Ráðherrar svara of seint

Ráð­herrar eiga enn eftir að svara 55 fyr­ir­spurnum frá síð­asta þingári en þeim ber skylda sam­kvæmt þing­skap­ar­lögum til að svara innan fimmtán daga.

Ráðherrar svara of seint
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar Allir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar eiga enn eftir að svara fyr­ir­spurnum þing­manna frá síð­asta þingári. Mynd: Pressphotos

Enn eiga ráð­herrar eftir að svara miklum fjölda fyr­ir­spurna þing­manna sem lagðar voru fram á síð­asta þingi. Þá hafa ráð­herrar varið um 32 dögum að með­al­tali í því að svara fyr­ir­spurnum þegar þeim ber skylda sam­kvæmt þing­skap­ar­lögum að svara eigi síðar en fimmtán dögum eftir að fyr­ir­spurn barst.

Á síð­asta þingi lögðu þing­menn fram 299 fyr­ir­spurnir og á enn eftir að svara 55 þeirra þrátt fyrir að síð­ustu fyr­ir­spurn­irnar hafi borist fyrir rúmum þremur mán­uðum. Flestum fyr­ir­spurnum úr ráð­herra­liði rík­is­stjórn­ar­innar á Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra eftir að svara, eða 15 fyr­ir­spurnum. Meðal þeirra eru til dæmis fyr­ir­spurn Jóns Þórs Ólafs­sonar, þing­manns Pírata, um skipan dóm­ara í Lands­rétt og fyr­ir­spurn Iðunnar Garð­ars­dóttur, vara­þing­manns Vinstri grænna, um rann­sóknir á vændis­kaupum.

Þá eiga Óttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra og Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, báðir eftir að svara níu fyr­ir­spurnum. Á meðal þeirra sem Benedikt á eftir að svara er fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um hús­næði rík­is­stofn­ana, en fyr­ir­spurnin var lögð fram þann 21. febr­úar, eða fyrir rúmu hálfu ári og er sú elsta sem á eftir að svara. 

Engum ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar hefur tek­ist að fylgja eftir ákvæði þing­skap­ar­laga um að svör skuli ber­ast innan fimmtán daga og eru útistand­andi fyr­ir­spurnir hjá öllum ráð­herrum. Best standa Jón Gunn­ars­son, sveit­ar­stjórnar- og sam­göngu­mála­ráð­herra, og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, en þau eiga bæði eftir að svara einni fyr­ir­spurn hvort.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár