Mælistikan á lofti

Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Nýtt eld­hús eftir máli eftir Friðgeir Ein­ars­son, sem sýnt er í Kassanum í Þjóð­leik­hús­inu.

Mælistikan á lofti
Leikhús

Nýtt eld­hús eftir máli

Höfundur Friðgeir Einarsson
Leikstjórn Björn Thors
Leikarar Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Salka Gústafsdóttir og Ólafur Ásgeirsson

Leikmynd og búningar: Elín Hansdóttir og Filippía I. Elísdóttir

Sviðshreyfingar: Margrét Bjarnadóttir

Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason

Tónskáld: Örvar Smárason

Hljóðhönnun: Þóroddur Ingvarsson

Þjóðleikhúsið
Niðurstaða:

Grunnteikningin er góð en framkvæmdinni er ábótavant.

Gefðu umsögn

Daníel á sér draum um eyju, eld­hús­eyju með borð­plötu úr marm­ara. Nýtt eld­hús eftir máli eftir Friðgeir Ein­ars­son birt­ist leik­hús­á­horf­endum fyrst á Gula dregl­inum, leik­rita­há­tíð Þjóð­leik­húss­ins, árið 2025. Þá var leik­ritið í vinnslu en fram­kvæmdum lauk með frum­sýn­ingu í Kassanum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, fyrsta frum­sýn­ing Þjóð­leik­húss­ins á leik­ár­inu. Leik­ritið er sömu­leiðis komið út á bók sem er fagn­að­ar­efni.

Síð­ast­liðin fimmtán ár hefur Friðgeir komið víða við bæði á leik­sviði og í bóka­út­gáfu. Höf­unda­verk hans læð­ast oftar en ekki á mörkum grát­bros­legs raun­veru­leika, þar sem hið ofur­venju­lega er skyggt með súr­r­eal­ískum skvettum. Daglegt amstur mætir óvæntum atburðum eða ástandi. Hér fetar Friðgeir svip­aðar slóðir og sækir sér inn­blástur frá einum af þekkt­ustu höf­undum þjóð­ar­innar.

Óhjá­kvæmi­legt er að hugsa um þetta nýja leik­verk Frið­geirs án þess að hugsa til Svövu Jak­obs­dóttur og smá­sögu hennar, Eldhús eftir máli sem birt­ist fyrst í Lesbók Morg­un­blaðs­ins á aðfanga­dag árið 1966 og í smá­sögu­safn­inu Veisla undir grjót­vegg …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár