Flutti að heiman og gekk í sirkusinn

Unnur María Máney Berg­sveins­dóttir fann lífs­fyll­ingu sína 30 ára í sirkus­brans­anum.

Flutti að heiman og gekk í sirkusinn

Þegar hrunið skall á var ég verk­efna­stjóri hjá Lands­bóka­safn­inu og verk­efnið mitt var skorið niður um helm­ing. Mér leist ekk­ert á það að vera áfram við þær kring­um­stæður, þannig að ég klór­aði mér smá í koll­inum og hugs­aði um mína stöðu. Ég var jú 30 ára, barn­laus og ein­hleyp, og gat því auð­veld­lega leigt út íbúð­ina mína til að fara á vit ævin­týr­anna.

Ég hafði alltaf verið mjög alvar­leg, farið að búa ein 16 ára, klárað háskóla- og meist­ara­nám og unnið full­orð­ins­leg störf, en ég átti engin brenn­andi áhuga­mál. Ég furð­aði mig alltaf á þessum vinum mínum sem áttu dýr áhuga­mál sem voru vesen; ég náði ekki hvernig það gat rétt­lætt að eyða svona miklum tíma og pen­ingum í áhuga­mál.

Ég fór til Mexíkó í des­em­ber 2008 þar sem ég kynnt­ist götu­lista­hópi, og þar atvik­að­ist það að ég slóst í för með þeim; eftir það var ekk­ert aftur snúið. Ég flutti aftur heim í árs­byrjun 2012 og er í dag sjálf­stætt starf­andi sirku­slista­kona. Þetta er rosa­lega mikið hark, en ég hef ofsa­lega gaman af því að kenna öðrum það sem hefur gert mig svo glaða. Ef ég spái í það, þá er það ekki bara því ég hef gaman af þessu, heldur af því þetta var kannski lífs­fyll­ingin sem mig hafði vantað. Eru ekki allir að leita að svona rai­son d'être?

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár