Viðvaranir frá Sameinuðu þjóðunum

Stjórn­endur hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum vara við upp­lausn lýð­ræðis og mann­rétt­inda. „Yfirráð og drottnun koma aftur,“ segir mann­rétt­inda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Viðvaranir frá Sameinuðu þjóðunum
Varar við Antonio Guterres, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, varar við vend­ingum í heim­inum. Mynd: Shutterstock

„Mann­rétt­indi sæta alls­herj­ar­árás um allan heim,“ var­aði Antonio Guterres, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, við í dag og sagði að þeir valda­mestu færu oft fremstir í flokki.

„Rétt­ar­ríkið er að víkja fyrir valdi aflsins,“ sagði hann við upp­haf fundar Mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna í Genf.

„Þessi árás kemur ekki úr skugg­anum eða að óvörum. Hún á sér stað fyrir opnum tjöldum – og oft undir for­ystu þeirra sem hafa mestu völdin.“

Fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna fór ekki nánar út í ein­stakar aðstæður, þótt hann hafi lýst yfir hneykslan sinni á áfram­hald­andi stríði Rúss­lands í Úkraínu, þar sem hann sagði að meira en 15.000 almennir borg­arar hefðu fallið á fjórum árum stríðs­ins. Hann hefur í vax­andi mæli varað við þróun alþjóða- og rétt­inda­mála síð­ustu ár og gekk í dag lengra en áður.

„Það er löngu kom­inn tími til að binda enda á blóðsút­hell­ing­arnar,“ sagði hann.

Hann benti einnig á „aug­ljós brot á mann­rétt­indum, mann­legri reisn og alþjóða­lögum á hernumdu palest­ínsku svæð­unum“.

Hann full­yrti að núver­andi þróun á átaka­svæð­unum undir her­námi Ísraels væri „skýr, greini­leg og mark­viss. Það er verið að afmá tveggja ríkja lausn­ina fyrir opnum tjöldum“.

„Alþjóða­sam­fé­lagið getur ekki látið það ger­ast,“ full­yrti hann.

Þjáning „afsökuð“ 

Guterres sagði að verst stöddu átaka­svæðin væru ekki einu stað­irnir þar sem rétt­indi væru að leys­ast upp.

„Um allan heim er mann­rétt­indum vís­vit­andi, mark­visst og stundum með stolti hrint til baka,“ sagði hann.

„Við lifum í ver­öld þar sem þján­ing fjöld­ans er afsökuð, þar sem fólk er notað í samn­inga­tækni, þar sem alþjóða­lög eru með­höndluð sem óþæg­indi.“

„Þegar mann­rétt­indi falla, hrynur allt annað.“
António Guterres
Fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna

Og hann var­aði við: „Þegar mann­rétt­indi falla, hrynur allt annað.“

Kreppan í virð­ingu fyrir mann­rétt­indum „end­ur­speglar og magnar upp allar aðrar alþjóð­legar brota­línur,“ sagði hann og benti til dæmis á hvernig „mann­úð­ar­þörf eykst gríð­ar­lega á meðan fjár­mögnun hrynur“.

Á sama tíma „eykst ójöfn­uður með ógn­ar­hraða (og) lönd eru að drukkna í skuldum og örvænt­ingu,“ sagði hann.

Hann sagði „lofts­lagsóreiðu og tækni þró­ast hraðar“ og benti sér­stak­lega á gervi­greind, sem sé „í auknum mæli notuð á hátt sem bælir niður rétt­indi, eykur ójöfnuð og ber­skjaldar jað­ar­sett fólk fyrir nýjum teg­undum mis­mun­unar bæði á net­inu og utan þess“.

„Á öllum víg­stöðvum er þeim sem þegar eru við­kvæmir ýtt enn frekar út á jað­ar­inn,“ sagði hann.

Fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna kall­aði eftir taf­ar­lausum aðgerðum til að snúa þess­ari þróun við.

„Við verðum að verja sam­eig­in­legan grund­völl okkar, án mála­miðl­ana,“ sagði hann og full­yrti að „sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna, mann­rétt­inda­yf­ir­lýs­ingin og alþjóð­leg mann­rétt­inda­lög séu ekki mat­seð­ill“.

