Þorsteinn Már hættir sem forstjóri Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son hefur til­kynnt að hann muni láta af störfum sem for­stjóri Samherja. Sonur hans mun taka við af honum.

Þorsteinn Már hættir sem forstjóri Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son mun láta af störfum sem for­stjóri Samherja í júní næst­kom­andi en hann hafði verið for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins frá stofnun árið 1983. Þessu greindi hann frá í bréfi til starfs­fólks í dag sem sjá má á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins. 

Sonur Þor­steins Más, Baldvin Þor­steins­son, mun taka við af föður sínum, en hann hefur verið stjórn­ar­for­maður í Samherja frá árinu 2023. 

„Sjáv­ar­út­vegur hefur verið mitt ævi­starf og það hafa verið sönn for­rétt­indi að byggja upp þetta félag með ykkur á und­an­förnum rúmum fjórum ára­tugum,“ skrif­aði Þor­steinn Már.

„Ég ákvað fyrir löngu síðan að ég ætl­aði að hætta sem for­stjóri á mínum for­sendum áður en ég yrði gam­all og leið­in­legur. Eftir rúma fjóra ára­tugi í svona starfi er eðli­legt að líði að starfs­lokum. Allt hefur sinn tíma og sjálfum finnst mér þessi tíma­setn­ing heppi­leg. Ekki dugar að biða eftir lygnum sjó, í þess­ari grein kemur sá tími lík­lega seint.“ 

Hann seg­ist þó ekki alveg sestur í helgan stein, enda sitji hann í stjórnum félaga svo sem Samherja fisk­eldi ehf. og Síld­ar­vinnsl­unni hf. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár