Hætta að selja Bandaríkjunum hergögn

Vegna stríðs­ins gegn Ír­an hef­ur út­flutn­ing­ur her­gagna til Banda­ríkj­anna ver­ið stöðv­uð í Sviss.

Hætta að selja Bandaríkjunum hergögn
Stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth, sem tók upp titilinn stríðsmálaráðherra í fyrra, hefur hafnað því að lög og reglur um hernað gildi um Bandaríkin. Hér er hann á leið á blaðamannafnud í Pentagon í gær. Mynd: AFP

Sviss ákvað í dag að heimila ekki útflutning á hergögnum til Bandaríkjanna meðan á átökunum í Miðausturlöndum stendur, í samræmi við langvarandi stefnu sína um hlutleysi í hernaðarmálum.

„Ekki er hægt að heimila útflutning á hergögnum til landa sem eiga í alþjóðlegum vopnuðum átökum við Íran á meðan átökin standa yfir,“ sagði í yfirlýsingu frá ríkisstjórninni.

„Ekki er hægt að heimila útflutning á hergögnum til Bandaríkjanna að svo stöddu,“ og núverandi leyfi til Bandaríkjanna verða endurskoðuð reglulega, sagði þar ennfremur, en bætt var við að Sviss hafi ekki gefið út útflutningsleyfi fyrir hergögnum til Ísraels eða Írans í mörg ár.

Sviss hefur sömuleiðis bannað bandaríska flughernum að fljúga yfir lofthelgi landsins, til að verja hlutleysi þess.

Þá hefur komið fram að Sri Lanka hafnaði því að veita bandaríska flughernum aðstöðu fyrir tvær herflugvélar sem Bandaríkin fóru fram á að flytja þangað frá Djibouti í Austur-Afríku, til að verja hlutleysi landsins.

Kjósa
73
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Sammála síðasta ræðumanni.
    0
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    There still seems to be - though very limited - decent politics! Will EFTA/EU start banning US citizens and Israeli citizens from entering countries in Europe or at least start screening whether or not there are war criminals amongst them!? Killing people in the Caribbean? In Iran? In Gaza? In the West Bank? In Lebanon? Etc....!?
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
5
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár