Fjárfestir í foreldrahúsum

Markús Máni Skúlason er 24 ára og því yngsti karl­mað­ur­inn á hátekju­list­anum í ár. Hann byrj­aði að fjár­festa 18 ára og segir að á yngri árunum sé mik­il­vægt að „vera dug­legur að end­ur­fjár­festa“ og ekki eyða því sem maður hefur safnað.

Fjárfestir í foreldrahúsum
Yngstur Markús er 24 ára og hefur gengið vel að fjár­festa. Mynd: Arion banki

„Það er bara gaman og kemur smá á óvart,“ segir hinn 24 ára Markús Máni Skúlason þegar blaða­maður tjáir honum að hann sé yngsti karl­maður hátekju­list­ans í ár. „[Það er] frekar athygl­is­vert. Ég var ekki beint að gera ráð fyrir því.“ 

Markús er fæddur árið 2002 og er með 50.673.146 krónur í árs­tekjur. Hann prýðir því 1.768. sæti list­ans.

„Þetta er sem sagt frá hluta­bréfa­við­skiptum. Ég hef haft áhuga á þeim í mjög langan tíma og hef verið að fjár­festa síðan ég var 18 ára. Það hefur gengið ágæt­lega,“ útskýrir hann. Markús byrj­aði fjár­fest­inga­feril sinn á því að nota upp­safn­aðan sparnað frá æsku- og ung­lings­ár­unum en í dag starfar hann sem sér­fræð­ingur við hluta­bréfa­grein­ingu hjá Arion banka. „Þetta er mitt helsta áhuga­mál,“ lýsir hann. Spurður hvaðan fjár­mála­á­hug­inn sé sprott­inn seg­ist Markús ekki viss. Í raun telji hann fjár­fest­ingar helst vera góða leið „til þess að græða pen­ing, ávaxta …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Petrína Karlsdóttir skrifaði
    hvernig er þessi hátekjulisti valinn, er fólk valið af handahófi?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár