Katrín vísar til vandræðamála vinstristjórnarinnar í vörn sinni fyrir Sigríði: „Þau leiddu ekki til afsagnar ráðherra“

For­sæt­is­ráð­herra benti á að ráð­herra hefði fengið á sig dóma vegna brota á skipu­lags­lögum án þess að segja af sér og tal­aði jafn­framt um „dóma vegna brota á jafn­rétt­islögum“. Sagðist Katrín ekki hafa kallað sér­stak­lega eftir afsögnum ráð­herra þá, né ætla að gera það í máli Sigríðar Andersen.

Katrín vísar til vandræðamála vinstristjórnarinnar í vörn sinni fyrir Sigríði: „Þau leiddu ekki til afsagnar ráðherra“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra vísar til mála sem komu upp á kjör­tíma­bili vinstri­st­jórn­ar­innar en leiddu ekki til afsagnar ráð­herra til að rétt­læta áfram­hald­andi setu Sigríðar Andersen á ráð­herra­stóli. 

Í almennum stjórn­mála­um­ræðum á Alþingi í gær var Katrín innt eftir afstöðu sinni til stöðu dóms­mála­ráð­herra. Var þá sér­stak­lega vísað til nýrra upp­lýs­inga sem Stundin birti í gær og sýndu hvernig ráð­herra huns­aði lög­fræði­ráð­gjöf sér­fræð­inga við und­ir­bún­ing til­lögu sinnar um skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara til Alþingis. 

„Það er alveg rétt að við höfum séð ráð­herra fá á sig dóma. Hæst­virtan dóms­mála­ráð­herra núna. Við höfum séð ráð­herra fá á sig dóma vegna brota á jafn­rétt­islögum, við höfum séð ráð­herra fá á sig dóma vegna brota á skipu­lags­lögum og svo mætti áfram telja,“ sagði Katrín.

„Hvernig axla ráð­herrar ábyrgð? Jah, þau dæmi sem ég nefndi hér áðan þau leiddu ekki til afsagnar ráð­herrar og ég hef sjálf, hvorki sem stjórn­ar­and­stöðu­þing­maður né sem ráð­herra í rík­is­stjórn, kallað sér­stak­lega eftir afsögnum ráð­herra af þessum til­efnum. Hins vegar kalla ég eftir því að slíkir dómar séu teknir alvar­lega og við förum yfir það á vett­vangi þings­ins og fram­kvæmd­ar­valds­ins.“

Af ummælum Katrínar má ráða að henni finn­ist fram­ganga og verk­lag Sigríðar Andersen í Lands­rétt­ar­mál­inu með ein­hverjum hætti sam­bæri­legt við vand­ræða­mál sem komu upp í tíð vinstri­st­jórn­ar­innar. 

Hún nefnir mál er vörð­uðu brot ráð­herra á skipu­lags­lögum og jafn­rétt­islögum, seg­ist ekki hafa kallað eftir afsögnum ráð­herra af þeim til­efnum og notar þetta sem rétt­læt­ingu fyrir því að nú kalli hún ekki eftir afsögn Sigríðar Andersen í kjöl­far lög­brota hennar við skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara síð­asta sumar. 

Dómstólar ógiltu ákvörðun Svandísar

Með orðum sínum um „dóma vegna brota á skipu­lags­lögum“ má ætla að Katrín hafi verið að vísa til máls sem kom upp í umhverf­is­ráð­herra­tíð flokks­systur hennar, Svan­dísar Svav­ars­dóttur sem nú er heil­brigð­is­ráð­herra. Þá komust dóm­stólar að þeirri nið­ur­stöðu að með því að synja stað­fest­ingu þess hluta aðal­skipu­lags Flóa­hrepps sem varð­aði Urriða­foss­virkjun hefði Svandís ekki farið að lögum. 

Svandís Svav­ars­dóttirnúver­andi heil­brigð­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra

Forsaga máls­ins er sú að Flóa­hreppur og Lands­virkjun höfðu árið 2007 gert með sér sam­komu­lag sem fól meðal ann­ars í sér að Lands­virkjun skyldi kosta skipu­lags­gerð vegna fyr­ir­hug­aðrar virkj­unar. „Ég taldi aðkomu Lands­virkj­unar að skipu­lagi Flóa­hrepps ekki stand­ast lög enda enga orð­aða heim­ild að finna í lög­unum,“ skrif­aði Svandís í pistli þann 19. febr­úar 2011 og benti á að áður hefði sam­göngu­ráð­herra úrskurðað að til­tekin grein samn­ings um greiðslu fyrir skipu­lag væri ólög­mæt.

„Þegar ég og ráðu­neyti mitt stóðum frammi fyrir því að stað­festa skipu­lag Flóa­hrepps var byggt á sömu sjón­ar­miðum og umboðs­maður hafði nefnt enda ein­ungis heim­ild í þágild­andi lögum fyrir greiðslu fram­kvæmda­að­ila við gerð deiliskipu­lags. Í ljósi þess­arar for­sögu átti nið­ur­staða mín ekki að koma neinum á óvart.“ 

Síðar stað­festu bæði Hér­aðs­dómur Reykja­víkur og Hæsti­réttur að fyr­ir­komu­lagið um greiðslu Lands­virkj­unar fyrir aðal­skipu­lag Flóa­hrepps hefði stað­ist lög og því yrði synjun ráð­herra ógilt. 

Í máli Svan­dísar var ekki sýnt fram á að hún hefði hunsað lög­fræði­ráð­gjöf í ráðu­neyti sínu, né voru höfðuð skaða­mál eða ríkið dæmt miska­bóta­skylt vegna vinnu­bragða ráð­herr­ans. Hins vegar héldu Lands­virkjun og full­trúar Flóa­hrepps því fram að með ákvörðun sinni hefði Svandís tafið atvinnu­upp­bygg­ingu á svæð­inu og þannig óbeint valdið tjóni.  

Dómar fyrir brot á jafnréttislögum?

Katrín Jak­obs­dóttir vís­aði einnig til þess í þing­ræðu sinni í gær að ráð­herrar hefðu fengið á sig „dóma vegna brota á jafn­rétt­islögum“. Óljóst er til hvaða mála hún er þar að vísa. 

Ögmundur Jónasson fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra var stað­inn að því að hafa brotið jafn­rétt­islög sam­kvæmt útskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála árið 2012 og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra árið 2017. Þeir voru hins vegar aldrei dæmdir fyrir brot á jafn­rétt­islögum.

Það sama á til dæmis við um mál Björns Bjarna­sonar, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, þegar hann braut jafn­rétt­islög að mati kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála með því að skipa ekki Hjördísi Hákon­ar­dóttur sem hæsta­rétt­ar­dóm­ara árið 2003. Málið var leyst með sam­komu­lagi við Hjördísi en ekki fyrir dóm­stólum. 

Því hefur oft verið haldið fram að Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra hafi verið „dæmd fyrir brot á jafn­rétt­islögum“ þegar Önnu Kristínu Ólafs­dóttur voru dæmdar miska­bætur í máli gegn for­sæt­is­ráðu­neyt­inu árið 2012 sem hún höfð­aði eftir að kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ráð­herra hefði brotið jafn­rétt­islög. 

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir var aldrei dæmd fyrir brot á jafn­rétt­islögum, ólíkt því sem oft er haldið fram.

Í dómi hér­aðs­dóms, sem ekki var áfrýjað til Hæsta­réttar, var byggt á því að þar sem íslenska ríkið hefði ekki höfðað mál til að hnekkja úrskurði kæru­nefnd­ar­innar yrði að leggja nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar til grund­vallar í mál­inu, enda væru úrskurðir kæru­nefnd­ar­innar „bind­andi gagn­vart máls­að­ilum“. Dómurinn lagði hins vegar ekk­ert efn­is­legt mat á hvort jafn­rétt­islög hefðu verið brotin við skipun í emb­ættið. 

Skaða­bóta­kröfu Önnu Krist­ínar var hafnað en rík­inu gert að greiða henni 500 þús­und króna miska­bætur vegna frétta­til­kynn­ingar for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um málið þar sem farið hafði verið yfir mats­ferli ráðu­neyt­is­ins og tekið fram að hún hefði lent í fimmta sæti yfir hæf­ustu umsækj­endur.

Síðar komst umboðs­maður Alþingis að þeirri nið­ur­stöðu að mat og aðferð kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála, sem lögð var til grund­vallar nið­ur­stöðu hennar í mál­inu, hefði ekki verið í sam­ræmi við lög­bundið hlut­verk hennar sam­kvæmt jafn­rétt­islögum. Jóhanna fékk aldrei á sig dóm fyrir brot á jafn­rétt­islögum þótt því hafi ítrekað verið haldið fram af hálfu stjórn­mála­manna og í fyr­ir­sögnum fjöl­miðla. 

Eftir því sem Stundin kemst næst eru engin dæmi um að ráð­herrar hafi verið dæmdir sekir um brot á jafn­rétt­islögum frá því að lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 öðl­uð­ust gildi né á þeim tíma sem Katrín Jak­obs­dóttir hefur átt sæti á Alþingi frá 2007, hvorki í tíð vinstri­st­jór­ar­innar né hægri­st­jórna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár