Ætla að setja lög á flugvirkja

Alþingi kemur saman til fundar í dag til að afgreiða frum­varp Eyjólfs Ármanns­sonar ráð­herra um lög sem stöðvar verk­fall flug­virkja. Verk­fallið hófst á mið­nætti og hefur kyrr­sett allar flug­vélar Icelandair.

Ætla að setja lög á flugvirkja

Alþingi kemur saman í dag til að fjalla um og sam­þykkja frum­varp Eyjólfs Ármanns­sonar inn­við­a­ráð­herra sem stöðvar verk­fall flug­virkja Icelandair. Verk­fallið hófst á mið­nætti og hefur fjöl­mörgum flug­ferðum félags­ins verið aflýst það sem af er degi.

Kjara­deildur flug­virkja og Icelandair hafa staðið um nokk­urt skeið og hefur lítið þok­ast í átt að lausn. Samn­ings­að­ilar hafa aðeins átt óform­lega fundi síð­ustu daga og ekki þótt ástæða til að boða til form­legs fundar í deil­unni.

„Rík­is­stjórnin afgreiddi á fundi sínum í morgun frum­varp um frestun verk­falls­ins. Ég mun leggja fram frum­varp seinna í dag,“ sagði Eyjólfur í við­tali við RÚV að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi sem boðað var til í dag.

Hann sagði jafn­framt að Kristrún Frosta­dóttir hefði þegar rætt við for­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins, og þing­flokks­for­mann Mið­flokks­ins, um frum­varpið.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu