Samþykkt var í menningarráði Reykjavíkurborgar á föstudag að vísa tillögu Samfylkingarinnar um spretthóp til umhverfis- og skipulagssviðs til þess að koma til móts við þá fimmtán hópa á menningarsviðinu sem fengu uppsögn á leigusamningum við Reykjavíkurborg á dögunum.
Það var menningarþátturinn Lestin sem fjallaði fyrst um málið en Heimildin ræddi í kjölfarið við formann borgarráðs og oddvita Framsóknarflokksins, Einar Þorsteinsson, sem sagði að samningum hefði verið sagt upp í skugga dagsekta slökkviliðsins vegna ónógra brunavarna í húsunum þremur. Hann sagði jafnframt að vinna yrði sett af stað til þess að koma til móts við leigutakana fimmtán en þeir eru allt frá hjólreiðabændum til radíóamatöra og alls kyns listafólks.
Það var borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sem lagði fram tillöguna og var samþykkt að vísa henni til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs í tengslum við kortlagningu …



















































Athugasemdir