Vonast til að rannsókn á Samherjamáli ljúki í sumar

Rannsókn hér­aðs­sak­sókn­ara er á loka­metr­unum og ætti að klár­ast að óbreyttu á sum­ar­mán­uðum.

Vonast til að rannsókn á Samherjamáli ljúki í sumar
Baldvin Þor­steins­son ásamt föður sínum, Þor­steini Má Bald­vins­syni. Myndin var tekin þegar Baldvin lenti í orða­skaki við þáver­andi seðla­banka­stjóra, Má Guð­munds­son, á nefnda­sviði Alþingis árið 2019. Mynd: Anton Brink / Fréttablaðið

Hér­aðs­sak­sókn­ari von­ast til þess að rann­sókn á máli Samherja, oft kallað Sam­herj­a­skjölin, muni ljúka í sumar. Málið verður þá yfir­farið af ákæru­svið­inu, og í fram­hald­inu verður tekin afstaða til þess hvort ákæra verði gefin út.

Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari setur þó all­nokkra fyr­ir­vara við tíma­setn­ing­una, það sé enn tölu­verð vinna eftir. Samherji hefur verið til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara á sjötta ár eftir að Kveikur, rann­sókn­ar­frétta­þáttur RÚV, fjall­aði um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins árið 2019.

Um ári eftir umfjöll­un­ina færðu eig­endur Samherja, Þor­steinn Már Bald­vins­son og Kristján Vil­helms­son, ásamt Helgu Stein­unni Guð­munds­dóttur, fyrr­ver­andi eig­in­konu Þor­steins, og Kolbrúnu Ing­ólfs­dóttur, eig­in­konu Vilhelms, allan hlut sinn á börn sín. Þor­steinn Már til­kynnti í dag að hann hygð­ist stíga til hliðar sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins og að Baldvin sonur hans tæki við stjórn­inni. 

Stundin, nú Heim­ildin, greindi frá …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Namibíumenn tala um skattsvik og geta því ásakað Samherja um peningaþvætti og það fyrnist ekki. Svo þeir eru ekki sloppnir því peningarþvættisakæra er ekki svo auðveldlega jörðuð.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár