Ekkja Kirks: „Ég fyrirgef honum“

Á minn­ing­ar­at­höfn um Charlie Kirk sagð­ist eig­in­kona hans fyr­ir­gefa morð­ingj­anum. Hún tíund­aði hlut­verk eig­in­kvenna í kristi­legu sam­bandi. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti var ekki í sama sátta­hug.

Ekkja Kirks: „Ég fyrirgef honum“
Erika Kirk Eig­in­kona hins myrta, kristna áhrifa­valds Charlies Kirk hefur tekið við stjórn sam­taka hans, Turning Point USA. Mynd: AFP

Á fjöl­mennri minn­ing­ar­at­höfn um kristna íhalds­mann­inn Charlie Kirk, sem myrtur var við rök­ræður með stúd­entum í Utah í síð­ustu viku, kynnti eig­in­kona hans áform um mikla útþenslu sam­taka hans, Turning Point USA, sem hún stýrir nú eftir frá­fall eig­in­manns­ins. 

Í tölu sinni í Glendale, Arizona, sagði ekkja Kirks, Erika, að hún fyr­ir­gæfi morð­ingja hans, Tyler Robinson. Það gerði hún eftir að hafa lýst því að Charlie Kirk hefði reynt að ná til „týndra drengja vest­urs­ins“ sem væru „hel­teknir af beiskju, reiði og hatri“. „Svarið við hatri er ekki hatur. Svarið er, sam­kvæmt ritn­ing­unni kær­leikur og alltaf kær­leikur. Kær­leikur gagn­vart óvinum okkar og kær­leikur til þeirra sem ofsækja okkur.“

Hún sagði að morð­ing­inn væri einn þess­ara drengja sem Kirk hefði viljað bjarga. „Ég fyr­ir­gef honum,“ sagði hún og grét.

Sjálfur hafði morð­ingi Kirks, sem var 22 ára gam­all morm­óni úr fjöl­skyldu sem kýs Repúblik­ana, að hann hefði fengið „nóg af hatri“ Charlies Kirk, sem tal­aði reglu­lega gegn trans­fólki, fóst­ur­eyð­ingum og fleiri rétt­inda­málum minni­hluta­hópa og kvenna.

Eiginkonan sé hjálpari 

Erika beindi orðum sínum að eig­in­mönnum um allan heim. Hún sagði að hlut­verk eig­in­manns­ins væri að leiða og að hann þyrfti að vera þess verður, taka upp „sanna karl­mennsku“. „Leiðið þær,“ sagði hún. „Vertu and­legur leið­togi heim­il­is­ins.“

Eig­in­konan ættu á móti að vera vernd­arar og hvetjarar. „Hún er hjálp­ari þinn. Þið eruð eitt hold. Þið vinnið saman Guði til dýrðar.“

Undir lok tölu sinnar boð­aði hún útþenslu sam­tak­anna, sem þau hjónin stofn­uðu saman, og bar hún fram ráð­legg­ingar. „Mik­il­væg­ast af öllu: Veldu Krist.“

Donald TrumpSagðist í ræðu sinni hafa unnið stærsta kosn­inga­sigur í sögu Banda­ríkj­anna með hjálp Charlies Kirk, en í raun­veru­leik­anum var sig­ur­inn naumur.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hélt sömu­leiðis ræðu. Hann lýsti mann­kostum Charlies Kirk, en kvaðst ekki taka undir boð­skap um kær­leika. „Ég hata and­stæð­ing minn,“ sagði hann og upp­skar hlátur. Hann lýsti mót­mæl­endum við við­burði Charlies Kirk sem und­ir­róð­urs­fólki á launum.

Trump hefur skil­greint laustengda and­fasíska hóp­inn Antifa sem hryðju­verka­sam­tök og boðað hefndir gegn vinstri mönnum.

„Vonandi finnum við út gegnum dóms­mála­ráðu­neytið hvaða fólk þetta er.“ Þá sagði hann „Antifa-hryðju­verka­menn“ hafa brotið rúður. „Ofbeldið kemur að miklu leyti frá vinstra fólki,“ bætti hann við.

Trump hélt fram ýmsum stað­hæf­ingum um póli­tíska and­stæð­inga sína og stöðu mála í Banda­ríkj­unum, meðal ann­ars end­ur­tók hann ásak­anir um kosn­inga­svindl í for­seta­kosn­ing­unum.

„Þeir svindl­uðu eins og hundar, en við náðum þeim.“

Hann sagði Kirk orð­inn eilífan.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár