„Þannig að fyrirtækið skuldar mér helling af peningum?“

„Skipu­lagður þjófn­aður af launum starfs­fólks­ins“ er eitt af við­fangs­efnum vinnu­staða­eft­ir­lits stétt­ar­fé­lag­anna. Blaða­maður fylgdi sér­fræð­ingum VR og Eflingu inn á vinnu­staði til að ræða við starfs­fólk og upp­ljóstra um kjara­brot.

„Þannig að fyrirtækið skuldar mér helling af peningum?“
Frá vinnu­stað­ar­eft­ir­liti VR Vinnu­stað­ar­eft­ir­litið er hér á ferð á veit­inga­stað í borg­inni. Rétt er að taka fram að ekk­ert athuga­vert og engin rétt­inda­brot fund­ust á staðnum. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við erum frá ASÍ og vinnu­staða­eft­ir­lit­inu, og við viljum sjá vinnu­staða­skír­teini,“ segir Hermann Vestri Guð­munds­son, for­stöðu­maður vinnu­staða­eft­ir­lits VR. Ung afgreiðslu­stúlka stífnar upp þegar hún heyrir þetta. „Ha, eigum við að vera með þannig?“ spyr hún sjá­an­lega skelkuð. Hermann jánkar og segir að allir svona vinnu­staðir eiga að eiga til slík skír­teini fyrir starfs­fólk sitt sam­kvæmt lögum frá 2010.

Stúlkan stígur afsíðis og kemur aftur með skír­teini fyrir starfs­menn sem vinna ekki lengur í sjopp­unni. „Þessi skír­teini voru útbúin þegar ég kíkti hingað síð­ast,“ segir Kristinn Örn Arnarson, eft­ir­lits­maður Eflingar, sem er með í för. Þegar þeir sjá síðan rekstr­ar­kenni­tölu stað­ar­ins reka þeir upp stór augu, því það er komin ný kennitala á sölu­turn­inn.

Þetta er fyrsta heim­sókn dags­ins, og Hermann og Kristinn eru strax búnir að sjá þrjú merki um að ekki sé allt með felldu.

Efna­hagur Íslands er aftur í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár