Formenn allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins mæla fyrir breytingum á útlendingalöggjöf

Frum­varpið skiptir sköpum fyrir barna­fjöl­skyldur sem sótt hafa um hæli á Íslandi.

Formenn allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins mæla fyrir breytingum á útlendingalöggjöf

Formenn allra stjórn­mála­flokka á Alþingi nema Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru flutn­ings­menn frum­varps til laga um breyt­ingar á útlend­inga­lögum sem lagt var fram í dag. 

Frum­varpið felur í sér rétt­ar­bætur fyrir barna­fjöl­skyldur sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd á Íslandi og gæti skipt sköpum fyrir afdrif stúlkn­anna Haniye og Mary og fjöl­skyldna þeirra sem tals­vert hafa verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum, en jafn­framt fjöl­skyld­unnar frá Ghana sem fjallað var um í gær. 

Breyt­ing­arnar, sem lagðar eru til, taka til barna sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd hér­lendis fyrir gild­is­töku lag­anna og ekki yfir­gefið landið. 

Samkvæmt núgild­andi útlend­inga­lögum ber stjórn­völdum að taka umsókn um alþjóð­lega vernd til efn­is­með­ferðar ef meira en 12 mán­uðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóð­lega vernd barst fyrst íslenskum stjórn­völdum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækj­anda sjálfs. Í hinu nýfram­lagða frum­varpi er lagt til að þessi frestur verði styttur úr tólf mán­uðum í níu. „Í því felst að hafi meira en níu mán­uðir liðið frá því að umsókn barns um alþjóð­lega vernd barst fyrst íslenskum stjórn­völdum skuli almennt taka hana til efn­is­legrar með­ferðar. Jafn­framt væri þá almennt eðli­legt að taka til efn­is­legrar með­ferðar umsókn for­eldra sem fara með for­sjá barns­ins, og eftir atvikum systk­ina, á grund­velli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. lag­anna,“ segir í grein­ar­gerð. 

Þá er lagt til að frestur í 1. málsl. 2. mgr. 74. gr. lag­anna verði styttur úr átján mán­uðum í fimmtán. „Í því felst að heim­ilt verður að veita barni sem sótt hefur um alþjóð­lega vernd og ekki fengið nið­ur­stöðu í máli sínu á stjórn­sýslu­stigi innan fimmtán mán­aða frá því að það sótti fyrst um alþjóð­lega vernd hér á landi dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða, að upp­fylltum öðrum skil­yrðum. Jafn­framt væri þá almennt eðli­legt að veita for­eldrum sem fara með for­sjá barns­ins, og eftir atvikum systk­inum, dval­ar­leyfi á grund­velli 1. mgr. 74. gr. lag­anna til að tryggja ein­ingu fjöl­skyld­unnar, að upp­fylltum öðrum skil­yrðum.“

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er sér­stak­lega árétt­aður sá vilji lög­gjafans að ávallt skuli taka til efn­is­legrar með­ferðar umsóknir um alþjóð­lega vernd ef umsækj­andi er í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu. 

Lagt er til að breyt­ing­arnar taki að sinni aðeins til umsókna sem borist hafa fyrir gild­is­töku lag­anna. „Segja má að með því móti gef­ist níu mán­aða svig­rúm frá gild­is­töku lag­anna til að ákveða æski­legt fram­hald enda væri það fyrst níu mán­uðum eftir gild­is­töku sem breyt­ingar af þessu tagi gætu haft bein áhrif á umsóknir sem ber­ast eftir gild­is­töku. Að mati flutn­ings­manna er eðli­legt að veita slíkt svig­rúm svo að unnt verði að meta betur áhrif breyt­ing­anna og nýtt þing geti tekið afstöðu til þess hvernig æski­legt sé að mál­inu verði fram haldið,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Flutn­ings­menn eru þau Katrín Jak­obs­dóttir, Birgitta Jóns­dóttir, Sigurður Ingi Jóhanns­son, Benedikt Jóhann­es­son, Óttarr Proppé og Logi Ein­ars­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár