Deila við páfann gæti reynst forsetanum dýrkeypt

Donald Trump eyddi mynd af sér sem Jesú en hvikar hvergi frá deilum við páfann.

Deila við páfann gæti reynst forsetanum dýrkeypt

Forseti Banda­ríkj­anna, Donald Trump, birti gervi­greind­ar­mynd af sjálfum sér í líki Jesú Krist en eyddi henni síðan og sagð­ist hafa verið læknir á mynd­inni. Á sama tíma hefur hann staðið í harðri deilu við Leo XIV páfa vegna stríðs­ins við Íran en átökin gætu haft veru­leg póli­tísk áhrif fyrir for­set­ann á heima­velli. Páfinn hefur gagn­rýnt stefnu stjórn­valda í inn­flytj­enda­málum, afskipti Banda­ríkj­anna af Venes­ú­ela og hern­að­ar­að­gerðir gagn­vart Íran. Trump hefur tekið því illa og sætir nú gagn­rýni fyrir árásir á páfann, jafn­vel frá banda­mönnum sínum. Talið er að for­set­inn geti með þessu misst trú­aða kjós­endur fyrir mik­il­vægar þing­kosn­ingar í nóv­em­ber.

Deilan á milli leið­toga stærsta her­veldis í heimi og höf­uðs 1,4 millj­arða kaþ­ólikka er for­dæma­laus og engin merki eru sýni­leg um að henni sé að linna. „Það er ekk­ert sem þarf að biðj­ast afsök­unar á. Hann hefur rangt fyrir sér,“ sagði Trump við fjöl­miðla í Hvíta hús­inu í gær.

Daginn áður sagði for­set­inn páfann vera „veikan í bar­áttu gegn glæpum og slakan í utan­rík­is­málum“. Eins gaf hann í skyn að Leó XIV hefði meðal ann­ars verið kjör­inn páfi árið 2025 vegna þess að hann er Banda­ríkja­maður og gæti því tengst Trump-stjórn­inni.

Páfinn lét ekki sitt eftir liggja. Í flugi á leið til Afríku sagði hann við blaða­menn að hann ótt­að­ist hvorki Trump-stjórn­ina né að tala skýrt um boð­skap guð­spjalls­ins. Áður hefur hann sagt hót­anir Trump um að eyða „heilli sið­menn­ingu“ í Íran „algjör­lega óásætt­an­legar“ og gagn­rýnt harðar aðgerðir gegn inn­flytj­endum sem „ómann­úð­legar“.

Miður sín yfir orðum forsetans

Trump hefur lengi notið stuðn­ings krist­inna kjós­enda, sem studdu hann í kosn­ing­unum 2016 og 2024, þrátt fyrir per­sónu­leg hneyksl­is­mál og óljós tengsl hans við trú. Á síð­ara kjör­tíma­bil­inu hefur hann tekið upp trú­ar­legri tón. Sagði hann meðal ann­ars að honum hefði verið „bjargað af Guði“ eftir morð­til­raun í kosn­inga­bar­átt­unni árið 2024. 

Þrátt fyrir það hafa nýleg ummæli vakið furðu. Á páska­dag birti hann til dæmis harka­leg skila­boð til Írans, þar sem hann hót­aði grimmi­legum afleið­ingum ef Hormuz-sundið yrði ekki opnað og lauk færsl­unni með orð­unum: „Lof sé Allah.“

Síðan komu beinar árásir hans á páfann. Yfir­maður banda­rísku bisk­upa­sam­tak­anna, erki­biskup Paul Coakley, sagð­ist vera „miður sín“ yfir orðum for­set­ans.

Vara­for­set­inn JD Vance veitti Trump hins vegar stuðn­ing. Í sumum til­vikum ætti Vatíkanið að halda sig við sið­ferð­is­mál en láta for­set­ann um opin­bera stefnu.

Fordæmalaus átök

Sér­fræð­ingar segja að slíkar per­sónu­legar árásir á páfa séu nán­ast for­dæma­lausar. 

Sam­skipti Banda­ríkj­anna og páfa­stóls­ins hafa oft verið stirð, til dæmis þegar Jóhannes Páll II páfi lagð­ist gegn inn­rásinni í Írak árið 2003. Frans páfi gagn­rýndi brott­vís­anir inn­flytj­enda skömmu fyrir and­lát sitt árið 2025. En sér­fræð­ingar benda á að nýi páf­inn sé erf­ið­ari skot­spónn fyrir ásak­anir um and-amer­ískar skoð­anir, enda sjálfur Banda­ríkja­maður. 

„Þetta er for­dæma­laust þar sem eng­inn banda­rískur for­seti hefur viljað styggja kaþ­ólska kjós­endur með þessum hætti,“ segir Massimo Faggioli, pró­fessor við Trinity College í Dublin.

Bandamenn bregðast illa við 

Deilan á sér stað á við­kvæmum tíma fyrir Trump, þar sem repúblikanar ótt­ast að missa meiri­hluta sinn í þing­inu í kom­andi kosn­ingum. Efna­hags­á­hyggjur bæta ekki úr skák, en þær má meðal ann­ars rekja til hás olíu­verðs í kjöl­far átak­anna við Íran. 

Fyrir Hvíta húsið er áhyggju­efni að gagn­rýni hefur einnig borist frá hægri vængnum. Fyrr­ver­andi þing­konan Marjorie Taylor Greene gagn­rýndi Trump harð­lega og sagði hann hafa ráð­ist á páfann vegna and­stöðu hans við stríðið í Íran. „Þetta kemur í kjöl­far ill­skeyttrar páska­upp­hrópana og hót­ana um að eyða heilli sið­menn­ingu. Ég for­dæmi þetta algjör­lega,“ sagði hún.

Íhalds­sami sam­fé­lags­rýn­ir­inn Riley Gaines gagn­rýndi einnig mynd­ina sem Trump birti og hvatti hann til auð­mýktar.

For­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, Giorgia Meloni, sem telst banda­maður Trump, for­dæmdi árásir hans og sagði eðli­legt að páf­inn kalli eftir friði.

Sér­fræð­ingar telja þó að deilan geti enn runnið sitt skeið. „Miðað við hversu oft Trump skiptir um skoðun er ekki úti­lokað að hann hrósi páf­anum á morgun,“ sagði franski sér­fræð­ing­ur­inn François Mabille.

Páfinn svar­aði gagn­rýni for­set­ans á hóf­saman hátt og sagði það „sið­ferði­lega skyldu“ sína að tala gegn stríði.

 

Kjósa
65
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Hvernig gat þessi maður orðið forseti? Þetta er mesti klikkhaus sem fyrirfinnst á jörðini.
    2
    • ÁJ
      Ástþór Jóhannsson skrifaði
      Það var auðvelt... Í landi þar sem stór hluti kjósenda er tilbúnnn til að skaða bæði samfélag sitt og allan heiminn þess vegna, af því það hefur í úrkynjun sinni og fáfræði umpólast í bitra og botnlausa lúsera. Að vísu var einhver hluti velmeinandi repúblikana sem vildi hætta stríðsrekstri og ofbeldisverkum í utlöndum sem kaus hann og snúa sér þess í stað af alefli í tiltekt á "heimavigstöðvunum" - klára fasistavæðinguna þar vestra í eitt skipti fyrir öll.
      ⁰En svona er þetta. Illur fengur illa forgangur.
      -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár