Pólska efnahagsundrið fær loks viðurkenningu

Pólland hefur á rúm­lega þremur ára­tugum farið úr skömmtun í versl­unum yfir að leiða hag­vöxt í álf­unni. Þetta gerð­ist innan Evr­ópu­sam­bands­ins en án evru.

Pólska efnahagsundrið fær loks viðurkenningu
Varsjá Margir skýja­kljúfar hafa risið í pólskum borgum síð­ustu ár. Mynd: Shutterstock

Margir Pól­verjar hædd­ust að Lech Walesa, leið­toga hins nýstofn­aða verka­lýðs­fé­lags Samstöðu, árið 1980 þegar hann lof­aði því að Pólland yrði „annað Japan“ – en nú er landið í stakk búið til að ganga í G20-hóp helstu efna­hags­velda heims.

Frá falli komm­ún­ism­ans fyrir 35 árum hefur Pólland þró­ast úr áætl­un­ar­bú­skap, sem var alræmdur fyrir skömmtun á vörum og tómar hillur versl­ana, í helstu hag­vaxt­arma­sk­ínu Evrópu.

Með lands­fram­leiðslu upp á um eina billjón doll­ara er Pólland nú með 20. stærsta hag­kerfi heims og fer fram úr löndum eins og Svíþjóð, Sviss og Taívan.

Þegar leið­rétt er fyrir kaup­mátt mun lands­fram­leiðsla á mann fara fram úr Japan á þessu ári og ná 80 pró­sentum af með­al­tali Evrópu, sam­kvæmt Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum og Eurostat.

„Fyrir mína kyn­slóð er þetta gríð­ar­legt afrek; fyrir kyn­slóð for­eldra minna er þetta krafta­verk,“ sagði fjár­mála­ráð­herr­ann Andrzej Domanski nýlega.

Almennt er búist við því að pólska hag­kerfið fari fram úr 3,4 …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár