Önnur umferð í Brasilíu eftir óvæntan sigur Bolsonaro

Flavio Bol­son­aro fékk 47 pró­sent atkvæða og Luiz Inacio Lula da Silva, for­seti Brasilíu, 45 pró­sent. Þeir mæt­ast því aftur 25. októ­ber, eftir að hægri­menn unnu jafn­framt stór­sigra í þing­kosn­ing­unum.

Önnur umferð í Brasilíu eftir óvæntan sigur Bolsonaro
Arf­tak­inn Flavio er sonur fyrr­ver­andi for­seta Brasilíu, Jair Bol­son­aro, sem situr nú í fang­elsi fyrir til­raun til valda­ráns. Mynd: EVARISTO SA / AFP

Hægri­s­inn­aði öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Flavio Bol­son­aro fékk óvænt flest atkvæði í kosn­ing­unum á sunnu­dag og fór þar með fram úr Luiz Inacio Lula da Silva for­seta. Hvorugur fékk hreinan meiri­hluta og því verður kosið að nýju eftir þrjár vikur.

Úrslitin voru á skjön við skoð­ana­kann­anir, sem höfðu sýnt Lula með for­skot. Flavio Bol­son­aro fékk 47 pró­sent atkvæða en sitj­andi for­seti 45 pró­sent.

Sigri Bol­son­aro í kosn­ing­unum 25. októ­ber bæt­ist Brasilía, stór­veldi Suður-Ameríku, í hóp ríkja á svæð­inu þar sem hægri­menn hafa sótt fram í und­an­förnum kosn­ingum. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur fagnað þeirri þróun.

Hægri­menn unnu einnig stór­sigra í þing­kosn­ing­unum. Úrslitin eru mikið áfall fyrir Lula, sem verður brátt 81 árs og sæk­ist eftir fjórða kjör­tíma­bil­inu til að festa árangur sinn í sessi.

„Ég við­ur­kenni að ég var sann­færður um að ég myndi vinna í fyrri umferð. Leik­ur­inn er rétt að byrja. Í fram­leng­ing­unni munum við vinna brasil­ísku …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár