Ráðherrar Viðreisnar töldu mál upplýst og fullskoðuð þótt ráðuneytið hefði ekki veitt þinginu umbeðin gögn

Formaður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar segir skoðun á emb­ætt­is­færslum ráð­herra í mál­unum sem urðu til þess að rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu var slitið vera lokið.

Ráðherrar Viðreisnar töldu mál upplýst og fullskoðuð þótt ráðuneytið hefði ekki veitt þinginu umbeðin gögn

Dóms­mála­ráðu­neytið afhenti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis í dag gögn sem óskað var eftir um máls­með­ferð ráðu­neyt­is­ins ímál­unum sem urðu til þess að rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu var slitið.

Uppfært kl. 22:30: Í upp­haf­legri útgáfu fréttar kom fram að gögnin hefðu ekki verið afhent nefnd­inni. Það byggði á upp­lýs­ingum sem Stundin hafði þá fengið frá nefnd­ar­mönnum. Gögnin bár­ust hins vegar í dag og hefur frétt­inni verið breytt í sam­ræmi við það.

Farið var fram á afhend­ingu gagn­anna að frum­kvæði Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­konu Pírata, með stuðn­ingi Jóns Þórs Ólafs­sonar og Svan­dísar Svav­ars­dóttur, vara­for­manns nefnd­ar­innar. Var meðal ann­ars óskað eftir minn­is­blöðum og lista yfir máls­gögn er varða upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­mann­anna Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar og Roberts Downey auk dag­bók­ar­færslna eða sam­bæri­legra gagna sem stað­festu sím­tal Sig­ríðar And­er­sen dóms­mála­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra um að faðir Bjarna hefði skrifað með­mæla­bréf fyrir Hjalta.

Stundin sendi ráðu­neyt­inu einnig ítar­lega upp­lýs­inga­beiðni þann 29. sept­em­ber á grund­velli upp­lýs­inga­laga. Enn hafa engin við­brögð komið frá ráðu­neyt­inu þrátt fyrir skýr ákvæði upp­lýs­inga­laga um að ef upp­lýs­inga­beiðni hafi ekki verið afgreidd innan sjö daga beri stjórn­völdum að skýra frá ástæðum taf­anna og hvenær ákvörð­unar sé að vænta. Aðeins fáeinar vikur eru síðan úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að þeirri nið­ur­stöðu að sama ráðu­neyti hefði gengið lengra í upp­lýs­inga­leynd en lög heim­ila þegar fjöl­miðlum og brota­þolum var synjað alfarið um upp­lýs­ingar um upp­reist æru Roberts Downey.

Tveir ráðherrar fullyrða að málinu sé lokið og allt upplýst

Tveir ráð­herrar Við­reisnar hafa haldið því fram und­an­farna daga að emb­ætt­is­færslur dóms­mála­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu sem felldu rík­is­stjórn­ina hafi verið fullrann­sak­aðar og málin séu nú upp­lýst. „Við erum öll sam­mála um það,“ sagði Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar og starf­andi fjár­mála­ráð­herra, í For­ystu­sæt­inu á RÚV í gær. „Það er búið að upp­lýsa málið.“

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra, tók í sama streng í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar sem birt­ist á vefnum í morgun.

„Tel ég það vera upp­lýst að öll með­ferð máls­ins hafi verið í sam­ræmi við með­ferð sam­bæri­legra mála og tengsl eins af með­mæl­endum við þáver­andi fjár­mála­ráð­herra hafi ekki haft nein áhrif þar á svo séð verði,“ sagði hann þar.

Nefndarformaður segir málinu lokið

Jón Steindór bendir á það í svari við tölvu­pósti Stund­ar­innar að upp­lýs­inga­beiðni frá Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, sem studd var af Jóni Þór Ólafs­syni og Svandísi Svav­ars­dóttur, um máls­gögn – minn­is­blöð dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í tveimur málum er varða upp­reist æru – hafi verið send ráðu­neyt­inu. „Svar hefur ekki borist þegar þetta er ritað,“ skrifar hann.

Jón Steindór Valdi­mars­sonfor­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar

Jón telur þó að í ljósi ummæla umboðs­manns Alþingis um að ekki væri til­efni til frum­kvæð­is­rann­sóknar af sinni hálfu líti hann svo á að mál­inu sem nefndin fjall­aði um undir heit­inu upp­reist æru, reglur og fram­kvæmd, sé lokið. „Komi fram nýjar upp­lýs­ingar eða umboðs­maður Alþingis taki málið upp með ein­hverjum hætti er komin upp ný staða sem nefndin mun þurfa að taka afstöðu til þegar þar að kemur,“ segir Jón Steindór. 

Jón vísar til sam­eig­in­legrar bók­unar nefnd­ar­manna og skýrslu um málið sem var skilað fyrir þing­lok. „Nefndin fékk Umboðs­mann Alþingis á sinn fund til þess að fara yfir helstu álita­efni í sam­skiptum tveggja ráð­herra vegna upp­lýs­inga sem voru þáttur í stjórn­sýslu­með­ferð upp­lýs­inga er vörðuð til­tekið mál um upp­reist æru,“ skrifar Jón.

„Nið­ur­staða hans var skýr. Hann taldi ekki ástæðu til frum­kvæð­is­rann­sóknar af sinni hálfu. Í ljósi þess ákvað nefndin að gera sér­staka bókun um málið á fundi sínum og í fram­haldi af því að ganga frá skýrslu sinni um upp­reist æru, reglur og fram­kvæmd. Allir nefnd­ar­menn voru sam­mála bæði um bók­un­ina og skýrsl­una. Að þessu leyti er með­ferð máls­ins lokið fyrir nefnd­inni.“

Hann vitnar til orða Umboðs­manns Alþingis um að ráð­herrar séu ann­ars vegar emb­ætt­is­menn og hins vegar stjórn­mála­menn. Það kunni því að gilda mis­mun­andi sjón­ar­mið og reglur um störf þeirra og athafnir eftir því um hvort hlut­verkið er að ræða. „Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fjallar ekki um störf ráð­herra sem stjórn­mála­manna heldur emb­ætt­is­manna,“ skrifar Jón Steindór. „Póli­tíska ábyrgð bera þeir gagn­vart kjós­endum, eigin flokks­mönnum og eftir atvikum sam­starfs­flokkum sínum í rík­is­stjórn.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár