Flugvirkjar aflýsa verkfalli – samið um fjögurra vikna viðræður

Flug­virkja­fé­lag Íslands hefur aflýst verk­falli flug­virkja hjá Icelandair sem hófst á mið­nætti. Samn­inga­nefndir ætla að nýta næstu fjórar vikur til við­ræðna undir verk­stjórn rík­is­sátta­semj­ara. Fyrr í morgun hafði rík­is­stjórnin ákveðið að leggja fram frum­varp á Alþingi til að stöðva verk­fallið.

Flugvirkjar aflýsa verkfalli – samið um fjögurra vikna viðræður
Á jörðu Engar flug­vélar Icelandair hafa tekið á loft í morgun eftir að verk­fall flug­virkja tók gildi á mið­nætti. Mynd: Golli

Flug­virkja­fé­lag Íslands, FVFÍ, og Icelandair hafa kom­ist að sam­komu­lagi um að yfir­stand­andi verk­falli félags­ins verði aflýst. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu þeirra.

Verk­fallið hófst á mið­nætti og hafði fjöl­mörgum flug­ferðum Icelandair verið aflýst það sem af var morgni. Kjara­deila flug­virkja og Icelandair hefur staðið um nokk­urt skeið og lítið þok­ast í átt að lausn síð­ustu daga.

„Allt flug er því á áætlun seinni­part­inn í dag frá Keflavík og Reykja­vík.“

Fjórar vikur til samninga

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu Icelandair og FVFÍ segir að ákvörð­unin um að aflýsa verk­fall­inu hafi verið tekin til að forða frekara tjóni fyrir fyr­ir­tækið, við­skipta­vini, starfs­fólk og aðra sem málið varðar.

Samið hefur verið um að nýta næstu fjórar vikur til mark­vissra við­ræðna sam­kvæmt verk­stýrðri við­ræðu­á­ætlun rík­is­sátta­semj­ara. Mark­miðið sé að ljúka samn­inga­gerð um nýjan kjara­samn­ing.

Á þeim tíma verði unnið að lausnum á þeim …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár