Seldi 1200 milljónir í Sjóði 9 tveimur tímum fyrir lokun

Einar Sveins­son, fjár­festir og föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar, seldi eignir í Sjóði sama dag og neyð­ar­lögin voru sett þann 6. októ­ber 2008. Einar hellti sér yfir starfs­mann Glitnis eftir að hann fékk veð­kall frá bank­anum í aðdrag­anda hruns­ins. Eign­ar­halds­fé­lag Einars og hann sjálfur vörðu sig gegn 176 millj­óna tapi með við­skipt­unum. Félag Einars fékk nið­ur­felldar skuldir eftir hrun.

Seldi 1200 milljónir í Sjóði 9 tveimur tímum fyrir lokun
Vörðu sig fyrir tapi Með sölu á eign­unum í Sjóði 9 þann 6. októ­ber náði Einar Sveins­son að verja sig og eign­ar­halds­fé­lag sitt, Hrómund ehf., fyrir 176 millj­óna króna tapi sem varð á hlut­deild­ar­skír­teinum í Sjóði 9 í banka­hrun­inu 2008. Einar Sveins­son og Benedikt Ein­ars­son, sonur hans og hlut­hafi í Hrómundi, sjást hér. Mynd: Ómar Óskarsson

„Ég þarf ekki að hafa um það nein orð að mér líkar illa að fá svona send­ingu frá bank­anum,“ segir Einar Sveins­son, fjár­festir og föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar, í tölvu­pósti til við­skipta­stjóra síns í einka­banka­þjón­ustu Glitnis, Birkis Krist­ins­sonar, þann 1. októ­ber árið 2008. Einar hafði fengið veð­kall frá Glitni vegna 4,2 millj­arða króna skulda eign­ar­halds­fé­lags síns, Hró­mundar ehf., við bank­ann. Glitnir hót­aði Einari aðgerðum ef hann lag­aði ekki trygg­ingar sínar hjá bank­anum en veð­settar eignir hans hjá bank­anum voru þá 4,6 millj­arðar króna. Í veð­kall­inu var Einar beð­inn um að leggja fram auknar trygg­ingar fyrir lánum sínum. 

Einar lét Birki heyra það út af veð­kall­inu: „Ég var að finna þetta í póst­hólfi mínu en póst­ur­inn hafði verið úti í sól­ar­hring. Ég ætl­ast til að þú sjáir til þess að ekki verði gripið til neinna aðgerða gegn mér enda upp­lýs­ingar um stöðu mála sem við fórum yfir í gær, þann 30. sept, ekki í sam­ræmi við það sem sagt er í þess­ari til­kynn­ingu.“

Tölvu­póst­ur­inn er einn þeirra fjöl­mörgu í gögn­unum sem Stundin hefur undir höndum sem und­ir­strika þá örvænt­ingu sem greip um sig í fjár­mála­kerf­inu á Íslandi undir lok sept­em­ber­mán­aðar og byrjun októ­ber­mán­aðar 2008. 

„Þann 6. októ­ber 2008 áttu eft­ir­taldir aðilar stór við­skipti með bréf í Sjóði 9 og tæmdu eign sína í sjóðnum.“  

Tæmdi eignir sínar í Sjóði 9

Einar Sveins­son seldi hlut­deild­ar­skír­teini sín og Hró­mundar ehf. í Sjóði 9 nokkrum dögum eftir þessi sam­skipti sín við Birki Krist­ins­son. Þetta gerð­ist þann 6. októ­ber, líkt og fjallað er um hér að framan. Samtals var um að ræða sölu fyrir 1120 millj­ónir króna.

Slita­stjórn Glitnis skoð­aði þessa sölu Einars sér­stak­lega, líkt og nokkrar aðrar sölur í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hruns­ins 2008. Í tölvu­pósti frá end­ur­skoð­anda, sem vann fyrir slita­stjórn Glitnis að rann­sóknum á mál­efnum tengdum banka­hrun­inu, til Íslands­banka árið 2010 segir meðal ann­ars: 

Þann 6. októ­ber 2008 áttu eft­ir­taldir aðilar stór við­skipti með bréf í Sjóði 9 og tæmdu eign sína í sjóðnum.  Eftir að við erum búnir að fara yfir þessi við­skipti og í sam­ráði við Slita­stjórn, hefur verið ákveðið að óska eftir því við ykkur að fá upp­tökur af sam­tölum þess­ara aðila við Glitni hf. þar sem rætt er um þessi við­skipti.  Aðil­arnir eru:  Hró­mundur ehf. kt. 491188-2519 – for­stöðu­maður og framkv. stjóri er Einar Sveins­son fyrrum stjórn­ar­for­maður Glitnis hf. Um er að ræða við­skipti með bréf að fjár­hæð ca. 1.000 millj. króna. Einar Sveins­son […] fyrrum stjórn­ar­for­maður Glitnis hf. Um er að ræða við­skipti með bréf að fjár­hæð ca. 193  millj. króna.

1200 millj­ónir milli­færðarÞessi við­skipta­kvittun sýnir hvernig 1090 millj­ónir króna voru inn­leystar úr Sjóði 9 og greiddar út 79 mín­útum fyrir lokum sjóðs­ins þann 6. októ­ber 2008.

Fékk peningana klukkan 10.10

Í tölvu­póst­inum frá slita­stjórn Glitnis var Íslands­banki beð­inn um að hlusta á upp­tökur á sam­tölum á milli Einars Sveins­sonar og Birkis Krist­ins­sonar þann 6. októ­ber 2008 til þess að reyna að kort­leggja hvenær hann bað um söl­una á eignum sínum í Sjóði 9. Grun­semdir vökn­uðu um að gengið hefði verið frá söl­unni eftir lokun mark­aða þennan dag. Í svari frá starfs­manni Íslands­banka kemur fram að beiðnin um inn­lausn­ina hafi verið sett inn í kerfi bank­ans klukkan 9.45 að morgni mánu­dags­ins 6. októ­ber. Álykt­unin sem Íslands­banki dró var að beiðnin um söl­una hefði komið fyrr en þann 6. októ­ber en að hún hafi bara verið afgreidd þann dag. Svipaða sögu var að segja um sölu Bjarna Bene­dikts­sonar þennan dag en hann bað um söl­una þann 2. októ­ber. Orðrétt sagði um þetta í tölvu­pósti frá starfs­manni Íslands­banka til slita­stjórnar Glitnis um vorið 2010:

Með­fylgj­andi er afrit af tölvu­pósti frá Ásgeiri Kröyer sem var „port­foli­om­ana­ger“ fyrir Birki sem sent er til Sunnu Rósar Svans­dóttur (bak­vinnsla) hinn 6. októ­ber kl. 9:29.  Í tölvu­póst­inum er óskað eftir inn­lausnum á Sjóði 9. Inn­lausnin er sett inn í kerfið kl. 9:45 en sjóð­ur­inn lok­aði kl. 11:29. Í síð­asta pósti var ég að giska á að Einar hafi beðið um inn­lausn á sjóðnum á fundi með Birki en í sím­tali nr. 147 sem er kl. 11:47 er Birkir að biðja Einar um að koma til að skrifa undir hand­veðs­yf­ir­lýs­ingar.  Hugs­an­legt er að Birkir og Einar hafi talað saman um helg­ina fyrst pönt­unin er komin þetta snemma inn í kerfið en ef svo hefur verið þá hefur sam­talið farið í gegnum gsm-síma sem ekki er hljóð­rit­aður.

Í við­skipta­beiðn­inni um inn­lausn Hró­mundar ehf. í Sjóði 9 kemur fram að inn­lausnin hafi átt sér stað og að pen­ing­arnir, sam­tals 1120 millj­ónir króna, hafi verið milli­færðir til Einars klukkan 10.10 þann 6. októ­ber. Einni klukku­stund og nítján mín­útum síðar var sjóðnum lokað.  

Riftunin útbúin en óundirrituð

Málið var komið svo langt innan slita­stjórnar Glitnis að búið var að útbúa rift­un­ar­bréf til Einars Sveins­sonar og Hró­mundar ehf. vegna rúm­lega millj­arðs króna söl­unnar í Sjóði 9.  En þetta var áður en ofan­greint svar barst frá Íslands­banka í apríl. Í rift­un­ar­bréf­inu, sem aldrei var und­ir­ritað og sent til Einars, segir meðal ann­ars að bank­inn líti svo á að Hró­mundur skuldi Glitni rúm­lega 152 millj­ónir króna sem hann þurfi að end­ur­greiða innan viku: 

 Gengi á hlut­deild­ar­skír­teinum sjóðs­ins þann 30. októ­ber 2008 þegar sjóðnum var lokað var hins vegar  24.273 sem hefði leitt til inn­lausn­ar­verðs sam­tals að fjár­hæð kr. 871.180.949 eða kr. 152.321.178 lægri fjár­hæð en nam ofan­greindu inn­lausn­ar­verði. Samkvæmt gögnum bank­ans lítur svo út að fyr­ir­mæli um inn­lausn ofan­greindra hlut­deild­ar­skír­teina hafi verið mót­tekin af bank­anum eftir að lokað var fyrir við­skipti með bréfin og þar af leið­andi hafi verið óheim­ilt að inn­leysa þau þennan dag. 

 Á þessum for­sendum ætl­aði Glitnir að krefj­ast end­ur­greiðslu á 152 millj­ón­unum sem voru mis­mun­ur­inn á verð­mæti eigna Hró­mundar ehf. í Sjóði 9 þann 6. októ­ber og 30. októ­ber.

„Ég þarf ekki að hafa um það nein orð að mér líkar illa að fá svona send­ingu frá bank­anum“

Engin riftun reynd

Á end­anum fór það svo að engin riftun á við­skipt­unum í Sjóði 9 var reynd þar sem talið var ólík­legt að Glitnir myndi hafa betur í mál­inu gegn Einari. Ástæðan var meðal ann­ars sú að ljóst þótti að Einar hefði náð að biðja um sölu hlut­deild­ar­skír­teina sinna fyrir lokun mark­aða þann 6. októ­ber. Einnig var sölu­and­virði eigna hans í Sjóði 9 notað til að greiða inn á skuldir hans við bank­ann sem voru veru­legar um haustið 2008 og hafði Einari byrjað að ber­ast veð­köll eins og tölvu­póst­ur­inn hér að ofan sýnir. 

Í nið­ur­stöðu slita­stjórn­ar­innar segir meðal ann­ars um þetta: „Líklegt að ekki haf­ist neitt upp úr riftun á inn­lausn hlut­deild­ar­skír­teina í Sjóði 9. And­virð­inu var ráð­stafað upp í greiðslu á skuldum félags­ins. Eft­ir­stöðvar láns­ins voru færð yfir í Íslands­banka.“

Eitt af því sem vekur sér­staka athygli er að Einar og Bjarni Bene­dikts­son seldu báðir þennan sama dag í þeim glugga sem opn­að­ist frá opnun mark­aða þann dag­inn og fram til klukkan 11.29 þegar Sjóði 9 var lokað. 

En eins og segir í nið­ur­stöðu slita­stjórn­ar­innar um mögu­lega riftun gegn Einari Sveins­syni per­sónu­lega út af rift­un­inni í Sjóði 9 á þeim hlut­deild­ar­skír­teinum sem skráðu voru á hans nafn þá, var samt óljóst hvernig þessi beiðni barst frá Einari og til bank­ans: 

Fyrir liggur að beiðni (tölvu­póstur)  frá Ásgeiri Kröyer, við­skipta­stjóra (Port­folio Manager)  í einka­banka­þjón­ustu um inn­lausn á eignum Einars í Sjóði 9 kl. 9:29 þann 6/10 2008, en sjóð­ur­inn var aðeins opinn til kl. 11:29 þann dag. Engin gögn liggja fyrir um það hvernig honum barst beiðni frá Einari um inn­lausn­ina.  Það gat því alveg eins verið ákvörðun innan bank­ans að gera þetta. Líklegt má þó telja að starfs­maður stað­festi að Einar hafi beðið um inn­lausn­ina. 

Vildi borga skuldir sínar

Út frá með­ferð­inni á máli Einars hjá slita­stjórn Glitnis sést að Einari var umhugað um að greiða skuldir sínar við bank­ann á þessum tíma. Fjár­mun­irnir sem hann fékk út úr Sjóði 9 runnu upp í skuldir hans og eftir banka­hrunið voru við­skipti hans færð yfir í Íslands­banka.

Greiðslu­vilji Einars á þessum tíma sést svo líka í tölvu­pósti sem hann sendi Birki Krist­ins­syni, við­skipta­stjóra sínum í einka­banka­þjón­ustu Glitni, þann 22. októ­ber 2008: „Eins og við höfðum rætt áður en banka­krísan hélt inn­reið sína varð­andi upp­greiðslu skulda Hró­mundar þá langar mig að stað­festa við þig eft­ir­far­andi. Vin­sam­leg­ast greiða upp í skuld­irnar eins og kostur er með þeim pen­inga­legu eignum sem til staðar eru á veð­settum reikn­ingum Hró­mundar. Jafn­framt má selja víxil á Íbúða­lána­sjóð sem og erlend hluta­bréf þegar opn­ast fyrir gjald­eyr­is­við­skipti lands­manna.“

Sala Einars í Sjóði 9 á þessum örlaga­ríka degi 6. októ­ber varð því til þess að hann náði að grynnka á skuldum sínum og eign­ar­halds­fé­lags síns, Hró­mundar ehf., við Glitni. Vegna þess að hann seldi þennan dag fékk hann 176 millj­ónum krónum meira fyrir hlut­deild­ar­skír­teini sín í Sjóði 9 en hann hefði fengið í lok októ­ber 2008, þegar aðrir sjóðs­fé­lagar í Sjóði 9 fengu greidd 85,12 pró­sent af inni­stæðum sínum í sjóðnum. 

Ekkert var aðhafst í við­skipt­unum af hálfu Glitnis og Einar gat haldið áfram rekstri Hró­mundar ehf. þrátt fyrir erf­iða skulda­stöðu þess gagn­vart Glitni og þau veð­köll sem félagið lenti í.  

Fékk niðurfelldar skuldir

Í árs­lok 2008 átti Hró­mundur 3,7 millj­arða króna eignir en skuld­aði 5,8 millj­arða króna. Margar eignir Hró­mundar ehf. urðu verð­lausar í banka­hrun­inu, til að mynda hluta­bréf í fjár­fest­ing­ar­fé­lög­unum Mætti, Nausti og Skeggja, sem öll tóku þátt í Vafn­ings­flétt­unni í febr­úar árið 2008. Fyrir vikið tap­aði félagið nærri 6 millj­örðum króna árið 2008. Síðar tap­aði félagið svo eign­ar­hlutum sínum í móð­ur­fé­lag­inu N1, BNT ehf.

Hró­mundur ehf. skil­aði svo ekki árs­reikn­ingi í sex ár en árið 2014 höfðu skuldir félags­ins verið færðar niður og stóðu í rúmum 50 millj­ónum króna, eða ríf­lega 5,7 millj­örðum minna en árið 2008.  Árið 2014 skil­aði félagið nærri 1,5 millj­arða hagn­aði vegna bók­færðrar nið­ur­færslu á skuldum þess. Hró­mundur ehf. stóð því af sér banka­hrunið á Íslandi, öfugt við eign­ar­halds­fé­lag Bene­dikts Sveins­sonar, Haf­silfur ehf., sem var end­ur­nefnt Malvík ehf. eftir skuldapppgjör við Íslands­banka og Benedikt stofn­aði annað félag með nafn­inu Haf­silfur ehf. á nýrri kenni­tölu.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskipti Bjarna Benediktssonar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár