Ísraelsstjórn ætlar að „hvetja“ Palestínumenn til að flytja úr landi

Ísra­els­ríki sam­þykkir aðgerðir til að yfir­taka meira palest­ínskt land. Hálf milljón Ísraela býr á ólög­legum land­nema­byggðum.

Ísraelsstjórn ætlar að „hvetja“ Palestínumenn til að flytja úr landi
Hvatt til brott­flutn­ings Palest­ínsk börn leika sér á trampólíni í þorp­inu Umm Safa, norður af Ramallah, á Vest­ur­bakk­anum, með ísra­elska fán­ann í bak­grunni. Ísrael hefur sam­þykkt ferli sem gerir land á Vest­ur­bakk­anum að rík­is­eign, sem auð­veldar fram­sal til ísra­el­skra land­nema. Mynd: AFP

Fjár­mála­ráð­herra Ísraels, Bezalel Smotrich, sem er lengst til hægri í stjórn­málum, sagð­ist ætla að fylgja stefnu sem „hvetur til brott­flutn­ings“ Palest­ínu­manna frá hernumdu Vest­ur­bakk­anum og Gasa­svæð­inu, að því er ísra­elskir fjöl­miðlar greindu frá í dag.

„Við munum útrýma hug­mynd­inni um arab­ískt hryðju­verk­a­ríki,“ sagði Smotrich á við­burði sem Trú­ar­legi zíonistaflokkurinn hans stóð fyrir seint í gær.

„Við munum loks­ins, form­lega og í reynd, ógilda hina bölv­uðu Ósló­ar­samn­inga og hefja veg­ferð í átt að full­veldi, um leið og við hvetjum til brott­flutn­ings bæði frá Gasa og Júdeu og Samaríu.“

„Það er engin önnur lang­tíma­lausn,“ bætti Smotrich við, en hann býr sjálfur í land­nema­byggð á Vest­ur­bakk­anum.

Frá því í síð­ustu viku hefur Ísrael sam­þykkt ýmsar aðgerðir sem studdar eru af ráð­herrum lengst til hægri til að herða yfir­ráð á Vest­ur­bakk­anum, þar á meðal á svæðum sem stjórnað er af heima­stjórn Palest­ínu­manna sam­kvæmt Ósló­ar­samn­ing­unum, sem hafa verið í …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Þetta er trúarbragðastríð.

    Gyðingar trúa því að guðinn hafi gefið meintum forföður þeirra, Abraham, landið umfram aðra menn. Afkomendur hans voru reyndar aðeins stuttan tíma í Ísrael, ca 3 kynslóðir áður en þeir fluttust til Egyptalands og gerðust síðar þrælar Egypta, svo þeir hafa í mesta lagi búið á nokkrum hekturum í Ísrael.

    Löngu síðar, eftir að guðinn hafði drepið alla frumburði Egypta í einni af plágunum sem hann framkallaði, leyfði Faraó, forystumaður Egypta, gyðingunum að fara til baka, en sá svo eftir því og var her Egypta drekkt í hafinu af guðinum sem hafði áður þurrkað einhverskonar götu í gegnum mitt hafið og látið það steypast yfir þá þegar þeir veittu gyðingunum eftirför. Þegar "heim" var komið gerðu gyðingarnir svo tilkall til landsins síns og fóru með hernaði gegn íbúum þess og kepptust við að uppræta þá sem tilheyrðu ekki söfnuðinum, kannski ekki alls ólíkt og í dag.

    Það er þó merkilegt að einu boðorðinu virðast Ísraelar gleyma, eða boðorðinu: Þú skalt ekki mann deyða - en það er kannski ekki skrítið því guðinn átti í mestu erfiðleikum með að fara eftir því sjálfur - samkvæmt biblíunni.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár