Hafnar því að flokkurinn sé að „hlaupast undan þessari fjármálaáætlun“

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra segir flokk­inn kann­ast vel við fjár­mála­á­ætlun frá­far­andi rík­is­stjórnar og að flokk­ur­inn sé ekki á flótta undan henni þrátt fyrir kosn­inga­lof­orð sem stang­ast á við útgjalda- og tekju­ramma áætl­un­ar­innar.

Hafnar því að flokkurinn sé að „hlaupast undan þessari fjármálaáætlun“

Sigríður Andersen, dóms­mála­ráð­herra og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, hafnar því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé að hlaup­ast undan fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar með því að lofa bæði 100 millj­arða við­bót­ar­út­gjöldum til inn­viða­upp­bygg­ingar og stór­felldum skatta­lækk­unum á næsta kjör­tíma­bili.

„Það er eng­inn að hlaup­ast undan þess­ari fjár­mála­á­ætlun,“ sagði hún í kosn­inga­þætti Stöðvar 2 í gær eftir að Svandís Svav­ars­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, hafði bent á að kosn­inga­lof­orð stjórn­ar­flokk­anna væru á skjön við útgjalda- og tekju­ramma fjár­mála­á­ætl­un­ar­innar sem stjórn­ar­meiri­hlut­inn sam­þykkti fyrr á árinu. Sigríður sagði Sjálf­stæð­is­flokk­inn kann­ast vel við fjár­mála­á­ætl­un­ina og ekki vera á flótta undan þeirri fram­tíð­ar­sýn sem þar birt­ist. 

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, starf­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og odd­viti Við­reisnar í Kraganum, sagði í við­tali við Stundina á mánu­dag að lof­orðin um 100 millj­arða útgjalda­aukn­ingu og stór­felldar skatta­lækk­anir væru til marks um örvænt­ingu og að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri að „fara fram úr sér í kosn­inga­bar­áttu“. 

Þor­steinn Víglunds­son, sam­ráð­herra hennar í starfs­stjórn­inni, hefur tekið tekið í sama streng. „Flokk­ur­inn hlýtur að þurfa að útskýra hvar eigi að skera niður í rík­is­rekstr­inum til að fjár­magna þetta. Það er aug­ljóst að það er ekki svig­rúm fyrir þessar skatta­lækk­anir í nýsam­þykktri rík­is­fjár­mála­á­ætlun sem flokk­ur­inn stóð að. Varla á að skera niður í heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerf­inu til að fjár­magna skatta­lækk­anir Sjálf­stæð­is­flokks­ins?“ skrif­aði hann nýlega á Facebook. 

Stefna Bjartrar fram­tíðar í efna­hags­málum er óljós en bæði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Viðreisn hafa kynnt kosn­inga­lof­orð sem munu fela í sér breyt­ingar á gild­andi fjár­mála­á­ætlun. Viðreisn vill aðeins 11,5 millj­arða útgjalda­aukn­ingu til við­bótar við aukn­ingu fjár­mála­á­ætl­unar sem renni til heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mála, mennta­kerf­is­ins, byggða­mála og lög­gæslu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn boðar hins vegar 100 millj­arða útgjalda­aukn­ingu vegna inn­viða­upp­bygg­ingar, fjár­magn­aða með ein­skiptis­tekjum í formi óreglu­legra arð­greiðslna vegna lækk­unar eig­in­fjár við­skipta­bank­anna, sam­hliða tug­millj­arða skatta­lækk­ana á fólk og fyr­ir­tæki. Vinstri­flokk­arnir boða einnig tug­millj­arða útgjalda­aukn­ingu og vilja fjár­magna hana með auk­inni gjald­töku af auð­lindum, auknum álögum á hátekju- og stór­eigna­fólk og arð­greiðslum úr bönk­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár