­framt auka launa­kröfur í störfum sem fæstir vilja. Til að fjár­magna borg­ara­laun segja þau að það þyrfti að hækka skatta, sem svo aftur myndi draga úr áhuga fólks til að vinna sem mest.

Þar til vinstri­menn koma með hug­myndir um hvernig bæta megi kjör hinna lægst settu eins og þeir eitt sinn gerðu má búast við áfram­hald­andi upp­gangi hægri popúl­isma. Allar lausnir hljóma vel fyrir þeim sem heyra engar sem snúa að þeim. Hug­myndin um borg­ara­laun hefur þó birst í ein­hverri mynd í hinum ýmsu stjórn­mála­stefnum, og meðal áhan­genda má nefna frjáls­hyggju­post­ul­ann Milton Fried­mann, Græn­ingja­flokk­inn í Banda­ríkj­unum, Píra­ta­flokk­inn í Ástralíu og Martin Luther King. 

Fátækir fái laun frá skattinum

Þessi finnska til­raun með borg­ara­launin er þó æði tak­mörkuð. Í sinni hrein­ustu mynd ættu allir rétt á launum þessum, jafnt millj­arða­mær­ingar sem atvinnu­leys­ingjar, og eiga sumir erfitt með að kyngja því. Önnur hug­mynd sem hefur verið til athug­unar í Finn­landi er um nei­kvæðan tekju­skatt. Í stað þess að þeir sem eru undir ákveð­inni tekju­upp­hæð borgi skatta fái þeir greiðslur frá rík­inu. Þetta kerfi ætti meðal ann­ars að draga úr því að það letji fólk til vinnu að þurfa að ótt­ast að missa styrki eða hækka um skatt­þrep. 

Þing­maður PírataHalldóra Mogensen hefur talað fyrir borg­ara­launum.

Sumir vilja jafn­vel tengja nei­kvæðan tekju­skatt við flatan skatt. Þeir sem eru undir skatt­leys­is­mörkum myndu fá greitt frá skatt­inum, en þeir sem eru yfir þeim myndu greiða skatt. Hér má taka sem ein­falt dæmi að skatt­leys­is­mörk séu þrjár millj­ónir en skatt­hlut­fallið er 50 pró­sent. Sá sem er með núll krónur í árs­laun myndi þá fá greidda eina og hálfa milljón. Sá sem er með þrjár millj­ónir myndi hvorki borga skatt né fá end­ur­greiðslu, en sá sem er með sex millj­ónir myndi borga eina og hálfa í skatt. Þannig ætti kerfið að geta að mestu leyti borgað fyrir sjálft sig. 

Á umræðu­fundi á vegum European Anti Poverty Network á Grand Hótel í síð­asti mán­uði var hug­myndum um borg­ara­laun rædd og meðal mæl­enda voru Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, og und­ir­rit­aður. Annar mæl­andi, Haukur Hilm­ars­son, ráð­gjafi í fjár­mála­hegðun, var­aði þó við þess­ari lausn. Telur hann að auk­inn kaup­máttur muni aðeins leiða til hærra hús­næð­is­verðs, dýr­ari mat­vöru og verð­bólgu. Hag­fræð­ingur á vegum BIEN, eða Basic Income Earth Network, benti þó á að verð­bólga mynd­ist þegar pen­inga­magn í umferð eykst. Þetta ætti ekki að eiga við um borg­ara­laun, sem yrðu fjár­mögnuð með öðrum hætti.

Persónuafsláttur sem borgaralaun

En hvernig er þá best að fjár­magna þau? Eitt sem stuðn­ings­menn fyr­ir­komu­lags­ins benda á er að mik­ill sparn­aður muni hljót­ast í kerf­inu. Ekki verði lengur nauð­syn­legt að reka fjölda stofn­ana sem ákveða hver eigi að fá hvaða bætur og svo fylgj­ast með því að þeir sem þær fái séu enn bóta­hæfir. Í til­raunum sem hafa verið gerðar í nokkrum bæjum í Kanada með borg­ara­laun hefur komið í ljós að heim­sóknum til lækna jafnt sem geð­lækna fækkar umtals­vert, enda virð­ast þau draga úr streitu fólks. Og ef til vill leiða þau einnig til minnk­unar glæpa, sem eitt og sér ætti að spara sam­fé­lag­inu þó nokkuð. Of snemmt er að segja til um hver þjóð­fé­lags­leg áhrif borg­ara­launa munu verða, en til­raunir sem nú er verið að gera í hinum ýmsu löndum, frá Hollandi til Kenía, ættu að geta gefið nokkra vís­bend­ingu á næstu árum. 

Fljótt á litið virð­ist sem hug­myndin um nei­kvæðan tekju­skatt gæti verið ein­fald­ari í fram­kvæmd, en til þess þyrfti að breyta skatt­kerf­inu all­veru­lega. Og reyndar er það svo að íslenska skatt­kerfið býr yfir mjög fram­sæk­inni hug­mynd sem því miður er van­nýtt. Per­sónu­af­sláttur á Íslandi í dag er 53.895 kr. Í skýrslu hag­deildar ASÍ frá því í októ­ber í fyrra kemur fram að ef per­sónu­af­sláttur hefði fylgt launa­vísi­tölu frá 1989 ætti hann í dag að vera kom­inn upp í 105.660. Hvort sem borg­ara­laun eru hið end­an­lega mark­mið eða ekki þjónar per­sónu­af­slátt­ur­inn að hluta til sama til­gangi, og með því að efla hann til muna mætti bæta kjör margra sem mest þyrftu á því að halda. 

En hug­myndin um borg­ara­laun snýst ekki aðeins um að bæta kjör þeirra sem hafa minnstar tekjur. Hún snýst líka um að und­ir­búa sam­fé­lögin fyrir ver­öld sem hefur ef til vill mun minni not fyrir starfs­krafta okkar en hingað til hefur verið raunin. En hvað gerum við án vinnu? Hvernig skil­greinum við okkur sjálf ef ekki út frá því sem við störfum við? Hver er til­gangur okkar, ef ekki að vinna? 

Hvað ef?Hvað myndir þú gera við þann tíma sem þú fengir ef lág­marks­grunn­laun væru tryggð?

Stutt vinnuvika og ótti við dauðann

Stjarneðl­is­fræð­ing­ur­inn Neil deGrasse Tyson sagði að það sé tvennt sem fólk ótt­ast mest, óháð sam­fé­lagi eða hag­kerfi því sem það býr við; annað sé að deyja og hitt sé það að deyja fátækur. Eitt sinn þarf jú hver maður að deyja (þó jafn­vel þetta verði ekki einu sinni öruggt í fram­tíð­inni). En hvað ef við losnum við ótt­ann við að deyja fátæk? Hvað gerum við þá? 

Í skáld­sög­unni Veröld ný og góð eftir Aldous Huxley reyna yfir­völd að hámarka ham­ingju þegna sinna með því að láta þá vinna minna. Þetta leiðir hins vegar til auk­ins þung­lyndis, svo vinnu­tím­inn er auk­inn á ný. Ef sá tími kemur að við þurfum ekki lengur að vinna helm­ing allra okkar vöku­stunda, þá þurfum við að fara að svara grund­vall­ar­spurn­ingum um hvað það er sem við viljum í raun. Sumir, á borð við Finnana hér að ofan, munu finna sér eitt og annað að dútla við, svo sem að búa til trommur eða gít­ar­neglur. Aðrir þurfa lík­lega á skýr­ari ramma að halda. Er 40 klukku­tíma vinna á viku það sem hentar okkur best, ef við fengjum að ráða því sjálf? Eða myndi kannski henta betur að fara í sund á morgn­ana, vinna síðan um eft­ir­mið­dag­inn og koma heim í kvöld­mat end­ur­nærð en ekki útbrunnin?    

Fram­tíðin er ekki bara eitt­hvað til að bregð­ast við. Hún er líka eitt­hvað sem við getum tekið þátt í að skapa. Árið 2015 gáfu hag­fræð­ing­arnir Nick Srnicek og Alex Williams út bók­ina Invent­ing the Future: Postcapitalism and a World Without Work. Segja þeir að eftir olíu­kreppur 8. ára­tug­ar­ins hafi ekk­ert hug­mynda­kerfi annað en frjáls­hyggjan reynt að vísa veg­inn inn í fram­tíð­ina. Við vitum jú hvernig fór fyrir henni árið 2008, en þeir Srnicek og Williams segja að kom­inn sé tími á nýja fram­tíð­ar­sýn. Leggja þeir fram fjórar kröfur. 

1. Full sjálf­virkni eins margra starfa og mögu­legt er. 

2. Stytting vinnu­vik­unnar þar sem sú vinna sem eftir er sé jafnt skipt. 

3. Örlát og skil­yrð­is­laus laun fyrir alla þegna. 

4. Minni áherslu á dyggðir vinnu­sem­innar. 

Sjálf­virknin gæti þannig fært okkur inn í glæsta fram­tíð þar sem allir starfa við það sem hugur þeirra stendur til, frekar en að vél­arnar muni hafa af okkur lífs­við­ur­værið. En fyrst af öllu þurfum við að velta því fyrir okkur hvers konar fram­tíð það er sem við viljum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgaralaun

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár