Banda­ríski flug­her­inn Hermenn úr Banda­ríkja­her vinna undir B-1 Lancer sprengju­flug­vél Banda­ríkja­hers í RAF Fairford í suð­vestur-Englandi í dag. Fairford er önnur tveggja her­stöðva, ásamt Diego Garcia stöð­inni í Ind­lands­hafi, sem Bretland hefur veitt Banda­ríkj­unum leyfi til að nota fyrir „sér­tækar varn­ar­að­gerðir í Íran“ til að eyði­leggja íranskar eld­flaugar við upp­tök þeirra. Mynd: AFP

Banna bandaríska hernum að fljúga yfir landið

Sviss hefur hafnað beiðnum Banda­ríkja­hers að fljúga yfir landið í stríðs­rekstri sínum gegn Íran, á grund­velli hlut­leys­is­stefn­unnar.

Sviss­lend­ingar til­kynntu í dag að þeir hefðu hafnað tveimur beiðnum frá Banda­ríkj­unum um að fljúga yfir land­svæði sitt í aðgerðum sem tengj­ast núver­andi stríði í Mið­aust­ur­löndum og vís­uðu til hlut­leysis síns sam­kvæmt alþjóða­lögum.

„Alls var tveimur beiðnum sem tengd­ust stríð­inu í Íran hafnað, en við­halds­flug og tvær beiðnir um flutn­inga­flug­vélar voru sam­þykktar“ á laug­ar­dag, sagði í yfir­lýs­ingu frá stjórn­völdum.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, gagn­rýndi Breta harð­lega í upp­hafi stríðs­ins fyrir að hika við að leyfa banda­rískum her­sveitum að nota bæki­stöðvar sínar og hót­aði síðar Spán­verjum við­skipta­þving­unum fyrir að neita því.

Synj­an­irnar tvær á flugi yfir Sviss vörð­uðu könn­un­ar­flug þann 15. mars, að sögn stjórn­valda.

„Hlut­leys­is­lög banna yfir­flug stríðs­að­ila í hern­að­ar­legum til­gangi sem teng­ist þeim átökum,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni og vísað var til stríðs Banda­ríkj­anna og Ísraels við Íran.

Flug í mann­úðar- eða lækn­is­fræði­legum til­gangi, þar á meðal flutn­ingur á særðu fólki og flug sem ekki teng­ist átök­unum, er áfram leyfi­legt, sagði þar.

Sviss hefur verið opin­ber­lega við­ur­kennt sem hlut­laust ríki af alþjóða­sam­fé­lag­inu síðan 1815.

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár