Ágreiningur innan ESB um refsiaðgerðir gegn rússneskum auðmönnum

ESB-ríkin reyna að ná sam­komu­lagi um fram­leng­ingu refsi­að­gerða gegn Rúss­landi áður en þær renna út í kvöld. Lettland leggst gegn því að tveir rúss­neskir auð­menn verði teknir af refsi­að­gerða­list­anum.

Ágreiningur innan ESB um refsiaðgerðir gegn rússneskum auðmönnum
Á list­anum Alisher Usmanov er rúss­nesk-úsbekskur millj­arða­mær­ingur sem hefur verið á refsi­að­gerða­lista ESB frá því skömmu eftir inn­rás Rúss­lands í Úkraínu árið 2022. Frakk­land og Slóvakía hafa kraf­ist þess að hann verði tek­inn af list­anum. Mynd: IGOR IVANKO / AFP

Ríki Evr­ópu­sam­bands­ins hófu í morgun að nýju við­ræður í kapp­hlaupi við tím­ann um fram­leng­ingu refsi­að­gerða gegn Rúss­landi, eftir að full­trúar Lett­lands komu í veg fyrir sam­komu­lag um að taka tvo rúss­neska auð­menn af refsi­að­gerða­lista sam­bands­ins.

Ríkin 27 virt­ust hafa náð sam­komu­lagi um að aflétta fryst­ingu eigna og ferða­banni á rúss­nesku kaup­sýslu­menn­ina Alisher Usmanov og Mikhail Fridman eftir kröfur Frakk­lands, Lúx­em­borgar og Slóvakíu.

Fyr­ir­huguð aflétt­ing, sem stjórn­völd í Úkraínu hafa gagn­rýnt harð­lega, var hluti af mála­miðlun um að fram­lengja refsi­að­gerðir gegn nærri 3.000 öðrum ein­stak­lingum og lög­að­ilum vegna stríðs­ins í Úkraínu um þrjú ár. Frestur til að fram­lengja aðgerð­irnar rennur út klukkan 22 að íslenskum tíma í kvöld og gætu þær ann­ars fallið úr gildi.

Sam­komu­lagið virt­ist vera í höfn en Lettar settu sig óvænt upp á móti því seint í gær­kvöldi.

„Afstaða lett­nesku rík­is­stjórn­ar­innar hefur verið óbreytt. Refsi­að­gerðir ESB gegn Rúss­landi verður að herða, ekki …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár