Áhersla á fullgildingu fríverslunarsamnings við Filippseyjar

Tillaga til þings­á­lykt­unar um full­gild­ingu frí­versl­un­ar­samn­ings milli EFTA-ríkj­anna og Fil­ipps­eyja er eitt af örfáum málum utan­rík­is­ráð­herra á þing­mála­skrá sem ekki er EES-mál.

Áhersla á fullgildingu fríverslunarsamnings við Filippseyjar

Tillaga til þings­á­lykt­unar um full­gild­ingu frí­versl­un­ar­samn­ings milli EFTA-ríkj­anna og Fil­ipps­eyja er eitt af örfáum áherslu­málum Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra á þing­inu sem nú er að hefj­ast sem ekki er EES-mál, þ.e. skyldu­bundin inn­leið­ing á reglum Evrópska efna­hags­svæð­is­ins í íslenskan rétt.

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan var lögð fram í mars en dag­aði uppi á síð­asta þingi. Var til­lagan gagn­rýnd harð­lega, bæði af nokkrum þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar og lög­fræð­ingi Alþýðu­sam­bands Íslands. Var vísað til alvar­legra mann­rétt­inda­brota í Fil­ipps­eyjum og full­yrt að með til­lög­unni væru við­skipta­hags­munir teknir fram yfir mann­rétt­inda­sjón­ar­mið. „Af hverju kemur rík­is­stjórn Íslands með svona mál hingað inn í sal Alþingis? Af hverju vill rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, liðka fyrir við­skiptum við morð­óða menn? Eru við­skipta­hags­munir virki­lega metnir hér meira en sjálf­sögð mann­rétt­indi?“ spurði Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, þegar rætt var um málið á Alþingi þann 25. apríl síð­ast­lið­inn. 

Önnur mál sem Guð­laugur ætlar að leggja fram á þing­inu er frum­varp breyt­ingu á lögum um Íslands­stofu. Í því felst end­ur­skoðun á ákvæðum um hlut­verk utan­rík­is­þjón­ust­unnar og Íslands­stofu í útflutn­ings­að­stoð við íslenskt atvinnu­líf á erlendum mörk­uðum, ímynd og orð­spor Íslands, kynn­ingu á íslenskri menn­ingu erlendis og mark­aðs­starf gagn­vart erlendum ferða­mönnum og fjár­festum. Er mark­mið end­ur­skoð­un­ar­innar grund­völl fyrir fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag útflutn­ings­að­stoðar og mark­aðs­starfs.

Þá hyggst Guð­laugur leggja fram frum­varp til laga um stofnun Háskóla Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi. „Frum­varpið felur í sér að sett verði á fót stofnun Háskóla Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi. Undir stofn­un­ina myndu falla fjórir skólar sem nú starfa á vegum Háskóla Sam­ein­uðu þjóð­anna á Íslandi, þ.e. jarð­hita-, sjáv­ar­út­vegs-, land­græðslu- og jafn­rétt­is­skólar Háskóla Sam­ein­uðu þjóð­anna,“ segir í þing­mála­skránni. „Í frum­varp­inu verður gert ráð fyrir að stofn­unin verði hluti af Háskóla Sam­ein­uðu þjóð­anna með form­lega stöðu alþjóða­stofn­unar í skiln­ingi laga nr. 98/1992, um frið­helgi og for­rétt­indi alþjóða­stofn­ana.“

Guð­laugur mun leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögur um stað­fest­ingu samn­ings milli Íslands og Færeyja um fisk­veiðar innan íslenskrar og fær­eyskrar lög­sögu, bæði fyrir árið 2017 og 2018. Þá mun hann tala fyrir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um alþjóð­lega þró­un­ar­sam­vinnu­stefnu Íslands 2018‒2022 eins og gert er ráð fyrir í lögum, og veita Alþingi hina árlegu skýrslu um utan­rík­is­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár