„Finn það alveg núna að ég á heima hér“

Rakel Birta Haf­liða­dóttir segir það hafa verið leið­in­legt að skilja fjöl­skyld­una sína eftir á Egils­stöðum þar sem hún er alin upp, en í Reykja­vík eigi hún heima.

„Finn það alveg núna að ég á heima hér“
Minni áhyggjur Rakel Birta vill búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem er að hennar mati fleira fólk og færri áhyggjur. Mynd: Ragnhildur Helgadóttir

Ég flutti að heiman 18 eða 19 ára. Það var mjög mikil breyt­ing. Ég bjó á Egils­stöðum með for­eldrum mínum og er alin upp þar. Það var smá­erfitt að flytja, en spenn­andi líka. Mig lang­aði að koma í umhverfi þar sem er fleira fólk. En það er ótrú­lega leið­in­legt að þurfa að skilja fjöl­skyld­una eftir. Sér­stak­lega litlu systur mína. Hún er 14 ára og maður missir smá af upp­eldi hennar. 

Ég held ég flytji ekki aftur til baka. Ég finn það alveg núna að ég á heima hér. Mér líður bara betur hérna. Ég held það sé vegna þess að hér er fleira fólk, allt er stærra og minni áhyggjur ein­hvern veg­inn. 

Ég er að læra hag­fræði. Það var eig­in­lega skyndi­á­kvörðun. Ég skráði mig fyrst í mat­væla­fræði og síðan viku áður en skól­inn átti að byrja þá skipti ég bara. Mig lang­aði að prófa eitt­hvað annað. Síðan var það ótrú­lega gaman, þannig að ég er búin að vera þar. Ég var að klára þriðja árið mitt, ég er að útskrif­ast á þremur og hálfu ári. 

Ég vissi eig­in­lega ekk­ert hvað hag­fræði var þegar ég byrj­aði, en hún fer svo djúpt í hvernig allt sam­fé­lagið virkar. Hvernig það snýst og mér finnst gott að vita það. Áður en ég byrj­aði í háskóla var ég ekk­ert að pæla í sam­fé­lags­um­ræð­unni. En eftir þetta þá finnst mér miklu skemmti­legra að pæla í hlut­unum og skoða út á hvað allt gengur.“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Af hverju var þetta skrifað?
    0
    • Martin Swift skrifaði
      Greinaröðin Fólkið í borginni virðist birt til gamans og fræðslu um fjölbreytt mannlífið. Þetta eru oft hinar skemmtilegustu sögur. Fínar til að fá raunsærri sýn á samfélagið.
      https://heimildin.is/greinarod/folkid-i-borginni/
      8
    • MS
      Michael Schulz skrifaði
      I don't understand either!? Frontpage ... !?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár