Jarðvarminn breytti lífinu

Lilja Tryggva­dóttir lærði véla­verk­fræði og segir jarð­var­mann hafa breytt lífi sínu.

Jarðvarminn breytti lífinu
Lilja Tryggva­dóttir ásamt syst­ur­dóttur sinni, Emblu Björgu Sig­ur­jóns­dóttur. Mynd: VG

Ég er véla­verk­fræð­ingur hjá Orku­veit­unni, er þar í rann­sóknum og nýsköpun,“ segir Lilja Tryggva­dóttir þegar blaða­maður ræddi við hana í mið­borg­inni 1. maí, þar sem hún var á ferð með syst­ur­dóttur sinni, Emblu Björgu Sig­ur­jóns­dóttur. Lilja seg­ist hafa slys­ast út í véla­verk­fræði. „Ég fór á kynn­ingu hjá háskól­anum og end­aði á því að taka öll kynn­ing­ar­blöðin,“ útskýrir hún. „Og þegar ég var búin að raða þessu nokkrum sinnum upp í kerfi, eins og verk­fræð­ingi sæmir, stóð eftir að ég vildi vita meira um jarð­fræði, forn­leifa­fræði og svo efna­fræði.“

Stefnan var því aug­ljós í hennar huga. Véla­verk­fræðin varð fyrir val­inu, og ekki nóg með það, heldur jarð­varm­inn.

„Þannig mætti segja að jarð­varm­inn hafi breytt líf­inu,“ segir hún. „Ég sé svo­lítið mikið í kerfum og finnst gaman að greina í kerfum og tæki­færum. Þess vegna er nýsköpun skemmti­leg. Maður upp­götvar alltaf hvað maður veit lítið og það er það frá­bæra …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár