„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“

Yfir­læknir og deild­ar­stjóri á Grens­ás­deild segja ungt fólk mæta fjölda áskor­ana eftir útskrift af deild­inni. Dæmi séu um að ungt fólk sé sent á elli­heim­ili eða bíði í lengri tíma eftir þjón­ustu. Heilaskaðar hjá ungu fólki geta reynt á maka, fjöl­skyldur og nær­sam­fé­lagið en gef­andi sé að sjá fólk halda aftur út í lífið eftir vel heppn­aða end­ur­hæf­ingu.

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“
Magda­lena Ásgeirs­dóttir og Guðrún Braga­dóttir Yfirmenn á Grens­ás­deild segja að í flóknum málum þurfi að hefja sam­talið við kerfið á byrj­un­ar­reit.

Kerfið er illa við­búið málum sem snúa að ungu fólki með mænu- eða heilaskaða. Dæmi eru um að ungt fólk sé sent á elli­heim­ili eða bíði lengi inni á heil­brigð­is­stofn­unum þar sem sveit­ar­fé­lög eru lengi að mæta þjón­ustu­þörf þeirra eftir útskrift.

Magda­lena Ásgeirs­dóttir, yfir­læknir Grens­ás­deildar, og Guðrún Braga­dóttir, deild­ar­stjóri end­ur­hæf­ing­ar­deildar, segja að sér­stak­lega flókin mál lendi á vegg í kerf­inu.

„Sveit­ar­fé­lögin eru alltaf jafn óund­ir­búin ef eitt­hvað kemur upp á hjá fólki á vinnu­bærum aldri,“ segir Magda­lena. „Þegar fólk er ungt eru ekki aðrar hug­myndir en að setja það á hjúkr­un­ar­heim­ili. En hvert ann­ars? Sem betur fer eru ekki svo margir ungir í þessum aðstæðum en það eina sem er til í okkar sam­fé­lagi eru hjúkr­un­ar­heim­ilin þar sem flestir eru orðnir ríg­full­orðnir sem betur fer.“

Guðrún og Magda­lena segja dæmi vera um að ungt fólk hafi verið hýst á hjúkr­un­ar­heim­ilum fyrir aldr­aða eftir slík áföll. „Það er svo mis­mun­andi eftir …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár