Jafnréttisráðherra telur málin sem leiddu til stjórnarslita upplýst og fullrannsökuð

„Af ofan­greindu tel ég það vera upp­lýst að öll með­ferð máls­ins hafi verið í sam­ræmi við með­ferð sam­bæri­legra mála og tengsl eins af með­mæl­endum við þáver­andi fjár­mála­ráð­herra hafi ekki haft nein áhrif þar á svo séð verði,“ segir í svari Þor­steins Víglunds­sonar við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Jafnréttisráðherra telur málin sem leiddu til stjórnarslita upplýst og fullrannsökuð

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra, telur að emb­ætt­is­færslur ráð­herra í mál­unum sem urðu til þess að rík­is­stjórnin féll hafi verið skoð­aðar með full­nægj­andi hætti. 

Ekkert bendi til ann­ars en að með­ferð mála er varða upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­mann­anna Roberts Downey og Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar hafi verið í sam­ræmi við með­ferð stjórn­valda í öðrum sam­bæri­legum málum. Þá verði ekki séð að tengsl Bene­dikts Sveins­sonar, eins af með­mæl­endum Hjalta, við Bjarna Bene­dikts­son núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafi haft nein áhrif á það hvernig stjórn­völd nálg­uð­ust málið.  

Þetta kemur fram í svari Þor­steins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. Hann telur þó að betur hefði mátt standa að upp­lýs­inga­gjöf um málin frá upp­hafi. „Mögulega hefðu mál þró­ast á annan veg ef upp­lýst hefði verið um málið strax og það kom upp í sumar,“ segir hann og bætir við: „Þá hefði farið betur að aðstand­endur hefðu strax fengið aðgang að þeim gögnum máls sem kallað var eftir en ekki hefði þurft að koma til þess að skjóta synjun ráðu­neyt­is­ins til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.“

„Gríðarleg vonbrigði hvernig fór með þessa ríkisstjórn“

Í við­tali á Sprengisandi um helg­ina harm­aði Þor­steinn að stjórn­ar­sam­starf­inu hefði verið slitið. „Það voru gríð­ar­leg von­brigði hvernig fór með þessa rík­is­stjórn og eins og hefur nú komið á dag­inn þá var þetta nú aldrei til­efni til að sprengja stjórn­ar­sam­starf. Menn þurfa að geta staðið í lapp­irnar,“ sagði hann.

Þá vís­aði hann til Hjalta- og Downey-máls­ins og sagði: „Þegar rykið var fallið og búið var að fara í gegnum það eins og við köll­uðum eftir, þá var ekk­ert til­efni í því máli til þess að fara að sprengja stjórn­ar­sam­starfið, og þar hefði BF betur mátt bíða og sjá hvernig málið væri nákvæm­lega vaxið.“

Nóttina sem rík­is­stjórnin féll, þann 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, sendi þing­flokkur Við­reisnar frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fram kom að fréttir af máls­með­ferð um upp­reist æru hefðu vakið sterk við­brögð innan flokks­ins. „Vinnu­brögð í málum af þessu tagi verða að stand­ast stranga skoðun þar sem ekk­ert er undan dregið. Það er skylda stjórn­valda gagn­vart almenn­ingi og þolendum þeirra alvar­legu glæpa sem málið varðar. Í ljósi stöð­unnar sem nú er komin upp telur þing­flokkur Við­reisnar rétt­ast að boðað verði til kosn­inga hið fyrsta.“

„Nefndin ætti að kalla eftir öllum
upp­lýs­ingum um málið og ganga úr
skugga um að allt sé uppi á borðum“

Tveimur dögum síðar sendi ráð­gjafa­ráð Við­reisnar frá sér ályktun þar sem boðuð var rann­sókn á emb­ætt­is­færslum for­sæt­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra í málnuum sem leiddu til stjórn­ar­slit­anna. Vísir.is ræddi við Þorstein Víglunds­son vegna máls­ins sem sagði flokks­menn vilja að „rann­sóknin fari fram á vett­vangi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis. Nefndin ætti að kalla eftir öllum upp­lýs­ingum um málið og ganga úr skugga um að allt sé uppi á borðum“.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd ekki fengið þær upp­lýs­ingar frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu sem nefndin kall­aði eftir seint í sept­em­ber­mán­uði að frum­kvæði Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­konu Pírata.

Nefndin hefur skilað sam­eig­in­legri bókun og skýrslu um „upp­reist æru, reglur og fram­kvæmd“ en ekki er ein­ing um það í nefnd­inni hvort þar með hafi farið fram full­nægj­andi skoðun á emb­ætt­is­færslum dóms­mála­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu.

Svar Þorsteins í heild

Stundin sendi Þor­steini eft­ir­far­andi fyr­ir­spurn, með vísan til orða hans á Sprengisandi:

Telurðu að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd sé búin að skoða emb­ætt­is­færslur ráð­herra með full­nægj­andi hætti í sam­ræmi við ályktun ráð­gjafa­ráðs Við­reisnar?

Svona svar­aði hann:

Þing­flokkur Við­reisnar ræddi málið vand­lega strax í kjöl­far frétta­flutn­ings á fimmtu­deg­inum. Nið­ur­staða þing­flokks­ins var skýr. Mik­il­vægt væri að fullt traust ríkti til þess að með­ferð máls­ins hefði í alla staði verið í sam­ræmi við með­ferð ann­arra sam­bæri­legra mála. Möguleg stjórn­ar­slit vegna máls­ins voru þar aldrei rædd. Yfir­lýs­ing þing­flokks­ins í kjöl­far ákvörð­unar Bjartrar fram­tíðar um að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu var í fullu sam­ræmi við þá umræðu, en þar sagði m.a.  „Vinnu­brögð í málum af þessu tagi verða að stand­ast stranga skoðun þar sem ekk­ert er undan dregið. Það er skylda stjórn­valda gagn­vart almenn­ingi og þolendum þeirra alvar­legu glæpa sem málið varðar.“

Við beittum okkur þess vegna fyrir því í gegnum Stjórn­skip­unar og eft­ir­lits­nefnd Alþingis að málið yrði upp­lýst. Á fundi Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar þann 21. sept­em­ber var Umboðs­maður Alþingis feng­inn til að fara yfir málið með nefnd­ina. Hann taldi ekki til­efni til frum­kvæð­is­at­hug­unar af sinni hálfu og að ekki hafi verið til­efni til að gera athuga­semdir við að Dóms­mála­ráð­herra hafi upp­lýst For­sæt­is­ráð­herra um trún­að­ar­gögn máls­ins. Hins vegar verði að hafa í huga að ráð­herrar séu ann­ars vegar emb­ætt­is­menn og hins vegar stjórn­mála­menn. Það kunni að gilda mis­mun­andi reglur og sjón­ar­mið um störf og athafnir eftir því um hvort hlut­verkið sé að ræða.

Í svari þáver­andi ráðu­neyt­is­stjóra inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV kom jafn­framt fram þann 26. sept­em­ber að starfs­menn ráðu­neyt­is­ins hefðu ekki áttað sig á að einn með­mæl­enda væri faðir þáver­andi fjár­mála­ráð­herra og að nöfn með­mæl­enda hefðu aldrei komið inn á borð ráð­herra við ákvörðun um upp­reist æru.

Af ofan­greindu tel ég það vera upp­lýst að öll með­ferð máls­ins hafi verið í sam­ræmi við með­ferð sam­bæri­legra mála og tengsl eins af með­mæl­endum við þáver­andi fjár­mála­ráð­herra hafi ekki haft nein áhrif þar á svo séð verði.

Það breytir því þó ekki að betur hefði mátt standa að upp­lýs­inga­gjöf um málið allt og mögu­lega hefðu mál þró­ast á annan veg ef upp­lýst hefði verið um málið strax og það kom upp í sumar. Þá hefði farið betur að aðstand­endur hefðu strax fengið aðgang að þeim gögnum máls sem kallað var eftir en ekki hefði þurft að koma til þess að skjóta synjun ráðu­neyt­is­ins til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

Mik­il­vægt er að stjórn­sýslan temji sé betri vinnu­brögð í þeim efnum þar sem rík­ari áhersla verði lögð á rétt almenn­ings til aðgangs að upp­lýs­ingum, í sam­ræmi við upp­lýs­inga­lög. Fyrsta við­bragð stjórn­valda á ekki að vera synjun. Það liggur alveg ljóst fyrir hvaða upp­lýs­ingar skylt er að veita og hvaða við­kvæmu per­sónu­upp­lýs­ingar ekki er heim­ilt að birta. Ef auka á traust almenn­ings á störfum stjórn­valda er nauð­syn­legt að auka á gagn­sæi stjórn­sýsl­unnar.

Þá er það að sama skapi ljóst að löngu tíma­bært er að end­ur­skoða það fyr­ir­komu­lag sem haft er á því þegar taka skal ákvörðun um hvort og þá hvernig ein­stak­lingar sem hlotið hafa dóm fyrir alvar­leg brot er varðar missi borg­ara­legra rétt­inda öðlist þau rétt­indi á nýjan leik. Núver­andi fyr­ir­komu­lag er löngu úr sér gengið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár