Vilja „evrópuvæða“ NATO eftir rugl og reiði Trumps

Ör umsnún­ingur í hern­að­ar­við­veru Banda­ríkj­anna innan Evrópu skapar rugl­ing í sam­starfi NATO-þjóða. Utan­rík­is­ráð­herra Frakk­lands vill „evr­ópu­væða“ NATO.

Vilja „evrópuvæða“ NATO eftir rugl og reiði Trumps
Marco og Mark Utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Marco Rubio, er hér ásamt Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóra NATO, í Stokk­ólmi í dag. Mynd: AFP

Evrópsk aðild­ar­ríki NATO reyndu í ofboði í dag að fá skýr svör frá Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, um liðs­flutn­inga stjórn­ar­innar í Washington, um leið og þau reyndu að sefa reiði Donalds Trumps for­seta vegna Írans fyrir leið­toga­fund í júlí.

Trump olli miklum heila­brotum þegar utan­rík­is­ráð­herrar NATO komu saman í Hels­ing­borg í Svíþjóð með því að til­kynna að hann myndi senda 5.000 her­menn til Póllands, sem virt­ist vera við­snún­ingur frá því að Washington-stjórnin hafði áður aflýst fyr­ir­hug­aðri send­ingu.

Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóri NATO, og utan­rík­is­ráð­herra Póllands fögn­uðu breyt­ing­unni, en hún jók á áhyggjur af skorti á sam­hæf­ingu milli Banda­ríkj­anna og banda­manna þeirra.

„Þetta er vissu­lega rugl­ings­legt og ekki alltaf auð­velt að átta sig á,“ sagði Maria Malmer Stenerg­ard, utan­rík­is­ráð­herra Sví­þjóðar.

Færa 5.000 hermenn frá Þýskalandi

Við­snún­ingur Trumps virt­ist koma í kjöl­far þess að stjórnin í Washington til­kynnti skyndi­lega fyrr í mán­uð­inum að hún væri að draga 5.000 her­menn frá Þýska­landi eftir deilur milli Trumps og Friedrichs Merz kansl­ara.

Rubio full­yrti að ákvarð­anir Banda­ríkj­anna um her­lið væru „ekki refsi­að­gerðir“ heldur væru þær til­komnar vegna þess að Banda­ríkja­stjórn þyrfti stöðugt að „end­ur­skoða“ liðs­flutn­inga til að mæta alþjóð­legum þörfum sínum.

Fjöldi ráð­herra NATO sagði að almennt hefði verið búist við fækkun banda­rískra her­manna í álf­unni þar sem Banda­ríkin ein­beiti sér nú að öðrum ógnum og Evrópa auki eigin varnir.

„Það sem skiptir máli er að þetta ger­ist á skipu­lagðan hátt, svo að Evrópa geti byggt sig upp þegar Banda­ríkin draga úr við­veru sinni,“ sagði Espen Barth Eide, utan­rík­is­ráð­herra Noregs.

Fund­ur­inn í Svíþjóð fer fram í kjöl­far þess að Trump hefur gagn­rýnt Evrópu harð­lega fyrir við­brögð álf­unnar við stríði hans gegn Íran. Hann hefur hótað að Banda­ríkin gætu íhugað að segja sig úr NATO.

Stjórn­ar­er­ind­rekar sögðu að mark­miðið væri að snúa blað­inu við fyrir leið­toga­fund banda­lags­ins í Ankara svo hægt væri að ein­beita sér að því að sýna fram á aukin útgjöld Evrópu.

„Skoðanir for­set­ans, og hrein­skiln­is­lega von­brigði hans, með suma banda­menn okkar í NATO og við­brögð þeirra við aðgerðum okkar í Mið-Aust­ur­löndum – þær eru vel skrá­settar. Það verður að taka á því,“ sagði Rubio.

Hann bætti við að leið­toga­fund­ur­inn í Ankara yrði „lík­lega einn mik­il­væg­asti leið­toga­fundur í sögu NATO“.

Í til­raun til að lægja öld­urnar hafa sumir evr­ópskir banda­menn sent skip nær svæð­inu til að aðstoða á Hor­mússundi þegar stríð­inu lýkur.

„Evr­ópu­búar hafa heyrt skila­boðin,“ sagði Rutte.

Johann Wadephul, utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands, sagð­ist ekki búast við því að NATO myndi senda eigið verk­efni á svæðið.

Skuggi yfir leiðtogafundinum

Frá því að Trump komst aftur til valda á síð­asta ári hefur NATO staðið af sér ýmsar krísur, þar á meðal að telja hann ofan af því að reyna að leggja undir sig Grænland.

Nú er hætta á að eft­ir­málar Írans­stríðs­ins varpi skugga á leið­toga­fund­inn í Ankara, höf­uð­borg Tyrk­lands.

NATO hafði von­ast til að geta ein­beitt sér að því að sýna Trump að banda­menn stæðu við lof­orð sitt til hans á leið­toga­fund­inum í fyrra um að auka varn­ar­tengd útgjöld í fimm pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu.

Stjórn­ar­er­ind­rekar segja að verið sé að und­ir­búa fjölda vopna­samn­inga til að sýna Banda­ríkja­for­seta að Evrópa standi við orð sín.

Undir niðri í kapp­hlaup­inu um að þókn­ast Trump er við­ur­kenn­ing meðal Evr­ópu­búa á því að þeir verði í auknum mæli að standa á eigin fótum.

Harðari afstaða Evrópu

Undir for­ystu Þýska­lands, sem leggur nú meira í varn­ar­mál, er vax­andi stemn­ing fyrir harð­ari afstöðu gegn Banda­ríkj­unum, en í bili snú­ast umræð­urnar um að byggja upp hlut­verk Evrópu innan NATO frekar en að skapa annan val­kost.

„Þegar Banda­ríkin end­ur­meta umfang þátt­töku sinnar og við­veru í Evrópu innan banda­lags­ins, þá er það einmitt tæki­færið ... til að evr­ópu­væða NATO,“ sagði Jean-Noel Barrot, utan­rík­is­ráð­herra Frakk­lands.

Eitt svið þar sem Evr­ópu­búar standa þegar meira á eigin fótum er stuðn­ingur við Úkraínu.

Rutte þrýstir á um að fá fleiri skuld­bind­ingar um að kaupa vopn frá Banda­ríkj­unum til að gefa stjórn­völdum í Úkraínu.

Í til­raun til að tryggja að öll lönd legðu sitt af mörkum lagði hann fram áætlun um að fá Evr­ópu­lönd og Kanada til að heita 0,25 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu til að vopna Úkraínu.

Rutte við­ur­kenndi að til­lögu hans hefði verið hafnað snar­lega.

Stór hag­kerfi eins og Frakk­land, Spánn og Ítalía hafa verið sökuð um að leggja minna af mörkum en þau gætu.

„Það sem ég vil ná fram er að byrð­inni sé dreift jafnar,“ sagði Rutte.

„Eins og staðan er núna eru það aðeins sex eða sjö banda­menn sem bera hit­ann og þung­ann af þessu.“

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár