Ummæli forsætisráðherra ekki í samræmi við mat Útlendingastofnunar

„Það hefur aldrei verið látið standa á fjár­veit­ingum til Útlend­inga­stofn­unar eða kæru­nefnd­ar­innar til að ýta undir sem skjótasta máls­með­ferð,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son í umræðum um útlend­inga­lög­gjöf­ina. Raunin er sú að Útlend­inga­stofnun hefur ekki fengið þá fjár­muni og þann mann­afla sem stofn­unin hefur kallað eftir til að geta hraðað máls­með­ferð og haldið í við fjölgun hæl­is­um­sókna.

Ummæli forsætisráðherra ekki í samræmi við mat Útlendingastofnunar

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra full­yrti í umræðum um breyt­ingar á útlend­inga­lög­gjöf­inni fyrr í vik­unni að á und­an­förnum árum hefði aldrei staðið á fjár­veit­ingum til Útlend­inga­stofn­unar til að ýta undir sem skjótasta máls­með­ferð hæl­is­um­sókna. 

„Það hefur aldrei staðið á því. Það væri kannski ein­hver inn­stæða fyrir orðum hátt­virts þing­manns ef rík­is­stjórnin hefði haldið þannig á málum að fjár­veit­ingar til þess­ara mik­il­vægu stofn­ana væru stöðv­aðar. Við höfum aldrei farið þá leið,“ sagði Bjarni í and­svari við ræðu Kolbeins Ótt­ars­sonar Proppé, þing­manns Vinstri grænna. 

Kolbeinn Ótt­arrs­son Proppéþing­maður Vinstri grænna

Kolbeinn hafði þá sett orð for­sæt­is­ráð­herra um mik­il­vægi þess að hraða máls­með­ferð hæl­is­um­sókna í sam­hengi við fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar.

„Það er athygl­is­vert að heyra hæst­virtan ráð­herra tala um löngun hans til að setja aukna fjár­muni í að hraða máls­með­ferð. Það er ekki svo langt síðan að hér var lagt fram frum­varp til fjár­laga. Ég veit ekki betur en þar sé staðan sú að ekki er mætt þeim kröfum Útlend­inga­stofn­unar eða þörfum sem hún þarf til að hraða máls­með­ferð,“ sagði Kolbeinn og spurði: „Af hverju birt­ist þessi löngun hæst­virts ráð­herra ekki í fjár­laga­vinn­unni?“

Bjarni vís­aði því alfarið á bug að ekki væri nægi­legir fjár­munir settir í hröðun máls­með­ferðar. „Við höfum ávallt tryggt þá fjár­muni sem hefur þurft til þess að tryggja sem besta máls­með­ferð. Það eru engin dæmi um annað. Þannig að allt þetta tal um fjár­lög og fram­kvæmd fjár­laga er bara út í hött,“ sagði hann. „Það hefur aldrei verið látið standa á fjár­veit­ingum til Útlend­inga­stofn­unar eða kæru­nefnd­ar­innar til að ýta undir sem skjótasta máls­með­ferð.“

„Við höfum ávallt tryggt þá fjár­muni sem hefur þurft til þess að tryggja sem besta máls­með­ferð. Það eru engin dæmi um annað“

Raunin er hins vegar sú að á þessu ári var Útlend­inga­stofnun ekki tryggt það fjár­magn sem stofn­unin hefur sagst þurfa til að halda í við fjölgun hæl­is­um­sókna og hraða afgreiðslu þeirra. Fyrir vikið lengd­ist með­al­af­greiðslu­tími hæl­is­um­sókna á fyrri hluta árs­ins.

Fram kemur í gögnum Útlend­inga­stofn­unar um mann­afla­þörf vegna afgreiðslu hæl­is­um­sókna árið 2017, sem fjár­laga­nefnd Alþingis fékk í febr­úar á þessu ári, að fjölgun umsókna kalli á auk­inn mann­afla ef halda eigi kostn­aði niðri. „Þarf að ger­ast fyrir sum­arið, svo unnt sé að þjálfa starfs­menn og við­halda mála­vinnslu yfir sum­ar­frís­tím­ann,“ segir í glæru­kynn­ingu sem þing­nefnd­inni var sýnd.

Útlendingastofnun sagðist þurfa 43
nýja starfsmenn en fékk talsvert færri

Útlend­inga­stofnun taldi sig þurfa 29 við­bót­ar­starfs­menn til að geta hraðað afgreiðslu umsókna og 14 við­bót­ar­starfs­menn til að sinna mót­töku og þjón­ustu við hæl­is­leit­endur. Þann 28. apríl impraði Útlend­inga­stofnun á þessu vegna fjár­mála­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar sem þá var til umfjöll­unar í fjár­laga­nefnd. 

Sigríður Andersendóms­mála­ráð­herra

Fram kom að á meðan fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar gerði ráð fyrir því að fjöldi umsækj­enda um vernd færi aldrei fram úr 700 á hverju ári telji stofn­unin nær­tækara að miða við 2000 umsækj­endur. Til að mæta þessu, og tryggja að mann­afli væri til staðar á öllum stjórn­sýslu­stigum, þyrfti að hækka fram­lag til sviðs­ins um 7 millj­arða en ekki 2 eins og áætlun rík­is­stjórn­ar­innar fæli í sér. 

Þann 11. ágúst var loks til­kynnt að Útlend­inga­stofnun fengi heim­ild til að ráða tíma­bundið tíu nýja starfs­menn. Þegar frétta­stofa RÚV spurði Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hvort það hefði ekki þurft að auka þennan liðs­auka fyrr svar­aði hún: „Ég veit það ekki. Ég er ekki með yfir­sýn yfir starfs­manna­hætti hjá Útlend­inga­stofnun. En það liggur að minnsta kosti fyrir að hún fær hann núna.“

Stofnun látin „viðhalda ásættanlegum málshraða“

Fram kom í gögnum Útlend­inga­stofn­unar að ef hraða ætti afgreiðslu hæl­is­um­sókna þyrfti 301 millj­ónar króna aukn­ingu til fjár­laga­lið­ar­ins 06-398. Til að halda í við fjölgun hæl­is­leit­enda þyrfti svo 187 millj­óna aukn­ingu til fjár­laga­liðar 06-399 sem tekur til mót­töku og þjón­ustu við hæl­is­leit­endur. Í frum­varpi frá­far­andi rík­is­stjórnar til fjár­laga fær Útlend­inga­stofnun hins vegar aðeins 166,6 millj­óna króna auka­fram­lag „til að við­halda ásætt­an­legum máls­hraða hæl­is­um­sókna“ eins og það er orðað í grein­ar­gerð. Hins vegar eru útgjöld til fjár­laga­lið­ar­ins 06-399 stór­aukin, eða úr rúmum millj­arði í 2,7 millj­arða. 

Eins og Stundin fjall­aði um fyrr í mán­uð­inum var kostn­aður vegna útlend­inga­mála rúmum millj­arði meiri á fyrri hluta árs­ins 2016 en gert var ráð fyrir í fjár­lögum. Samkvæmt afkomu­grein­ar­gerð rík­is­sjóðs voru fjár­heim­ildir veru­lega „van­á­ætl­aðar í fjár­laga­gerð í ljósi for­dæma­lausrar fjölg­unar hæl­is­um­sókna á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2016“. Útlend­inga­stofnun birtir nákvæma töl­fræði um fjölda hæl­is­um­sókna í hverjum mán­uði en auk þess fékk fjár­laga­nefnd Alþingis ítar­lega kynn­ingu frá full­trúum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á fjár­þörf vegna hæl­is­um­sókna og þjón­ustu við hæl­is­leit­endur þann 12. des­em­ber 2016. Voru þá dregnar upp þrjár sviðs­myndir. Í einni þeirra var áætlað að fjár­vönt­unin, miðað við frum­varpið sem þá lá fyrir, næmi meira en tveimur millj­örðum á árinu. Bjart­sýnni spár gerðu ráð fyrir 1,2 millj­arða og 892 millj­óna fjár­vöntun, en nú liggur fyrir að fram­úr­keyrslan, aðeins á fyrri hluta árs­ins, nam 1200 millj­ónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár