Nýr sjávarútvegsráðherra var stjórnarformaður Samherja og vann hjá útgerðinni í þinghléum

Kristján Þór Júl­í­us­son, nýskip­aður sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, hefur náin tengsl við stærsta útgerð­ar­fé­lag lands­ins, Samherja. Hann var stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins og vann hjá því sem sjó­maður sam­hliða þing­mennsku fyrir nokkrum árum.

Nýr sjávarútvegsráðherra var stjórnarformaður Samherja og vann hjá útgerðinni í þinghléum
Stjórn­ar­for­maður og starfs­maður Kristján Þór Júl­í­us­son hefur unnið fyrir Samherja sem stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins og eins sem sjó­maður á mak­ríl­veiðum. Mynd: Pressphotos.biz - (GeiriX)

Kristján Þór Júl­í­us­son, nýskip­aður land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, hefur gegnt stöðu stjórn­ar­for­manns útgerð­ar­ris­ans Samherja auk þess sem hann hefur unnið hjá fyr­ir­tæk­inu sam­hliða þing­mennsku sinni í þing­hléum.

Samherji er stærsti hags­mun­að­il­inn í íslenskum sjáv­ar­út­vegi, lang stærsta útgerð­ar­fé­lag lands­ins og eitt stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. Akur­eyska útgerðin er stærsti kvóta­eig­andi á Íslandi þegar kvóti allra útgerða sem félagið á og á í er lagður saman.

Kristján Þór fer nú með ráð­herra­vald í mála­flokknum sem snýr að sjáv­ar­út­veg­inum sem slíkum þar sem Samherji hefur svo mik­illa hags­muna að gæta. 

Varð formaður í kjölfar Guggumálsins

Kristján Þór, sem fæddur er á Dalvík, var kjör­inn stjórn­ar­for­maður Samherja árið 1996 þegar hann gegndi starfi bæj­ar­stjóra á Ísafirði. Þegar Kristján var bæj­ar­stjóri á Ísafirði var tog­ar­inn Guðbjörg, eða Guggan, seldi til Samherja þegar útgerðin Hrönn rann inn í akur­eyrsku útgerð­ina í árs­byrjun 1997.

Við það til­efni sagði Þorstein Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, eina fræg­ustu setn­ingu íslenskrar útgerð­ar­sögu þegar hann kvað togar­ann áfram verða gerðan út frá Ísafirði í nán­ustu fram­tíð: „Guggan verður áfram gul og gerð út frá Ísafirði.“ Kristján Þór var stjórn­ar­for­maður Samherja til árs­ins 1998. 

Sama ár, 1998,  varð Kristján bæj­ar­stjóri á Akureyri og árið 1999 var Guð­björgin seld til Þýska­lands og vakti salan mikla reiði á Ísafirði. Um þetta sagði Halldór Hall­dórs­son, eft­ir­maður Krist­jáns Þórs meðal ann­ars: „Þeir gáfu þá yfir­lýs­ingu á fundi með full­trúa bæj­ar­stjórnar á sínum tíma, og það kom í heima­fjöl­miðlum að engin breyt­ing yrði. Guð­björgin yrði áfram Guð­björgin og gerð út frá Ísafirði, eða eins og þeir sögðu: "Guggan verður áfram gul og gerð út frá Ísafirði." Það gleymd­ist að taka það fram að hún myndi heita Hannover, gerð út frá Þýska­landi og yrði lengd um 18 metra."

Kristján Þór var bæj­ar­stjóri á Akureyri þar til hann sett­ist á þing árið 2007. 

Starfaði fyrir Samherja

Kristján Þór hélt hins vegar áfram að vinna fyrir Samherja sem sjó­maður í þing­hléum eftir að hann sett­ist á Alþingi. Sumrin 2010 og 2012 fór Kristján Þór í túra á mak­ríl­veiðar á tog­ara Samherja, Vilhelm Þor­steins­syni EA, og sagði af því til­efni í sam­tali við DV í júlí 2012: „Ég get alveg vottað með fullri vissu að sam­starfsvilj­inn, sam­starfið og sam­þætt­ingin er til muna betri í þess­ari áhöfn en á þeim vinnu­stað sem ég hef verið á síð­ast­liðin fjögur ár,“ sagði Kristján Þór.

„Ég get alveg vottað með fullri vissu að sam­starfsvilj­inn, sam­starfið og sam­þætt­ingin er til muna betri í þess­ari áhöfn en á þeim vinnu­stað sem ég hef verið á síð­ast­liðin fjögur ár“

Ekki liggur fyrir hvort Kristján Þór hefur farið aftur á sjó­inn með Samherja frá árinu 2012 en hann stað­festi við DV að hafa einnig farið um sum­arið 2010. 

Málefni Samherja, meðal ann­ars kvóta­málin, heyra nú undir Kristján Þór Júl­í­us­son í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ný ríkisstjórn

Guðlaugur segist hafa sóst sérstaklega eftir umhverfisráðuneytinu
FréttirNý ríkisstjórn

Guð­laugur seg­ist hafa sóst sér­stak­lega eftir umhverf­is­ráðu­neyt­inu

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nýr umhverf­is­ráð­herra, seg­ist hafa sóst eftir því sér­stak­lega að fá að taka við ráðu­neyti umhverfis- og lofts­lags­mála þegar fyrir lá hvaða ráðu­neyti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi fá. Hann seg­ist ekki hafa sóst sér­stak­lega eftir því að verða utan­rík­is­ráð­herra áfram.
Áralangar deilur innan fjölskyldu Ásmundar Einars hafa ratað til lögreglunnar
FréttirNý ríkisstjórn

Ára­langar deilur innan fjöl­skyldu Ásmundar Einars hafa ratað til lög­regl­unnar

Margra ára deilur hafa geisað í fjöl­skyldu félags­mála­ráð­herra, Ásmundar Einars Daða­sonar, um jörð­ina Lamb­eyrar í Dölum. Ásmundur Einar bjó á jörð­inni áður en hann sett­ist á þing. Faðir hans, Daði Ein­ars­son, rak bú á jörð­inni sem varð gjald­þrota og missti hann í kjöl­farið eign­ar­hlut sinn í jörð­inni yfir til systk­ina sinna sjö. Bróðir Daða vænir feðgana um inn­brot í íbúð­ar­hús á Lamb­eyrum sem deilt er um.
Hvaða „pólitísku sýn um örlög“ Íslands hafa Vinstri græn?
Ingi Freyr Vilhjálmsson
PistillNý ríkisstjórn

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Hvaða „póli­tísku sýn um örlög“ Íslands hafa Vinstri græn?

Stjórn­mála­flokkar verða að hafa skýra sýn og stefnu um það hvernig land þeir vilja búa til og hvernig sam­fé­lag þeir vilja ekki að verði að veru­leika. Með ákvörðun sinni um stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn er orðið alveg óljóst hvert Vinstri græn vilja stefna við mótun íslensks sam­fé­lags, segir Ingi Vil­hjálms­son í pistli.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár