Segir forsætisráðherra Grænlands að „skammast sín“

Er­ind­reki Trumps gagn­vart Græn­landi seg­ir Banda­rík­in hafa skuld­bind­ingu til að gæta að heilsu Græn­lend­inga með sjúkra­skipi.

Segir forsætisráðherra Grænlands að „skammast sín“
Jeff Landry og Donald Trump Ríkisstjóri Louisiana var nýverið skipaður sendifulltrúi Bandaríkjanna gagnvart Grænlandi. Mynd: AFP

Jeff Landry, ríkisstjóri Louisiana og sendifulltrúi Donalds Trump Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi, hefur brugðist ókvæða við því að grænlensk stjórnvöld afþökkuðu bandarískt sjúkraskip, sem Trump fullyrti að hann ætlaði að senda til landsins.

„Skömm sé Jens-Frederik Nielsen forsætisráðherra!“ sagði Landry á samfélagsmiðlinum X í nótt. „Donald Trump forseta og Bandaríkjunum er ekki sama.“

Trump vakti undrun þegar hann fullyrti á samfélagsmiðli sínum Truth Social að hann hefði ákveðið að senda sjúkraskip til Grænlands til þess að veita landsmönnum lækningu. Bæði stjórnvöld í Danmörku og Grænlandi afþökkuðu, enda byggju Grænlendingar að gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu, en óljóst er hvort nokkurt raunverulegt skip var til reiðu í verkefnið.

„Eftir að hafa rætt við marga Grænlendinga um dagleg vandamál sem þeir standa frammi fyrir, stóð eitt mál upp úr – heilbrigðisþjónustan,“ sagði Landry. „Mörg þorp og smábæir skortir grunnþjónustu sem Bandaríkjamenn telja oft sjálfsagða. Í litlum byggðarlögum eru engir fastir læknar, greiningartæki eða sérfræðiþjónusta – sem neyðir íbúa til að ferðast langar vegalengdir til að fá lífsnauðsynlega meðferð sem ætti að vera í boði heima fyrir.“

SjúkraskipiðUndrun vakti um helgina þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði sjúkraskip vera á leiðinni til Grænlands. Sama dag hafði skipverji á bandarískum kafbát fengið aðhlynningu í Nuuk vegna veikinda.

Þá fullyrðir hann að Bandaríkin hafi nú tekið að sér að auka heilbrigði grænlensku þjóðarinnar. „Heilbrigt Grænland er mikilvægt fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Bandaríkin eru staðráðin í að verja Grænland og það byrjar á því að tryggja að íbúar þess séu varðir gegn einföldum sjúkdómum og kvillum,“ segir hann. 

„Þessi verkefni skipta máli því heilsa er órjúfanlegur hluti af öryggi. Skuldbinding Bandaríkjanna til að verja Grænland verður að byrja á því að tryggja að íbúar þess séu heilbrigðir.“

Heimaríki Landrys býr hins vegar við einna verstu meðalævilíkur í Bandaríkjunum, eða um 72 ár, sem er svipað og á Grænlandi en tíu árum minna en í Danmörku. 

Bandarísk stjórnvöld eru ekki talin hafa gefið upp á bátinn að ná yfirráðum á Grænlandi. Nú standa yfir samningaviðræður milli Bandaríkjanna, annars vegar, og Grænlands og Danmerkur, hins vegar, að kröfu Trumpstjórnarinnar.

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JFF
    Jóna Fanney Fridriksdottir skrifaði
    Þetta er svo æpandi mikil fáviska og í senn svo ruddalegt að ég spyr mig; eru þetta algjörir fávitar eða býr etv. einhver machiavellísk snilld þarna að baki?
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hvernig ætli það fari í Bandaríkjamenn sjálfa, þegar stór hluti þeirra hefur ekki aðgang að heilbrigðisþjónustu sjálfir, að hlusta á Forsetann setja upp svona leikrit. Trump býr í hvergilandi og hefur alltaf gert.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Í miðju stríði hrósar Trump verkefnum sínum: „Tjörnin okkar er stærri en skýjakljúfar“
InnlentBandaríki Trumps

Í miðju stríði hrós­ar Trump verk­efn­um sín­um: „Tjörn­in okk­ar er stærri en skýja­kljúf­ar“

Á sama tíma og vopna­hlé við Ír­an hékk á blá­þræði og Re­públi­kana­flokk­ur­inn stóð frammi fyr­ir póli­tískri áhættu vegna kostn­að­ar stríðs­ins, sá Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti til þess að blaða­menn sem voru sam­an komn­ir á for­seta­skrif­stof­unni vissu hvað hon­um lá helst á hjarta: end­ur­bæt­ur á hinni sögu­frægu spe­g­iltjörn við Lincoln-minn­is­varð­ann.

Mest lesið

Þverstæður íslenskrar efnahagsstjórnar
5
Greining

Þverstæð­ur ís­lenskr­ar efna­hags­stjórn­ar

Er allt að fara í skrúf­una? Hei­mótt­ar­skap­ur í hugs­an­legri heimskreppu er ekki góð blanda. Hag­fræð­in sem fag­leg fræði­grein hef­ur tek­ið meiri fram­förum held­ur en ís­lenska krón­an á þess­ari öld og mögu­lega forð­að okk­ur frá ein­hverj­um krepp­um. Þau sem misst hafa af þró­un­inni vilja gjarn­an halda í gaml­ar kredd­ur ásamt gömlu góðu verð­tryggðu krón­unni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.
Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
6
Innlent

Fleiri til­vik og há­ar upp­hæð­ir í fjár­drátt­ar­máli lög­manns­ins

Lög­mað­ur­inn Guð­rún Björg Birg­is­dótt­ir starf­aði sem ráðs­mað­ur fólks sem svipt hafði ver­ið fjár­ræði og er sök­uð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólaf­ur Hauks­son hér­aðssak­sókn­ari seg­ir meint­an fjár­drátt henn­ar vera til með­ferð­ar hjá embætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár