Ráðherra segir að „Ísland sé best í heimi“ í umræðum um útlendingamál

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra efast um að það sé jákvætt fyrir allar fjöl­skyldur sem sækja um vernd á Íslandi að fá vernd. Hún vonar að þing­mönnum finn­ist Ísland vera „best í heimi“.

Ráðherra segir að „Ísland sé best í heimi“ í umræðum um útlendingamál

„Ég er auð­vitað þeirrar skoð­unar að Ísland sé best í heimi og ég trúi því að þeir sem sitja í þessum sal séu þeirrar skoð­unar líka.“

Þetta sagði Sigríður Andersen, dóms­mála­ráð­herra og þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar hún mælti gegn frum­varpi til breyt­inga á útlend­inga­lögum sem for­menn allra flokka nema Sjálf­stæð­is­flokks­ins lögðu fram í dag. Frum­varpið felur í sér rétt­ar­bót fyrir barna­fjöl­skyldur sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd á Íslandi. 

Samkvæmt núgild­andi útlend­inga­lögum ber stjórn­völdum að taka umsókn um alþjóð­lega vernd til efn­is­með­ferðar ef meira en 12 mán­uðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóð­lega vernd barst. Í hinu nýfram­lagða frum­varpi er lagt til að þessi frestur verði styttur úr tólf mán­uðum í níu. Þá er lög­fest heim­ild til að veita barni, sem sótt hefur um alþjóð­lega vernd og ekki fengið nið­ur­stöðu í máli sínu innan fimmtán mán­aða, dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða.

Sigríður Andersen gagn­rýndi frum­varp for­mannna harð­lega á Alþingi nú undir kvöld. „Það er ekki víst að hags­munum alls þessa fólks sé best borgið hér á landi. Ísland er ekki best í heimi fyrir margt af þessu fólki. Hingað leitar fólk sem er í alls kyns vanda og þarf að fá því­líka fag­lega þjón­ustu að það liggur fyrir hér að hún er ekki einu sinni til hér á landi,“ sagði hún. 

Þá full­yrti Sigríður að með frum­varp­inu væri mælst til þess að til­tekin mál fengju jákvæða afgreiðslu í sam­ræmi við geð­þótta stjórn­valda. „Um það að mínu mati má reyndar deila hvort að sú afgreiðsla verði í raun jákvæð fyrir þetta fólk,“ sagði hún og vís­aði þar til þeirra fjöl­skyldna sem geta fengið vernd á Íslandi ef frum­varpið verður sam­þykkt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár