Sjónarmið ráðherra á skjön við lögskýringargögn og mat Hæstaréttar

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra full­yrti að dóm­nefnd sem metur hæfni umsækj­enda um emb­ætti hér­aðs­dóm­ara hefði „ekk­ert með sjálf­stæði dóm­stóla að gera“.

Sjónarmið ráðherra á skjön við lögskýringargögn og mat Hæstaréttar

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra lítur svo á að dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti og störf hennar hafi ekk­ert með sjálf­stæði dóm­stóla að gera. 

„Sjálf­stæði dóm­stól­anna varðar ekki vinnu nefnd­ar­innar. Þessi nefnd er sjálf­stæð stjórn­sýslu­nefnd og hún hefur ekk­ert með sjálf­stæði dóm­stóla að gera. Sjálf­stæði dóm­stól­anna er tryggt með öðrum hætti, eins og í stjórn­ar­skrá með því t.d. að það er ekki hægt að víkja dóm­urum frá störfum, ráð­herrar getur ekki veitt nein fyr­ir­mæli til dóm­ara og dóm­arar eiga bara að dæma eftir lög­unum. Þannig er sjálf­stæði dóm­ara tryggt,“ sagði ráð­herra í Kast­ljósi í gær­kvöldi.

Sjón­ar­miðin sem Sigríður lýsti ríma illa við álit Hér­aðs­dóms Reykja­víkur og Hæsta­réttar Íslands sem fram koma meðal ann­ars í nýlegum dómum um lög­brot dóms­mála­ráð­herra og Alþingis við skipun dóm­ara við Lands­rétt. Þá hafði verið gengið fram­hjá mati dóm­nefndar og ein­stak­lingar skip­aðir við dóm­stól­inn með ólög­mætum hætti, án full­nægj­andi rann­sóknar í sam­ræmi við ákvæði 10. gr. stjórn­sýslu­laga.

Í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem kveð­inn var upp þann 15. sept­em­ber 2017 er bent á að lög­gjöf um til­vist og störf dóm­nefnda til að meta hæfni umsækj­anda um dóm­ara­emb­ætti hafi, allt frá því að ákvæði um slíkar dóm­nefndir voru fyrst lög­fest árið 1989, helg­ast af því mark­miði að „styrkja sjálf­stæði dóm­stól­anna og auka traust almenn­ings á því að dóm­arar séu óháðir hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds­ins“. 

Að sama skapi benti Hæsti­réttur Íslands á, þann 19. des­em­ber 2017, að reglur um dóm­nefnd til að meta hæfni umsækj­enda um dóm­ara­stöður eiga rætur að rekja til laga­setn­ingar sem hafði að mark­miði að „styrkja sjálf­stæði dóm­stóla og auka traust almenn­ings á því að dóm­arar væru óháðir hand­höfum fram­kvæmda­valds“.

Loks má nefna að í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varpi Rögnu Árna­dóttur, fyrr­ver­andi dóms­mála- og mann­réttinda­ráð­herra, til laga um breyt­ingar á dóm­stóla­lögum sem sam­þykkt voru á Alþingi þann 19. maí 2010 og fólu í sér breytta skipun dóm­nefndar og aukið vægi hennar, er lögð sér­stök áhersla á að „styrkja [þurfi] stöðu og sjálf­stæði dóm­stól­anna og tryggja sem best að þeir verði óháðir hinum tveimur þáttum rík­is­valds­ins sem þeir hafa eft­ir­lit með“. 

Í við­tal­inu í Kast­ljósi var rætt um aðdrag­anda og skipun dóm­ara við Lands­rétt. Áréttaði Sigríður Andersen að hún væri ósam­mála þeirri nið­ur­stöðu Hæsta­réttar að hún hefði brotið stjórn­sýslu­lög með því að víkja frá mati dóm­nefndar og skipa dóm­ara án full­nægj­andi rann­sóknar. „Að mínu mati gerði ég ekki annað síð­asta sumar en að starfa sam­kvæmt gild­andi lögum,“ sagði Sigríður sem þó tók fram að dóm­ur­inn hefði verið sér áfall.

Eins og Stundin fjall­aði ítar­lega um í gær á Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, settur dóms­mála­ráð­herra, nú í deilum við dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­stöður. Símon Sig­valda­son, dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, sagði í sam­tali við Stundina í vik­unni að frek­ari tafir á skipun dóm­ara gætu valdið veru­legri röskun á starf­semi rétt­ar­ins.

Uppfært kl. 21:30

Nokkrum klukku­stundum eftir að frétt Stund­ar­innar birt­ist steig Ingi­björg Þor­steins­dóttir, for­maður Dóm­ara­fé­lags Íslands, fram í kvöld­fréttum RÚV og sagð­ist hafa hrokkið við þegar hún heyrði Sigríði halda því fram að dóm­nefndin hefði ekk­ert með sjálf­stæði dóm­stóla að gera, enda væri full­yrð­ingin kol­röng. „Henni er ætlað að tryggja það að valið fari fram á fag­legum for­sendum og ég trúi því varla að ráð­herra sé þess­arar skoð­unar,“ sagði Ingi­björg sem jafn­framt gagn­rýndi fram­göngu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar setts dóms­mála­ráð­herra gagn­vart dóm­nefnd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár