Bandarísk yfirtaka gæti leitt til mengunar á Íslandi

Geisla­virkni í jarð­lögum þar sem finn­ast sjald­gæfir málmar á Græn­landi hefur hindrað námu­gröft. Jarð­efna­fræð­ingur varar við því að Banda­ríkin gætu hunsað umhverf­is­á­hrif og valdið umhverf­isslysi sem næði til Íslands.

Bandarísk yfirtaka gæti leitt til mengunar á Íslandi
Ágengni á vafasömum for­sendum JD Vance, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, heim­sótti í fyrra banda­rísku her­stöð­ina í Pituffik nyrst á Græn­landi, til að fylgja tákn­rænt eftir áhuga á að inn­lima landið í Banda­ríkin. Þrátt fyrir að vísa til örygg­is­sjón­ar­miða hafa Banda­ríkin dregið veru­lega úr og haldið aftur af við­veru banda­ríska hers­ins á Græn­landi, sem er heim­il­aður með varn­ar­samn­ingi frá árinu 1951. Mynd: AFP

Náma­vinnsla á Græn­landi gæti fram­kallað „umhverf­isslys“ sem berst til Íslands, að sögn jarð­efna­fræð­ings­ins Haraldar Sig­urðs­sonar. Hann varar við því að yfir­töku Banda­ríkj­anna á Græn­landi gæti fylgt umhverf­is­sóða­skapur, þar á meðal geisla­virkni.

Haraldur, sem býr í Banda­ríkj­unum, segir að ástæður fyrir því að námu­vinnsla hafi ekki auk­ist á Græn­landi sé fyrst og fremst lóg­istík, eða ferlar, inn­viðir, stað­hættir og fjar­lægðir, sem og að geisla­virk efni séu í jarð­lögum þar sem sjald­gæfa málma má finna. Ný náma, sem áætlað er að muni opna 2028, gæti orðið sú stærsta í heim­inum með sjald­gæfa jarð­málma.

„Mikið umhverf­isslys“ mögu­legt

Nú þegar eru því engar póli­tískar eða við­skipta­legar hindr­anir fyrir námu­vinnslu á Græn­landi, aðrar en sem við­kemur vilja lands­manna og til­raunum þeirra til að koma í veg fyrir mengun.

Hættan sé að ef Banda­ríkin yfir­taki Grænland með valdi, eins og Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur end­ur­tekið boðað, muni þeir heim­ila meng­andi námu­vinnslu, enda hefur for­set­inn unnið að afreglu­væð­ingu og afnumið vernd­ar­stöðu land­svæða og haf­svæða á for­seta­tíð sinni.

„Ef Amer­ík­anar ráð­ast inn á svæðið er ólík­legt að þeir virði þau skyn­sam­legu mörk sem nú ríkja varð­andi umhverf­is­vernd og skað­leg áhrif geisla­virkra efna,“ skrifar Haraldur á Facebook-síðu sinni. „Þá getur orðið mikið umhverf­isslys sem kann að hafa áhrif á næsta nágranna, Ísland. Yfir­borðs­straum­ur­inn milli Íslands og Græn­lands er Austur-Græn­lands­straum­ur­inn, sem stefnir til suð­vest­urs, en ekk­ert er vitað um hugs­an­lega dreif­ingu á námu­úr­gangi í haf­inu á þessum slóðum.“

Haraldur Sig­urðs­sonEr einn fremsti eld­fjalla­fræð­ingur heims.

Flytja þyrfti inn námu­menn

Lítið er um námu­vinnslu á Græn­landi nú þegar. Að mati Haraldar „ættu Íslend­ingar að fagna því að námurnar eru ekki komnar í gang, því meng­unin og sóða­skap­ur­inn mun þá fljótt ber­ast þessa stuttu leið til Íslands.“

Haraldur lýsir því hvernig geisla­virkni hefur hindrað námu­vinnsl­una.

„Það kom snemma í ljós að fornar jarð­mynd­anir Græn­lands inni­halda mikið magn af geisla­virkum efnum eins og úran og þór­íum. Á dögum Kalda Stríðs­ins varð Grænland því spenn­andi svæði til að vinna þessa málma fyrir kjarn­orku­ver Dana og til vopna­gerðar,“ segir Haraldur.

„Frægasti efna­fræð­ingur Dana, Niels Bohr, kom til dæmis til Græn­lands 1957 í því sam­bandi. En síðar átta menn sig á því að úran og þór­íum eru stór­hættu­leg geisla­virk efni, sem hafa mjög skað­leg áhrif á manns­lík­amann og allt líf­ríki yfir langan tíma. Yfirvöld héldu lengi vel mik­illi leynd yfir upp­lýs­ingum varð­andi hættu af völdum geisla­virkni en nú eru áhrifin vel þekkt og oft ban­væn. Það kom fljótt í ljós að mik­il­væg námu­svæði á Græn­landi sem voru rík af sjald­gæfu málm­unum inni­halda einnig mikið magn af úran og þór­íum.“

Haraldur lýsir því hvernig stað­hættir og skortur á innviðum hafi sömu­leiðis hindrað upp­bygg­ingu námu­vinnslu.

„Sam­göngur eru erf­iðar og dýrar í landi sem hefur aðeins rúm­lega 100 km af vegum. Það er dýrt að reka þyrlu­flug til sam­gangna. Hafn­ar­skil­yrði eru einnig mjög tak­mörkuð en strand­ferðir skipa er fram­tíðin. Námu­fé­lag sem stefnir á stórt verk­efni verður því að byggja upp alla stað­hætti frá grunni, höfn, orku­ver, þorp, skóla, sjúkra­hús, flug­völl og svo fram­vegis. Stofn­kostn­aður er því mik­ill. Einnig þarf senni­lega að flytja inn erlenda námu­menn og annað starfs­lið. Loftslag og hinn langi, dimmi og kaldi vetur er auð­vitað stór þáttur í erf­iðum stað­háttum.“

Námu­vinnsla þegar til staðar

Það breytir því þó ekki að nú þegar eru tvær námur í notkun og stór náma á teikni­borð­inu, enda er Grænland „almennt talið vera eitt auð­ug­asta svæði á jörðu hvað snertir málma og önnur dýr­mæt efni í jörðu“, að sögn Haraldar.

„Mikið er fjallað um námu­rekstur á Græn­landi í dag, en raun­veru­leik­inn er sá að það eru nú aðeins tvær virkar námur á Græn­landi,“ segir Haraldur. Önnur þeirra er vinnur berg­teg­und­ina anortósít, sem er malað og notað í máln­ingu og skraut. Hin er gull­náma Amaroq, sem stofnað var og er stýrt af Íslend­ingnum Eldi Ólafs­syni. Eldur hefur sagt frá því í inn­lendum og erlendum fjöl­miðlum að hann sjái mikil tæki­færi í ásælni Banda­ríkj­anna í Grænland, þar sem slíkt geti ýtt undir fjár­fest­ingu. Amaroq er skráð í kaup­höll­ina í Kanada og á Íslandi og hækk­aði gengið snarpt í vik­unni þegar Eldur greindi frá áhuga banda­ríska alrík­is­ins til að kaupa hlut í félag­inu.

Annars staðar hefur verið horfið frá námu­vinnslu vegna geisla­virkni í jarð­lögum. Það gildir um námu á Kvanefjeld-svæð­inu í miðri Eystri­byggð, þar sem Eiríkur rauði nam land um 985. Náman lá skammt fá Bröttu­hlíð, þar sem Eiríkur rauði reisti sér bæ. En með námunni stefndi í umhverf­isslys sem lýð­ræðið og stjórn­málin á Græn­landi komu í veg fyrir.

„Græn­lend­ingum leist illa á þetta og vildu koma í veg fyrir mikið umhverf­isslys,“ lýsir Haraldur. Flokk­ur­inn Inuit Ataqatigiit komst til valda, sem er sjálf­stæð­is­sinn­aður vinstri flokkur undir for­ystu Múte B. Egede, for­manns lands­stjórnar Græn­lands þar til í fyrra. Árið 2021 sam­þykkti þingið bann á vinnslu geisla­virkra efna og vinnslu á bergi sem inni­heldur meira en 100 ppm (millj­ón­ustu­hluta) af úran eða þór­íum. Í berg­inu á fyr­ir­hug­aða námu­svæð­inu var um 360 ppm af úran, að sögn Haraldar.

Annars staðar í gömlu Eystri­byggð, sunn­ar­lega í land­inu á vest­ur­strönd­inni, er verið að und­ir­búa námu­gröft í fjall­inu Kringlerne, eða Killa­vaat. Þar er magn geisla­virks úrans um 100 ppm, eða millj­ón­ustu­hlutar, og sjald­gæfir jarð­málmar um 500 milljón tonn, að sögn Haraldar.

Verk­efnið sem stefnir í að verða jafn­vel stærsta náma heims með sjald­gæfa jarð­málma er í eigu banda­ríska fyr­ir­tæk­is­ins Critical Metals Corp. og ástr­alska námu­fé­lags­ins Rimbal Pty Ltd. Til umræðu hefur verið að banda­ríska alríkið kaupi hlut í félag­inu.

Við NuukDanska varð­skipið P572 Lauge Koch liggur út af Nuuk, á kosn­inga­degi í mars í fyrra. Í kosn­ing­unum var 31 með­limur græn­lenska þings­ins, Inats­is­artut, kjör­inn, og náðu Demókratar, sem vilja fara hægt í sjálf­stæði, yfir­hönd­inni og for­mennsku í land­stjórn­inni.

Vilji Græn­lend­inga ekki atriði fyrir Trump

Sem fyrr segir hafa Græn­lend­ingar hindrað námu­vinnslu þegar umhverf­is­á­hrifin eru metin of mikil, en þar liggja hags­munir íslensku og græn­lensku þjóð­ar­innar saman.

Óvíst er þó hver dreif­ing hugs­an­legrar meng­unar gæti orðið og hver áhrifin yrði á Ísland.

„Yfir­borðs­straum­ur­inn milli Íslands og Græn­lands er Austur-Græn­lands­straum­ur­inn, sem stefnir til suð­vest­urs, en ekk­ert er vitað um hugs­an­lega dreif­ingu á námu­úr­gangi í haf­inu á þessum slóðum,“ segir Haraldur.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur gefið til kynna að hann telji and­stöðu Græn­lend­inga við að verða inn­lim­aðir í Banda­ríkin ekki vera hindrun fyrir yfir­tök­unni. Í gær hót­aði hann Græn­lend­ingum bein­línis.

„Ég myndi vilja gera samn­ing, þú veist, á auð­veldan hátt. En ef við gerum það ekki á auð­veldan hátt, þá munum við gera það á erf­iðan hátt,“ sagði Trump á fundi í Hvíta hús­inu með stjórn­endum olíu­fyr­ir­tækja í gær, þar sem hann reyndi að sann­færa þá um fjár­fest­ingu eftir valda­skiptin í Venes­ú­ela við hand­töku sem Trump fyr­ir­skip­aði á for­seta þess lands.

Allir stjórn­mála­flokk­arnir á græn­lenska þing­inu gáfu út yfir­lýs­ingu í gær um að Græn­lend­ingar vildu ekki verða banda­rískir. Spurður út í and­stöðu Græn­lend­inga sagði Trump að hann ætl­aði „að gera eitt­hvað varð­andi Grænland, hvort sem þeim líkar betur eða verr.“

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Fyllstu aðgæslu þarf að umgangast náttúruauðlindir. Það hefur ekki verið sterkasti eiginleiki Donald Trumps hingað til.
    2
  • RTG
    Reynir Tómas Geirsson skrifaði
    Ísland á að styðja Grænland gegn ásælni BNA. Trump mun not sömu orðræðu til að taka Ísland (og Kanada) þar á eftir.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár