Sýnir sjálfan sig kýla Pétur

Guð­mund­ur Ingi Þórodds­son, odd­viti Flokks fólks­ins, birt­ir mynd­band af sjálf­um sér kýla odd­vita Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og sak­ar hana um lof­orða­svik, en sjálf­ur hafði hann reynt að ná sæti hjá flokkn­um.

Sýnir sjálfan sig kýla Pétur
Úr myndbandi Guðmundar Inga Frambjóðandinn lætur höggin dynja á sigurvegara prófkjörs Samfylkingarinnar, sem honum var hafnað í. Mynd: Skjáskot / Tiktok/ Guðmundur Ingi Þóroddsson

Guðmundur Ingi Þóroddsson, sem leiðir lista Flokks fólksins í Reykjavík eftir að hafa verið hafnað í prófkjöri Samfylkingarinnar sem Pétur Marteinsson vann, hefur gefið út gervigreindarmyndband þar sem hann lemur á Pétri og sakar Samfylkinguna um loforðasvik.

„Samfó segist hafa plan,“ segir í laginu. 

Í myndbandinu er leikið lag með hjálp gervigreindar, þar sem sungið er um „endalaus loforð, engu breytt.“

„Ráðhúsið í „slow motion“, sama vælið, „same old show“

Þá beinir Guðmundur Ingi, sem er fyrrverandi fangi og formaður hagsmunafélags fanga, spjótum sínum að Ara Edwald, oddvita Miðflokksins. „Uppreist æra fyrir Ara.“

Í laginu er á móti farið mjúkum höndum um Guðmund Inga sjálfan.

„Hugsar um meira en sjálfan sig. Hann er glæsilegur, glimmrandi.“

Þá segir að Flokkur fólksins sé „fokking sexý“.

Einn þeirra sem gagnrýnt hafa myndbandið eru Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, sem spyr á Facebook: „Hvað í fjandanum er að gerast í þessari pólitík nú orðið?“ 

Þá segir Björn að ofbeldishluti myndbandsins, sem virðist vera tilvísun í myndband Miðflokksins í Mosfellsbæ, þar sem frambjóðandi „kýlir libba“, eða frjálslynda manneskju, sé „klárt rautt spjald“. „Út af með manninn,“ segir Björn.

„Það voru bara aðilar úti í bæ sem sendu þetta á mig og ég birti á minni persónulegu TikTok-síðu,“ útskýrir Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins, þegar hann er spurður út í myndband þar sem hann sést meðal annars ráðast á Pétur Marteinsson, oddvita Samfylkingarinnar. 

„Ég er búinn að fjarlægja myndbandið,“ segir Guðmundur Ingi sem áréttar að það hafi ekki verið framleitt af framboði Flokks fólksins. Spurður um álit sitt á myndbandinu segir hann markmiðið hafa augljóslega að gera eitthvað fyndið og skemmtilegt. „Uppistaðan þarna er dans og söngur,“ segir Guðmundur Ingi.

Uppfært með viðbrögðum Guðmundar Inga.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Er einhver hissa á því að fólk beri ekki virðingu og traust til stjórnmálanna. Það er algerlega stjórnmálamönnum sjálfum um að kenna. I guðanna bænum ekki taka vitleysinginn í Vestri til fyrirmyndar, því það er kapphlaup á botninn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Hver fékk hvað við samningaborðið í Reykjavík?
Greining

Hver fékk hvað við samn­inga­borð­ið í Reykja­vík?

Lang­flest lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni koma frá Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Við­reisn kem­ur við sögu á völd­um svið­um, einkum hús­næð­is- og skipu­lags­mál­um, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist minnst sýni­leg­ur. Nokk­ur lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni er ekki að finna hjá nein­um flokk­anna þriggja, einkum þau sem snúa að smá­at­rið­um í rekstri borg­ar­inn­ar.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár