Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
Bjarni Benediktsson Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er kominn inn í hluthafahóp Alfa. Mynd: Samtök atvinnulífsins

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, er orðinn hluthafi í fyrirtæki fjölskyldu sinnar, Alfa hf.

Samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins fyrir 2025 átti Bjarni 9,46% hlut í lok árs í fyrra.

Hagnaður Alfa í fyrra nam rúmum 1,2 milljörðum króna í samanburði við 274 milljóna króna hagnað árið 2024. „Á árinu 2025 seldi dótturfélag Alfa alla eignarhluti sína í Tékklandi bifreiðaskoðun og skýrir það að miklu leyti hækkun á milli ára í afkomu dóttur- og hlutdeildarfélaga,“ segir í ársreikningnum.

Alfa greiðir tæpar 198 milljónir króna í arð til hluthafa sinna í ár. Samkvæmt þessu fær Bjarni tæpar 19 milljónir króna í sinn hlut.

Var í stjórnmálum og viðskiptum samhliða

Bjarni var kjörinn á þing árið 2003 en hélt áfram þátttöku í viðskiptalífinu samhliða þingmennsku, meðal annars sem einn af helstu stjórnendum viðskiptaveldis fjölskyldu sinnar, sem kölluð er Engeyjarættin. Var hann meðal annars stjórnarformaður olíufélagsins N1.

Eftir …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MMG
    Magnús Mörður Guðbjörnsson skrifaði
    Var einhver svo vitlaus að halda það að hann hafi ekki verið með puttana í þessu allan tímann!
    Hann er sennilega sá stjórnmálamaður sem hefur að baki stæðstu slóð innherjasvika, óheiðaleika,og græðgi sem fyrir finnst á Íslandi.
    4
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þessi fyrrum stjórnmálamaður er tákn græðginnar sem virðist vera óseðjandi.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Viðskipti Bjarna Benediktssonar

Öll hneykslismálin sem Bjarni stóð af sér
Greining

Öll hneykslis­mál­in sem Bjarni stóð af sér

Bjarni Bene­dikts­son, formað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, tengd­ist ýms­um hneykslis­mál­um sem komu upp á Ís­landi í kjöl­far efna­hags­hruns­ins ár­ið 2008. Hann stóð þau öll af sér og var fyr­ir vik­ið oft kennd­ur við efn­ið teflon vegna þess að hann náði alltaf að hrista af sér erf­ið mál á með­an aðr­ir stjórn­mála­menn gátu það ekki.
Selur bankann sem fjölskyldan átti
Úttekt

Sel­ur bank­ann sem fjöl­skyld­an átti

Bjarni Bene­dikts­son upp­lýsti ekki um að­komu sína að fjár­fest­ing­um Eng­ey­inga á með­an hann sat á þingi í að­drag­anda hruns. Fjöl­skylda hans átti ráð­andi hlut í Ís­lands­banka sem lán­aði fé­lög­um þeirra tugi millj­arða króna og einnig Bjarna per­sónu­lega. Nú mæl­ir hann fyr­ir sölu rík­is­ins á hlut í bank­an­um. For­sag­an skað­ar traust, að mati sam­taka gegn spill­ingu.
Atburðarásin í aðdraganda hruns: Hvað vissum við og hvað vissu þeir?
Rannsókn

At­burða­rás­in í að­drag­anda hruns: Hvað viss­um við og hvað vissu þeir?

Þeg­ar erf­ið­leik­ar komu upp hjá Glitni og stór­um hlut­höf­um, fyrst í fe­brú­ar 2008 og svo í sept­em­ber, skipt­ist Bjarni Bene­dikts­son á upp­lýs­ing­um við stjórn­end­ur Glitn­is og sat fundi um stöðu bank­anna með­an hann sjálf­ur, fað­ir hans og föð­ur­bróð­ir komu gríð­ar­leg­um fjár­mun­um í var. Hér er far­ið yf­ir at­burða­rás­ina í máli og mynd­um.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár