Dreymdi um að skauta á Tjörninni

Viktoria Štrbová kom til lands­ins til þess að kenna list­skauta­dans. Nú er hún á leið­inni aftur heim, en vildi ekki fara héðan án þess að hafa skautað á Tjörn­inni.

Dreymdi um að skauta á Tjörninni

Ég myndi segja að lífið hafi komið mér hingað. Ég var búin að vera að kenna sam­hliða æfingum í Slóvakíu þegar ég frétti af því að það vant­aði þjálf­ara á Íslandi. Eftir smá umhugsun ákváðum við, ég og kærast­inn minn, að flytja hingað. Það hefur verið algjört ævin­týri. Núna hef ég búið í tvö ár á Íslandi og starfað sem þjálf­ari. 

Ég var átta ára þegar ég byrj­aði að æfa list­skauta í Slóvakíu. Það þykir frekar seint að byrja átta ára, en ég vildi frekar óska þess að ég hefði byrjað fyrr að þjálfa. Þegar þú útskýrir fyrir öðrum verður margt skýr­ara fyrir þér um leið. Þetta er án vafa ein flókn­asta íþrótt sem til er, en fyrir mér er þetta meira en bara íþrótt. Þetta er list.

Tjörnin í Reykja­vík var eitt af því fyrsta sem ég tók eftir þegar við fluttum. Síðan þá hefur mig dreymt um að skauta þar. Hún er búin að vera frosin í nokkra daga en ísinn er ekki nógu góður alls staðar til að skauta. Ég ákvað samt að láta loks­ins verða af því að skauta á Tjörn­inni áður en við flytjum aftur heim.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár