Auðvitað sleit Framsókn. Auðvitað átti Kata Jak aldrei að verða forsætisráðherra. Auðvitað áttu Píratar aldrei að fá sæti í ríkisstjórn. Auðvitað átti VG aldrei að verða leiðandi afl. Auðvitað fáum við aldrei nýja stjórnarskrá. Auðvitað verða aldrei aftur neinar þjóðaratkvæðagreiðslur.
Því Sigurður Ingi ræður ekki eigin flokki. Þar er annar sem ræður. Það er sjálfur myrkrahöfðinginn í Skagafirði,
Auðvitað ráða gömlu tröllin ennþá öllu á Íslandi, tröllin bakvið tjöldin.
„Davíð hringir í Lilju Alfreðs á hverjum degi,“ segja þingmenn í prívat
Þess vegna eru íslensk stjórnmál bara leikrit. Leikrit sem enginn skilur, fullt af óskiljanlegum setningum eins og „okkur fannst þessi meirihluti of tæpur en töldum þó ekki rétt að fá fleiri flokka að viðræðunum.“
Þurfum við ekki öll út á svalir að garga smá?
Sjórinn á Sjalla, landið á Framsókn. Við hin eigum okkur víst bara sjálf. En það eru ekki sjómenn og bændur sem eiga flokkana tvo, heldur hagsmunirnir, hagsmunir nokkurra ríkra og roskinna karla. Og þeir munu aldrei leyfa breytingar á sínum kerfum. Hér eru milljarðar í húfi. Milljarðar. Enda var öllu til kostað. Skrímsladeild Valhallar var kölluð út á neyðarvakt. Nafnlausir netsnillar sátu þar í felum bakvið skjái sína nótt sem nýtan dag og létu öll sætustu skrímslin í flokknum segja sér fyrir verkum, þau Óla Björn, Andrés, HHG, Arnalds & co, þetta gamla góða teymi úr forsetabaráttu Davíðs, með smá liðsauka. Og þá var gott að geta seilst í gamla fæla sem Kjartan Gunnarsson geymir í forláta skjalaskápum í flokksástarhrei
Varla hefur okkar fólk geð í sér til að mynda stjórn með þeim strengja-Gosa?
„Þegar milljarðar eru í húfi er ekki pláss fyrir neina tilraunastarfsemi, engin frávik.“
Þegar milljarðar eru í húfi er ekki pláss fyrir neina tilraunastarfsemi, engin frávik. Við hin sem fylgjumst með pólitík og styðjum flokkana okkar erum bara börn í samanburðinum við hagsmunaverðina, sjallaskrímslin og allt þeirra fé. Þeir sitja ekki bara og horfa á sjónvarpið á meðan vinstriflokkarnir ræða stjórnarmyndun. Þeir búa til fréttir, um Pírata og ráðherrakostnað, eða senda sína Moggablaðamenn á reynsluminnst
Við erum nefnilega ekki að spila sama leikinn, við erum ekki að díla við neina drengi, við erum að tala um tröll. Maður heyrir þau hlæja um leið og okkar góðu vonir sigla í strand. Við erum svo mikil börn, við látum þetta yfir okkur ganga, ár eftir ár, áratug eftir áratug. Við leyfum þessum öflum að halda sínu tröllataki á þessu blessaða þjóðfélagi okkar á meðan við dreifum okkur í enn fleiri flokka og okkar bestu synir og bestu dætur af Twitterkynslóð djóka sig inn í skoðanaleysið eða máta sig upp við Alþýðufylkinguna í skemmti
Hér mun því aldrei breytast neitt. Ég meina, hér er ekki einu sinni hægt að breyta klukkunni og sjá þó allir hversu vitlaus hún er. Hér bara má engu breyta. Landið er í tröllahöndum og mun ekki losna fyrr en … ja, ekki áður en við deyjum allavega. Sjálfur er ég að nálgast sextugt (og búinn að skrifa hundrað og tíu svona greinar) og enn eru þeir geðstirðu valdasjúklingar, Davíð Oddsson og Þórólfur hinn svarti, við völd, eins og þeir hafa verið frá því maður fékk pólitíska vitið. Það skiptir engu þótt nýjar kynslóðir komi fram á sviðið, kynslóðir sem eru jafnvel áratugum yngri en maður sjálfur, þær láta samstundis bræða sig í sama gamla mótið. Því allir helstu spillingarspaðar fortíðarinnar áttu víst börn sem nú eru orðin að illa spilltum stjórnmálamönnum, þetta endurnýjar sig bara samkvæmt því ofuríslenska lögmáli: Það er vont en það venst.
„Það sem okkur vantar hér er að efla traust á íslenskum stjórnmálum,“ sagði Lilja í morgunútvarpinu í gærm
Og já já, sumir trúa því jafnvel að réttast sé að setjast í stjórn með þessu liði, þessu fólki sem lætur stjórnast af tröllunum bakvið tjöldin. Ég segi nei. Ég segi aldrei. Það er ekkert við þetta fólk að tala. Hversvegna ættum við að setjast í stjórn með flokki sem kóaði með barnaníðingi í þágu fjölskyldu formannsins, setti lögbann á fjölmiðla í miðri kosningabaráttu, stóð fyrir svívirðilegri og „nafnlausri“ áróðursherferð í kosningunum (sem fjármögnuð var framhjá lögum um stjórnmálaflokka) og hefur formann sem ítrekað hefur logið að þjóðinni um gerðir sínar, faldi viðkvæmar skýrslur á viðkvæmum tímum, notaði stjórnmálatengsl sín til að bjarga viðskiptagróða fimm mínútum fyrir Hrun, og var að auki í Panamaskjölunum?
Auðvitað látum við það eiga sig, auðvitað komum við ekki nálægt slíku.
Látum þá frekar körlum skreytta hægriblokkina tromma fram með alla sína drauga, öll sín tröll og allar sínar brúður, alla sína akþunnu og geispandi Brynjara, alla sína rasísku Ásmunda, allar sínar stálhjörtuðu Sigríðar, alla sína Panamahatta og líka svo sinn heimsfræga Sigmund. Látum þau lyfta honum pundþungum upp í ráðherrastólinn á ný, Ís
Tröllin munu hvort eð er stjórna áfram, með eða án okkar. Það breytir engu hvort við komumst í bland við þau eða ekki.
Á meðan þau tóra verða ælan og öskrið okkar eina skjól.
Athugasemdir