„Leið­togar geta ekki valið þá hluta sem þeim líkar og hunsað rest­ina.“

Volker Turk, mann­rétt­inda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, tók undir þessar áhyggjur.

Hann var­aði við „mjög svo vara­samri þróun“ þar sem „yfir­ráð og drottnun væru að koma aftur“.

„Hörð sam­keppni um völd, stjórn og auð­lindir á sér stað á heims­vísu með hraða og afli sem ekki hefur sést síð­ustu 80 ár,“ var­aði hann við.

„Beiting valds til að leysa deilur milli og innan landa er að verða eðli­leg.“

Turk lagði áherslu á hvernig „tann­hjól heims­vald­anna eru að fær­ast til“ og hvatti fólk til að standa saman til að vernda rétt­indi og skapa „sterkt mót­vægi við þá ein­ræð­is­legu þróun sem við sjáum í dag, þar sem allt er stjórnað að ofan“.

Turk gagn­rýndi á sama tíma leið­toga, án þess að nafn­greina þá, sem virð­ast telja „að þeir séu hafnir yfir lög og yfir sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna“.

„Þeir krefj­ast sér­stöðu, benda á sér­staka hættu eða sér­stakt sið­ferð­is­legt mat til að fylgja eigin stefnu­málum hvað sem það kostar,“ sagði hann og benti á hvernig „sumir beita efna­hags­legum áhrifum sínum sem vopni“.

„Þeir dreifa fals­upp­lýs­ingum til að trufla, þagga niður í og jað­ar­setja,“ sagði hann.

Það sem er ljóst, var­aði Guterres við, var að „á öllum víg­stöðvum er þeim sem þegar eru ber­skjald­aðir ýtt enn frekar út á jað­ar­inn“.

„Lýðræði leys­ist upp ... inn­flytj­endur eru áreittir, hand­teknir og þeim vísað burt með algeru virð­ing­ar­leysi fyrir mann­rétt­indum þeirra og mannúð. Flótta­menn eru gerðir að söku­dólgum,“ benti hann á og lagði einnig áherslu á hvernig „hinsegin sam­fé­lög (séu) sví­virt, minni­hluta­hópar og frum­byggjar skot­mörk, ráð­ist er á trú­fé­lög“.

Guterres, sem lætur af störfum á þessu ári eftir ára­tug í for­svari fyrir Sam­ein­uðu þjóð­irnar, kall­aði eftir taf­ar­lausum aðgerðum til að snúa þess­ari þróun við.

„Látið ekki valdið skrifa nýja reglu­bók þar sem hinir ber­skjöld­uðu hafa engin rétt­indi og hinir valda­miklu engin tak­mörk,“ sagði hann.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Ótrúlegt hvað er að gerast. Almennir borgarar hafa völd í samfélögum, a.m.k. þar sem kosningar hafa eitthvað gildi. Þessi villimennska, þ.e. þetta sem stjórnmálafræðingar kalla hægri eitthvað, sem er að þróast í samfélögum og taka völdin, er eitthvað sem kjósendur hafa valið. Kjósendur hafa valið yfir sig villimennskuna, hvernig má það vera? Það er ekki nema um öld síðan að villimennskan / hægri eitthvað, kallaði yfir samfélög einn mesta hrylling í þekktri sögu mannkyns. Hvernig má það vera að allt stefnir í það sem var, í mögulega sama hrylling og var. Hvað er það í fari manna, sem kemur svona atburðarrás af stað?
    2
    • Kristjana Magnusdottir skrifaði
      Enda eru við hvort sem er oft á tíðum okkareigin pyndingameistarar og reisum óábyrg okkur sjálfánþessað vitaafþvi og þannigernúþað minkærevenn!
      0
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Hægt er að styrkja matvælaaðstoð Sþ:
    wfp.org
    Flóttamannaaðstoð Sþ:
    Unhcr.org
    Palistínuaðstoðina:
    Unrwa.org
    Heilbrigðisstofnun Sþ.
    Who.int
    Og barnahjálp Sþ:
    Unicef.is
    ......Og fleira.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár