Íranar segja Bandaríkin ekki lengur „skipa öðrum fyrir“

Banda­rík­in fara yf­ir nýja til­lögu Ír­ana vegna stríðs­ins, á með­an Ír­an­ar stæra sig af því að hafa und­ir­tök­in. „Þeir eru mjög góð­ir samn­inga­menn,“ seg­ir Marco Ru­bio ut­an­rík­is­ráð­herra.

Íranar segja Bandaríkin ekki lengur „skipa öðrum fyrir“
Íran um helgina Íranskar konur ganga í miðborg Teheran, þar sem lífið gengur sinn vanagang, á laugardaginn. Ljósmyndin er frá frönsku fréttastofunni AFP. Fjölmiðlar hafa hins vegar ekki fullt frelsi til athafna í Íran. Mynd: AFP

Íranar sögðu í dag að Bandaríkin gætu ekki lengur „skipað fyrir“ um hvað önnur lönd gerðu, á meðan stjórn Donalds Trumps í Washington velti fyrir sér nýrri tillögu frá Teheran um að opna Hormússund.

Íranar hafa í raun lokað þessari mikilvægu siglingaleið frá því snemma í stríðinu við Bandaríkin og Ísrael, sem hefur valdið áfalli á alþjóðlegum orkumörkuðum og sett sundið í miðpunkt samningaviðræðna um að binda enda á átökin.

„Bandaríkin eru ekki lengur í þeirri stöðu að geta skipað öðrum sjálfstæðum þjóðum fyrir,“ sagði Reza Talaei-Nik, talsmaður varnarmálaráðuneytisins, samkvæmt ríkissjónvarpinu, og bætti við að Trump-stjórnin myndi „sætta sig við að það yrði að láta af ólöglegum og órökréttum kröfum sínum“.

Íranir bjóða öðrum hjálp

Þrátt fyrir að vopnahlé hafi stöðvað bardaga milli Írans, Bandaríkjanna og Ísraels hafa viðræður um að binda varanlegan enda á átökin ekki borið árangur.

Tillagan sem er til skoðunar í Washington myndi að sögn opna Hormússund á ný – sem er mikilvæg flutningsleið fyrir olíu og gas á heimsvísu – á meðan víðtækari samningaviðræður um stríðið halda áfram.

Talaei-Nik, sem talaði fyrir fund varnarmálaráðherra Samvinnustofnunar Sjanghæ, sagði að Íran væri einnig „tilbúið að deila varnargetu sinni með sjálfstæðum löndum, sérstaklega aðildarríkjum“ stofnunarinnar.

Átökin í Miðausturlöndum og lokun Hormússunds hafa bein áhrif á íslenskan almenning, þar sem afleidd hækkun olíuverðs getur hækkað almennt vöruverð, eykur verðbólgu og leiðir þar af leiðandi til hækkunar á höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána landsmanna og svo hækkunar stýrivaxta, sem gera afborganir af óverðtryggðum húsnæðislánum kostnaðarsamari.

Þrátt fyrir stórar yfirlýsingar Írana er ástandið þar ekki gott, sem speglast í frásögnum frá landinu. „Allt í landinu er í lausu lofti núna. Ég hef ekki unnið í langan tíma,“ sagði Farshad, eigandi lítils fyrirtækis, við blaðamenn AFP í París.

„Landið er í algjöru efnahagshruni.“

Shervin, ljósmyndari búsettur í Teheran, sagði einnig við AFP að hann fyndi sjálfur fyrir áhrifunum.„Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef lent í því að vera seinn að borga leiguna,“ sagði hann.

Hafnbann Írans á Hormússundi hefur stöðvað flæði olíu, gass og áburðar og valdið verðhækkunum.

Frá TeheranHjón með hund á mótorhjóli á Enqelab-torgi í Teheran í dag, 28. apríl 2026. Hvíta húsið sagði í gær að það væri að skoða nýjustu tillögu Írans um að opna Hormússund, tveimur mánuðum eftir að árás Bandaríkjanna og Ísraels olli áfalli í alþjóðahagkerfinu.

Íranar vilja rukka fyrir skipaumferð

Trump stendur frammi fyrir þrýstingi innanlands um að finna lausn þegar verð hækkar, en þingkosningar eru væntanlegar í nóvember og kannanir sýna að stríðið er óvinsælt meðal Bandaríkjamanna.

Ebrahim Azizi, formaður þjóðaröryggisnefndar íranska þingsins, sagði í gær að fyrirhuguð lög um stjórnun sundsins myndu gera herafla íslamska lýðveldisins að yfirvaldi, með gjöldum sem greidd yrðu í írönskum ríölum, en með þeim hætti gætu þau fjármagnað enduruppbyggingu eftir loftárásir Ísraels og Bandaríkjanna.

En yfirmaður siglingamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, Arsenio Dominguez, sagði að „engin lagastoð“ væri fyrir því að leggja á flutningsgjöld.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafnaði einnig hugmyndinni.

„Þeir geta ekki gert það að venju – né getum við umborið að þeir reyni að gera það að venju – að Íranar ákveði hverjir fái að nota alþjóðlega siglingaleið og hversu mikið þú þurfir að borga þeim fyrir að nota hana,“ sagði hann í þættinum „America's Newsroom“ á Fox.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ekkert af þessum vandamálum var til staðar áður en elliæra ómennið hóf þetta stríð. Ég er ekki hrifinn af þessum klerka stjórnum á báðum stöðum en ég sárleg vorkenni þeim sem þurfa að gjalda án þess að hafa neitt til unnið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi
2
Nýsköpun

Ís­lenskt kolla­gen fram­leitt á Blönduósi

Norð­an heiða, nán­ar til­tek­ið á Blönduósi, er ís­lenskt kolla­gen fram­leitt. Um er að ræða fyr­ir­tæk­ið Prot­is sem nýt­ir sér verk­smiðju Vil­ko þar á slóð­um, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ým­is­legt í far­vatn­inu hjá þeim, með­al ann­ars sam­starf við drykkjar­vöru­fram­leið­end­ur er­lend­is sem eig­and­inn bind­ur mikl­ar von­ir við.
„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
4
ViðtalHorft til Evrópu

„Ef við vilj­um gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar á hag­kerf­inu er­um við bet­ur sett ut­an ESB“

Full­veldi Ís­lands og sjálf­stæði í pen­inga- og rík­is­fjár­mál­um þarf að vera til stað­ar ef vinstri stjórn kemst til valda og vill gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar, seg­ir Jök­ull Sól­berg Auð­uns­son, stjórn­ar­mað­ur í Til vinstri við ESB. Hann vill horfa til BRICS-ríkj­anna og var­ar við mögu­leik­an­um á her­skyldu inn­an ESB.
Leiðtogi Norður-Kóreu ítrekar stuðning við „heilagt stríð“ Rússa
6
ErlentÚkraínustríðið

Leið­togi Norð­ur-Kór­eu ít­rek­ar stuðn­ing við „heil­agt stríð“ Rússa

Rúss­nesk­ir emb­ætt­is­menn heim­sækja Norð­ur-Kór­eu. Á fundi með varn­ar­mála­ráð­herr­an­um hét Kim Jong-un áfram­hald­andi stuðn­ingi í stríð­inu við Úkraínu. Flug­eld­um var skot­ið upp og lát­inna her­manna minnst fyr­ir hetju­dáð. Er því hald­ið fram að þeim hafi ver­ið fyr­ir­skip­að að svipta sig lífi frek­ar en að nást á lífi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár